Ófeigur - 15.12.1951, Síða 44
44
ÓFEIGUR
frátöldum opnum bátum, hefur misst fjármagn lands-
ins og gjafafé í tapreksturinn. Eftir hrunið er ekki önn-
ur leið fær í þéttbýlinu, heldur en hlutaráðning á öll-
um fleytum, sem ekki eru f jölskyldufyrritæki og í verk-
smiðjum. Þjóðfélagið hefur tekið skipin, bátana og verk-
stæðin og getur ekki annað gert við þessi tæki en að
leyfa mönnum sem kunna til sjómennsku og iðnaðar
að vinna upp á hlut og eftir rússneskri Stakhanov-
fyrirmynd þannig, að hver maður fái tekjur eftir af-
köstum. Sjómennirnir og iðjufólkið mun vafalaust
heimta, að landsmenn sem vinna með öðrum hætti að
framleiðslunni verði líka hlutarmenn og að kjör þeirra
fari eftir aflaafköstmn og árferði. Þar sem sjómenn
og bændur sitja við uppsprettulindir framleiðslunnar
og báðar stéttirnar eru háðar bylgjuköstum veðurs og
strauma, fá þær úrslitaorðið um allar greiðslu fyrir
vinnu þess fólks, sem síðar bætist í keðju „þarfa stétt-
anna“, svo að notað sé orð úr nægtabúri Hermanns
Jónassonar. Landvinnumenn og landverkakonur, skrif-
stofufólk og ýmiskonar kunnáttumenn neyðast til að
hverfa úr öryggisskýli fastra launa og hækka og lækka
í tekjum og lífsskilyrðum í samræmi við afkomu þeirra
stétta, sem ganga inn í baráttu frumframleiðslunnar.
Ef hvítflibbastéttum landsins þykja þetta hörð kjör,
mega þær sjálfum sér um kenna. Þær sóttust í ótíma
eftir bræðralagi við þá menn, sem eyðilögðu þjóðveldið.
Eimskipafélagið og Sambandið.
Tvö íslenzk stórfyrirtæki hafa að mestu komizt klak-
laust gegnum brim og boða upplausnarinnar 1942—51.
Það eru Eimskip og Sambandið. Sömu menn og sama
stefna hefir verið ríkjandi í báðum fyrirtækjunum síð-
an fyrir fyrra stríðið. Þó steðja hættur að báðum fé-
lögunum. Að vísu geta bolsivikar ekki náð stjóm Eim-
skipafélagsins í sínar hendur með atkvæðamagni, en
jpeir geta lamað fyrirtækið með dýrtíðarskrúfunni. Ef
stéttarfélögin halda áfram að gera svo harðar sérhags-
munakröfur til félagsins, að það geti ekki staðizt sam-
keppni við erlend skipafélög, er erfitt að spá um fram-
tíð þess. Enn er þessi hætta ekki aðkallandi. I Sam-
bandinu hefir bólað á nýrri hættu. Fram að árinu 1944
stóðu frumherjar kaupfélaganna í þéttri fylkingu um