Ófeigur - 15.12.1951, Page 50

Ófeigur - 15.12.1951, Page 50
50 ÓFEIGUR Hann kveðst hafa staðið þarna í dyrunum grandalaus og alls ekki hafa haft hugboð um að Pétur mundi kveikja í, hann kveður hann vel hafa getað aðhafzt það, sem hann segist hafa aðhafzt þarna inni í myrkr- inu án þess að hann yrði þess á nokkurn hátt var. Hann kveðst mikið efast um að það hefði á nokkum hátt vakið eftirltekt sína þótt hann hefði heyrt eitt- hvert það þrusk, sem af því leiddi, að gúmmírörið var slitið — og hann kveðst, ítarlega aðspurður, alls ekki minnast þess, að hann hafi heyrt það. ítarlega að- spurður, heldur hann því fram, að hann hafi verið gjör- samlega grandalaus um það, bæði fyrir og eftir brun- ann, að Pétur hefði kveikt í — hann hafi aldrei minnzt á það við sig, hvorki fyrr eða síðar. Hann hafi beðið sig að fara þarna inn eftir með sér með bílinn og sem verkstæðisfélagi hafi hann gert það. Yfirh. heldur að Pétur hafi verið eitthvað á fylleríi þarna á undan, en minnist þess ekki, að hann hafi verið ölvaður þarna. Hann kveður sér oft hafa fundizt Pétur mjög ein- kennilegur maður, en ekki minnast þess að hann hafi verið það framar venju þarna í þetta skipti. Itarlega aðspurður, kveðst yfirh. ekki geta gefið neinar frekari upplýsingar um nánari atvik brunans. „1930, nóv. 13. Réttarhald í lögreglurétti Reykjavíkur. D. bls. 10-11. Fyrir var tekið að halda áfram réttarrann- sókn í framangreindu máli. Eins og um er getið hér að framan, er Ólafur Jóns- son á togaranum „Gylfi“ og kom úr Englandsferð í gær. Skipið fer sennilega út í kvöld. Ef hægt væri að komast hjá því að halda Ólafi til baka að ástæðu- lausu, vildi dómarinn reyna að komst hjá því; þess- vegna hringdi dómarinn til dr. Helga Tómassonar í morg- un og fór fram á að Pétur mætti mæta í dag — og hvað hann mega reyna að yfirheyra hann. I réttinum er mættur gæzlufanginn, ákærður Pétur Pálsson. — Hann kveðst hafa komizt að benzínleiðsl- unni með því að taka upp mótorhlífina og smeygja hendinni inn í vélina, sem sé auðvelt; hvort leiðslan hafi slitnað eða hrokkið fram af, þorir hann ekki að fullyrða, býst frekar við að hún kunni að hafa hrokk- ið fram af. Haun kveðst munu hafa staðið hægra meg-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.