Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 30
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ VEGGFÓÐUR: Falleg og oft vanmetin lausn Ég er búinn að vera í veggfóðrun og dúkalagningu í yfir fjörtíu ár og því búinn að viða að mér töluverðri reynslu í þessum bransa. Faðir minn og afi voru líka báðir í þessum geira þannig að ég er fulltrúi þriðju kynslóð- ar af veggfóðrurum í fjölskyldunni. Því má segja að ég hafi reynslu af gömlum og nýjum vinnuaðferðum og efnum sem spanna yfir níutíu ár í sögu veggfóðrunar og dúklagningar,“ segir Einar Beinteinsson, dúklagningar- og veggfóðursmeistari. Skemmtileg lausn „Við sérpöntum veggfóður fyrir viðskiptavini og erum í viðskiptum við nokkra áhugaverða og skemmtilega aðila sem framleiða slitsterkt og fallegt veggfóður. Þessir aðilar eru mjög mismunandi og spannar úrvalið okkar allt frá hátískuveggfóðrum til veggfóðursframleiðenda sem hanna veggfóður með þrjú hundruð ára gömlum mynstrum. Svo erum við í viðskiptum við aðila sem býður upp á heilu myndirnar fyrir veggi. Hægt er að fá mynd af fjöllum, skógi vöxnu svæði, mynd af himninum, þotu eða hverju sem hugurinn girnist. Enn annar fram- leiðandi hjá okkur hannar veggfóður úr náttúruefnum eins og basti og striga. Sérpöntun á veggfóðri tekur yfirleitt um það bil eina viku,“ segir Einar. Ótrúlegir möguleikar með veggfóðri Veggfóðrun er afar vanmetin en sérlega skemmtileg lausn þegar kemur að því að innrétta hús og gera íbúðir að sínum. „Ólíkt því sem margir halda þá er auðvelt að taka niður veggfóður, en þegar veggfóðrið er komið á þá eru fæstir í þeim hugleiðingum að taka það af,“ segir Einar. Tískan á Íslandi í dag er afar stílhrein, sem er gott og blessað. En það er óneitanlega skemmtilegt að brjóta upp allt þetta svarthvíta þema með smá áferð eða mynstri á einum vegg til að koma með smá líf inn í húsið. Margir setja upp veggfóður á einn vegg kannski í stofunni eða í eldhúsinu, rétt til þess að brjóta upp rýmið. Svo eru möguleikarnir alveg óendanlega margir. „Við settum t.d. um daginn upp veggfóður með mynd af skóglendi í sturtu hjá einum og lökkuðum yfir. Þetta kom alveg svaka- lega vel út. Með því að lakka yfir þá lokast veggurinn alveg fyrir rakanum frá sturtunni, líkt og um flísar væri að ræða. Einnig settum við upp veggfóður hjá einum á milli efri og neðri skápa í eld- húsinnréttingu. Svo lét hann sníða gler yfir. Glerið er smellt á þannig að það er auðvelt að skipta út veggfóðrinu,“ segir Einar. Það er allt hægt og meira til með veggfóðri í dag enda afar fjöl breytilegur kostur fyrir þá sem langar að hafa fal- legt í kringum sig. Nánari upplýsingar má nálgast á veggfodur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.