Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 16
16 12. júlí 2019FRÉTTIR n Helgi í Góu ómyrkur í máli um morðingja sonar síns n „Þeir sem fremja svona hryllilega glæpi ættu að fá það sama til baka.“ É g hef mjög einfalda skoðun á þessu. Það ætti að vera auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Ég hef bara þessa einu skoðun og þetta þyrftu menn þá að vita áður en þeir ákveða að taka líf annarra. Menn sem hafa svona hugsunarhátt þyrftu að geta vitað að ef þeir taka líf annarra þá verði líf þeirra líka tekið,“ segir Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við Góu, í einkaviðtali við DV. Árið 2010 varð Gunnar Rúnar Sigurþórsson syni Helga, Hann- esi Þór Helgasyni, að bana með hrottalegum hætti. Hann var dæmdur ósakhæfur í héraðs- dómi en Hæstiréttur sneri þeim dómi við, úrskurðaði Gunnar Rúnar sakhæfan og dæmdi hann í sextán ára fangelsi. Samkvæmt reglum um afplánun verður sak- borningur sem sakfelldur hefur verið fyrir glæp af þessu tagi að af- plána minnst tvo þriðju hluta af dómnum. En til eru úrræði sem gera föngum kleift að ganga um frjálsir undir eftirliti meðan á af- plánun stendur, til dæmis í formi dagsleyfa eða búsetu heima með ökklaband. Gunnar Rúnar fékk slíkt úrræði árið 2017 og undan- farið hafa borist sögusagnir um að hann sé á ferli í Hafnarfirði og víðar. Sá orðrómur að Gunnar Rúnar gangi laus fékkst endan- lega staðfestur er kom í ljós að hann er skráður á stefnumótafor- ritið Tinder, en fangar sem sitja inni hafa ekki aðgang að interneti. Ljóst er að Gunnar Rúnar hefur enn ekki afplánað tvo þriðju hluta af dómi sínum. Það er svo aftur annað mál að margir telja að mað- ur sem hefur framið svo alvarlegt brot ætti ekki að geta fengið afslátt af afplánun. „Sonur minn barðist til síðasta blóðdropa“ Helgi í Góu er klárlega í þeim hópi. Hann segir sársaukann og áfall- ið sem glæpur Gunnars Rúnars hefur valdið fjölskyldu hans vera eitthvað sem vart sé hægt að færa í orð. „Enginn gerir sér grein fyrir því hvað svona er hrikalegt fyrr en hann lendir í því sjálfur,“ seg- ir Helgi. Þegar hann ýjar að því að dauðarefsing sé réttlátur dómur þá meinar hann ekki fyrir öll morð eða manndráp. „Þessi maður drap ekki bara einn mann, hann stakk hann nítján sinnum með hnífi – nítján sinnum.“ Helgi endurtekur töluna með áhersluþunga. „Þetta er bara eins og hakkavél. Þetta var allt ákveðið hjá honum fyrirfram. Sonur minn barðist til síðasta blóðdropa enda var blóð úti um allt. Hann varðist og morðinginn varð taugaveiklaður yfir sjálfs- vörninni og dró hann fram í stofu. Ég bara fer ekki ofan af því að þeir sem fremja svona hryllilega glæpi ættu að fá það sama í staðinn..“ Helgi segist vona að ef Gunnar Rúnar verður á vegi hans þá beri hann ekki kennsl á hann því annars veit hann ekki hvað hann myndi gera. Hann ítrekar að þess- ar tilfinningar skilji aðeins fylli- lega sá sem hefur lent í þessum aðstæðum. Menn sem setja svona lög og reglur – hafa þeir lent í þessu sjálfir? Varðandi þyngd dómsins sem Gunnar Rúnar fékk, heimildir til að afplána ekki allan dóminn, og að hann gangi laus þó að hann sé ekki búinn að afplána, þá er Helgi ómyrkur í máli. „Menn sem setja svona lög og reglur – hafa þeir einhvern tíma lent í svona sjálfir? Að sonur þeirra eða dóttir sé myrt af yfirlögðu ráði, með köldu blóði? Það efast ég um. En hafa þeir rætt við þá sem lenda í slíku og sett sig í spor þeirra? Það efast ég líka um.“ Aðspurður segist Helgi vita að sést hafi til Gunnars Rúnars á ferli og hann veit um skráninguna á Tinder: „Jú, ég frétti það. Ég er auðvitað ekkert í slíku sjálfur og kann ekk- ert á tölvur, en ég fæ að vita þetta allt saman. Ég endurtek bara að ég vona að ég þekki manninn ekki ef ég sé hann. En hann gerði mikla vitleysu með því að láta vita af sér á stefnumótasíðu. Hann er stór- klikkaður. Enda sögðu þeir menn sem yfirheyrðu hann á sínum tíma að hann væri stórhættulegur.“ Þegar hann er spurður hvernig tilfinning það sé fyrir fjölskylduna að vita að morðingi Hannesar gangi laus segir Helgi: „Maður er að reyna að gleyma þessu, en því miður, það er ekki hægt …“ Rödd Helga brestur í stutta stund. Síð- an harkar hann af sér. „Maður hugsar um þetta á hverjum degi. Þess vegna tek ég svona til orða. Þeir sem fremja svona hryllilega glæpi ættu að fá það sama til baka. Minni skoðun í þessu verður ekki haggað. Refsingin þarf að vera þannig að ef þú gerir svona og ert búinn að ákveða það fyrirfram, þá þarftu að vita hvað bíður þín. Og það á ekkert að vera að púkka upp á menn eins og þennan.“ Eyðileggingarmáttur glæpsins „Hann drap ekki bara mann, þessi maður sem hann myrti átti ungt barn. Og þetta fór með móður hans, konuna mína, í gröfina. Það sama hefur gerst í öðru morðmáli hér á landi, morðið á syni varð til þess að móðirin missti heilsu og líf. Svona skilur eftir sig sár í allri fjölskyldunni til langframa. Þetta er svo mikill hryllingur að maður getur varla talað um það. Samt er ég hrifinn af því að þið fjölmiðl- ar sýnið þessu áhuga því fólk átt- ar sig ekki á því hvað er í gangi. Fréttaflutningur af svona málum er nauðsynlegur,“ segir Helgi Vil- hjálmsson – Helgi í Góu. n Morð Gunnars Rúnars á Hannesi er flokkað sem ástríðuglæpur. Gunnar Rúnar birti ástarjátningu til þáverandi unnustu Hannesar árið 2009. Ástarjátninguna birti Gunnar Rúnar á YouTube og vakti myndbandið mikla athygli fjölmiðla og Hannesar. Ári síðar myrti Gunnar Rúnar Hannes, en í yfirheyrslum lögreglu sagðist hann hafa hugsað um að myrða hann lengi. Hann sagðist enn fremur hafa viljað losna við Hannes til að hann og unnusta Hannesar gætu verið saman. Gunnar Rúnar var metinn ósakhæfur í Héraðsdómi Reykjaness árið 2011, á grundvelli vitnisburða þriggja geðlækna. Hann var í kjöl- farið vistaður á Sogni. Í dómnum kemur meðal annars fram að Gunn- ar Rúnar sé hættulegur og að hann hefði sjálfur lýst ofbeldisfullum hugsunum gagnvart fanga, á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi. Því eigi hann að sæta strangri öryggisgæslu auk meðferðar, á grundvelli réttaröryggis. Fjölskylda Hannesar lýsti því yfir opinberlega að úr- skurðurinn væri vonbrigði. Hæstiréttur sneri hins vegar við dómi héraðsdóms í október 2011 og mat það svo að Gunnar væri sakhæf- ur. Hann var í kjölfarið dæmdur til sextán ára fangelsisvistar. Í dómn- um kemur fram að ásetningur Gunnars Rúnars hafi verið einbeittur þegar hann stakk Hannes ítrekað. Samkvæmt sérfræðimati þriggja geðlækna þjáðist Gunnar af ástsýki (erotomania), ranghugmyndum (fixed delusions) og persónuleikaröskun (dissociative disorder) sem lýsir sér í tvískiptum eða rofnum persónuleika. „Ég vona að ég þekki manninn ekki ef ég sé hann“ Ástríðuglæpur „Hann drap ekki bara mann, þessi maður sem hann myrti átti ungt barn. Og þetta fór með móður hans, konuna mína, í gröfina. Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.