Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 12. júlí 2019 EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Mesta snilldin og algjört klúður 21. aldarinnar„Hann var jafn óþol- andi og hann var frá- bær í einfaldleika sínum Markaðssetning nútímans er vandmeðfarin, enda í mörg horn að líta. Oft skjóta auglýsingar eða herferðir upp kollinum sem hitta í mark. Sumar missa hins vegar marks. Við fengum nokkra sérfræðinga til að skera úr um hver væri mesta mark- aðssnilld 21. aldarinnar – og hvar hafi mistekist hrapallega. 1. Sopranos-herferð Sorpu „Þeir tóku leiðinlegt vörumerki og leiðinlega vöru (engum finnst gaman að flokka, í alvöru) og gerðu hana skemmtilega. Bragi baggalútur að skrifa handrit sem Helgi Björns lék svo eftir – það gat ekki klikkað.“ „Frábært „play on words“ og sniðug hugmynd og framkvæmd.“ „Þetta hefði getað farið svo illa, enda vísun í einn vinsælasta sjónvarpsþátt heims, en varð svo bara að goðsögn.“ 2. Essasú-froskur Vodafone „Hann var jafn óþolandi og hann var frábær í ein- faldleika sínum.“ „Ég man ekkert hvað þessi dásamlega óþolandi froskur átti að auglýsa en ég er enn að vitna í hann. Hve sorglegt er það?“ 3. Fiskikóngurinn „Það má margt segja um Fiskikónginn en það er óumdeilt að hann er konungur útvarpsauglýsing- anna. Í útvarpi borga menn fyrir sekúndur. Hann skilur útvarp og nær að hámarka áhrif hverr- ar birtingar fyrir lítið fjármagn. Hver Íslending- ur þekkir auglýsingarnar hans. HUMAR HUMAR HUMAR. Fiskikóngurinn. Sogavegi 3.“ „Þetta er allt í nafninu – hann er kóngurinn!“ 1. Íslenskt grænmeti – þú veist hvaðan það kemur „Það getur ekki verið góð hugmynd að skapa hugrenningatengsl við klósett í auglýsingu fyrir ferska matvöru. Og ég skildi aldrei al- mennilega hvers vegna konan í matvöruversluninni var að strjúka agúrkunni upp við andlitið á sér.“ „Mig langar svo að vita hvað fór fram á þessum fundi! Hverjum fannst þetta góð hugmynd?!“ 2. Hakkari Áttunnar „Rebrand hjá Áttunni þar sem þau lokuðu miðlunum sínum og földu gamalt efni, því fylgdi einnig ótrúverðugt vídeó frá hakkara sem var erfitt að taka mark á.“ „Örugglega frábær hugmynd á blaði en var gjörsamlega rústað í framkvæmd. Áttuliðum virðist hins vegar vera skítsama um gagnrýni og læra ekkert af þessum mistökum, því miður.“ 3. Sbarro „Gott dæmi um þegar fullorðið fólk hefur ofurtrú á eigin hæfileikum til að geta verið hipp og kúl og talað til unglinga.“ „Æi, kommon. Hefur einhvern tím ann einhver sagt frasana: „Gríptu eina slæsu“ eða „Texta með annarri og borða með hinni“?“ Álitsgjafar: Kristján Hjálmarsson, almanna- og viðskiptatengslastjóri H:N Markaðssamskipta Brynja Björk Garðarsdóttir, markaðsstjóri Storytel Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Domino’s Ida St., viðmótshönnuður Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri Þjóðleikhússins Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Mesta snilldin Verstu mistökin Annað sem var nefnt: Jón Gnarr sem Lýður Oddsson fyrir Lottó og sem Júdas fyrir Símann, sjónvarpsþættir Hamborgarafabrikkunnar á Stöð 2, WOW air. Annað sem var nefnt: Orkuveituauglýsingin rétt fyrir hrun, heil- síðuauglýsing Birgisson í Fréttablaðinu þar sem gleymdist að segja um hvaða fyrirtæki ræddi, „Af hverju ertu ekki að horfa á veginn?“ frá Samgöngustofu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.