Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 12. júlí 2019
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Mesta snilldin og algjört
klúður 21. aldarinnar„Hann var jafn óþol-
andi og hann var frá-
bær í einfaldleika sínum
Markaðssetning nútímans er vandmeðfarin, enda í mörg horn að líta. Oft skjóta
auglýsingar eða herferðir upp kollinum sem hitta í mark. Sumar missa hins vegar
marks. Við fengum nokkra sérfræðinga til að skera úr um hver væri mesta mark-
aðssnilld 21. aldarinnar – og hvar hafi mistekist hrapallega.
1. Sopranos-herferð Sorpu
„Þeir tóku leiðinlegt vörumerki og leiðinlega vöru
(engum finnst gaman að flokka, í alvöru) og gerðu
hana skemmtilega. Bragi baggalútur að skrifa
handrit sem Helgi Björns lék svo eftir – það gat ekki
klikkað.“
„Frábært „play on words“ og sniðug hugmynd og
framkvæmd.“
„Þetta hefði getað farið svo illa, enda vísun í einn
vinsælasta sjónvarpsþátt heims, en varð svo bara
að goðsögn.“
2. Essasú-froskur Vodafone
„Hann var jafn óþolandi og hann var frábær í ein-
faldleika sínum.“
„Ég man ekkert hvað þessi dásamlega óþolandi
froskur átti að auglýsa en ég er enn að vitna í hann.
Hve sorglegt er það?“
3. Fiskikóngurinn
„Það má margt segja um Fiskikónginn en það er
óumdeilt að hann er konungur útvarpsauglýsing-
anna. Í útvarpi borga menn fyrir sekúndur. Hann
skilur útvarp og nær að hámarka áhrif hverr-
ar birtingar fyrir lítið fjármagn. Hver Íslending-
ur þekkir auglýsingarnar hans. HUMAR HUMAR
HUMAR. Fiskikóngurinn. Sogavegi 3.“
„Þetta er allt í nafninu – hann er kóngurinn!“
1. Íslenskt grænmeti – þú veist hvaðan það kemur
„Það getur ekki verið góð hugmynd að skapa hugrenningatengsl
við klósett í auglýsingu fyrir ferska matvöru. Og ég skildi aldrei al-
mennilega hvers vegna konan í matvöruversluninni var að strjúka
agúrkunni upp við andlitið á sér.“
„Mig langar svo að vita hvað fór fram á þessum fundi! Hverjum
fannst þetta góð hugmynd?!“
2. Hakkari Áttunnar
„Rebrand hjá Áttunni þar sem þau lokuðu miðlunum sínum og földu
gamalt efni, því fylgdi einnig ótrúverðugt vídeó frá hakkara sem var
erfitt að taka mark á.“
„Örugglega frábær hugmynd á blaði en var gjörsamlega rústað í
framkvæmd. Áttuliðum virðist hins vegar vera skítsama um gagnrýni
og læra ekkert af þessum mistökum, því miður.“
3. Sbarro
„Gott dæmi um þegar fullorðið fólk
hefur ofurtrú á eigin hæfileikum til
að geta verið hipp og kúl og talað til
unglinga.“
„Æi, kommon. Hefur einhvern
tím ann einhver sagt frasana: „Gríptu
eina slæsu“ eða „Texta með annarri
og borða með hinni“?“
Álitsgjafar:
Kristján Hjálmarsson, almanna- og viðskiptatengslastjóri H:N
Markaðssamskipta
Brynja Björk Garðarsdóttir, markaðsstjóri Storytel
Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Domino’s
Ida St., viðmótshönnuður
Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri Þjóðleikhússins
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Mesta snilldin
Verstu mistökin
Annað sem var nefnt: Jón Gnarr sem Lýður
Oddsson fyrir Lottó og sem Júdas fyrir Símann,
sjónvarpsþættir Hamborgarafabrikkunnar á
Stöð 2, WOW air.
Annað sem var nefnt: Orkuveituauglýsingin rétt fyrir hrun, heil-
síðuauglýsing Birgisson í Fréttablaðinu þar sem gleymdist að
segja um hvaða fyrirtæki ræddi, „Af hverju ertu ekki að horfa á
veginn?“ frá Samgöngustofu.