Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 18
18 PRESSAN 12. júlí 2019
Á
síðustu fimm árum hefur
innflutningur á kókaíni og
metamfetamíni til Ástralíu
og Nýja-Sjálands aukist
mikið. Fjölmargir smyglarar hafa
verið gripnir í báðum löndum, þar
á meðal Íslendingar, en samt sem
áður er mikið framboð af þessum
hættulegu fíkniefnum í löndun-
um. En þetta snertir fleiri en íbúa
Ástralíu og Nýja-Sjálands því íbú-
ar Kyrrahafseyja á borð við Fídjí og
Vanúatú finna líka fyrir þessu.
Ekki bara hvítar strendur
Flestir sjá eflaust Kyrrahafseyjar
á borð við Fídjí og Vanúatú fyrir
sér sem hinar fullkomnu eyjar þar
sem hvítar strendur og blár sjór
setja mark sitt á umhverfið þar
sem friður og ró ríkir. En á undan-
förnum árum hefur sannkölluð
flóðbylgja fíkniefna skollið á þess-
um áður friðsælu eyjum. Á síð-
ustu fimm árum hefur orðið algjör
sprenging í fjölda báta og skipa
sem flytja fíkniefni á borð við kóka-
ín til Fídjí, Vanúatú, Papúa Nýju-
Gíneu, Tonga og Nýju-Kaledóníu
og áfram þaðan til Ástralíu og
Nýja-Sjálands.
Þetta hefur orðið til þess að
margar sögur hafa farið á kreik um
umfang smyglsins og eyjaskeggj-
ar hafa fundið fíkniefni. Til dæm-
is skýrði The Guardian frá því að
sjómaður frá Budi Budi-svæðinu
frá því að hann hefði fundið kóka-
ín að verðmæti sem nemur rúm-
lega fjórum milljörðum íslenskra
króna grafið í sand á síðasta ári.
Í þeirri umfjöllun var haft eftir
Andreas Schloenhardt, prófessor í
refsirétti við háskólann í Queens-
land í Ástralíu, að ef lína væri
dregin frá Bogotá í Kólumbíu til
Canberra í Ástralíu liggi hún beint
yfir Kyrrahafseyjarnar. Sífellt sé
lagt hald á meira magn fíkniefna
og meira magni sé smyglað.
Hörð stefna yfirvalda
Áströlsk yfirvöld reka harða stefnu
í þessum málum og hafa frá 2014
átt þátt í að það tókst að stöðva
smygl á 7,5 tonnum af kókaíni til
Kyrrahafssvæðisins. Hvað eftir
annað hefur mikið magn kóka-
íns rekið á fjörur á Vanúatú og
Fídjí. Nærri eyjunum geyma fíkni-
efnasmyglarar síðan mikið magn
af fíkniefnum og er verðmæti
þeirra talið hlaupa á milljörðum
dollara.
Á mörgum eyjanna hefur fíkni-
efnaneytendum fjölgað og sam-
hliða því hefur ofbeldi færst í auk-
ana og einnig glæpir og spilling.
Samkvæmt frétt þýsku fréttastof-
unnar DPA frá því í byrjun árs eyða
Ástralir sem nemur tæplega 900
milljörðum íslenskra króna í fíkni-
efni á ári hverju. Áströlsk yfirvöld
hafa einmitt lýst því yfir að landið
glími við fíkniefnafaraldur.
Í byrjun júní lagði ástralska lög-
reglan hald á 1,6 tonn af metam-
fetamíni um borð í flutningaskipi
nærri Melbourne. Aldrei fyrr hafði
jafn mikið magn af þessu fíkni-
efni verið haldlagt í einu í Ástralíu.
Sendingin kom frá Taílandi. Auk
metamfetamínsins voru 37 kíló af
heróíni um borð í skipinu.
Sent frá Ameríku
Kókaíni og metamfetamíni er yfir-
leitt komið fyrir í bátum og skip-
um í Suður- eða Mið-Ameríku auk
Bandaríkjanna. Síðan er haldið
áleiðis til Ástralíu og Nýja-Sjá-
lands. Þessir markaðir eru mjög
vænlegir í augum fíkniefnasala því
verðið er hátt, en fyrir eitt gram
af kókaíni fæst sem nemur um
25.000 íslenskum krónum. Hvergi
í heiminum er neysla kókaíns, að
meðaltali á hvern mann, meiri en
í þessum tveimur löndum.
Það eykur síðan á vanda litlu
Kyrrahafseyjanna að þær eru illa í
stakk búnar til að takast á við vax-
andi fjölda fíkniefnaneytenda. Á
Fídjí eru hvorki meðferðarstöðvar
eða önnur úrræði fyrir fíkla og þar
starfa engir sérfræðingar á þessu
sviði.
Árlega fara sjö milljónir gáma
um ástralskar hafnir. Aðeins lít-
ill hluti þeirra er gegnumlýstur í
leit að fíkniefnum. Þetta gleður
að sjálfsögðu fíkniefnagengi frá
Mexíkó sem eru virk á ástralska
markaðnum. n
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Flóðbylgja fíkniefna
á friðsælum eyjum
Kyrrahafseyjar Á mörgum eyjanna
hefur fíkniefnaneytendum fjölgað.
Eykur á vandann
Það eykur á vanda
litlu Kyrrahafseyjanna
að þær eru illa í stakk
búnar til að takast
á við vaxandi fjölda
fíkniefnaneytenda.