Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 54
54 FÓKUS 12. júlí 2019
Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
BÍLAMERKINGAR
BANNER-UP
SÓLARFILMUR
Ráðgjöf
Hönnun
Framleiðsla
Uppsetning
YFIRHEYRSLAN
Karítas
Harpa
Karítas Harpa Davíðsdóttir, söngkona og dag-
skrárgerðarkona, vann keppnina The Voice Iceland
árið 2017 þegar hún söng sig inn í hug og hjörtu
landsmanna. Síðan þá hefur Karítas verið áberandi
í sviðsljósinu bæði sem einsöngkona en einnig með
sönghópnum Fókus. Nýlega eignaðist Karítas sitt
annað barn og eyðir nú dögunum í fæðingarorlofi.
Karítas er í yfirheyrslu vikunnar:
Hjúskaparstaða og börn?
Einn kærasti, Aron Leví Beck, og tveir synir; Ómar Elí (4 ára) og Hrafn Leví (8
vikna).
Fyrsta atvinnan?
Gott ef blaðburður hafi ekki verið mitt fyrsta launaða starf, en það entist
reyndar ekki mjög lengi, það að vakna á undan öllum öðrum var ekki alveg fyrir
mig.
Skemmtilegast að gera?
Syngja, tala og koma fram. Jú, og að hlæja, það er í miklu uppáhaldi hjá mér.
En leiðinlegast?
Mér þykir til dæmis einstaklega leiðinlegt að borða bragðlítinn mat. Verð mjög
matsár og þykir máltíð og magaplássi sóað. Síðan hef ég ekkert svakalega
gaman af borðspilum en ég segi fólki það reyndar helst ekki.
Trúir þú á drauga?
Ég hreinlega veit það ekki, ég get allavega ekki með vissu
sagst alls ekki trúa á drauga. Ég held það sé alls konar til sem
við kannski skiljum ekki eða sjáum ekki, en hvort það séu
draugar veit ég ekki.
Leiðinlegasta húsverkið?
Þvotturinn, eða allt sem kemur á eftir því að setja í vél og
kveikja, enda oft þurft að kveikja á sömu vél af þvotti
eftir nokkra daga því mér leiðist svo það sem tekur við.
Hver er fyrirmynd þín í lífinu?
Ég á kannski ekki eina svona fyrirmynd heldur meira
dáist ég að hlutum í fari mismunandi fólks og nýti
fordæmi þeirra frekar sem einhvers konar fyrirmyndir
í mismunandi hlutum, eins og til dæmis í móður-
hlutverkinu horfi ég rosalega mikið upp til mömmu
minnar.
Hvað er það erfiðasta sem þú hefur
gert?
Líkamlega myndi ég segja að fæða barn, andlega að ala þau
upp.
Hver myndi leika þig í kvikmynd?
Væri gaman ef það væri einhver skemmtileg tútta eins og til
dæmis Kristen Wiig.
Hefur þú fallið á prófi?
Í skóla nei, húð og kyn já.
Fallegasti staður á landinu?
Það þykir mér óskaplega erfitt að segja, í fyrsta lagi hef ég
bara ekki ferðast eins mikið innanlands og ég vildi hafa og í öðru
lagi vil ég ekki særa einn stað með því að nefna annan, enda
gífurlega meðvirk, en nýlega fórum við fjölskyldan á Austfirðina
og var ég mjög hrifin af þeim, þar þótti mér Seyðisfjörður til dæmis
alveg sérstaklega fallegur staður.
Heldur þú með Tomma eða Jenna?
Þá blossar meðvirknin aftur upp, ég held að samskipti þeirra séu bara
byggð á misskilningi og þeir hafi báðir góða menn að geyma.
Hefur þú æft íþróttir?
Já, ég æfði áhaldafimleika í mörg ár með Gerplu og keppti meira að segja
með landsliðinu á Evrópumóti í Hollandi á sínum tíma.
Fyrsta utanlandsferðin?
Ég flutti til Bandaríkjanna 5 mánaða svo ég flaug þá fyrst til útlanda.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Betra að prófa og mistakast en að prófa ekki og velta „hvað ef” fyrir þér það
sem eftir er.
Áttu gæludýr?
Ekki í dag nei, en ólst upp með hundinum Kleinu og kettinum Pepsi Max
(kallaður Max).
Eitthvað að lokum?
Bara, muna að njóta og forðumst kommentakerfin á fréttaveitum.
MYND: EYÞÓR/DV