Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 6
6 12. júlí 2019FRÉTTIR
Vafasöm vegferð í nafni réttlætis –
Krafa sem ekki virðist vera fyrir hendi
n Greiddu hin fyrirtækin ? n Vinnumálastofnun veldur töfum n SA gagnrýna kröfur Eflingar
B
arátta Eflingar gegn starfs-
mannaleigunni Menn í
vinnu (MÍV) hefur ver-
ið áberandi í fjölmiðlum
undanfarið. Málið kom fyrst upp
í kjölfar umfjöllunar fréttaskýr-
ingarþáttarins Kveiks í haust og
svo aftur í febrúar þegar nokkrir
rúmenskir starfsmenn MÍV stigu
fram í fjölmiðlum ásamt fulltrú-
um verkalýðshreyfinga og sögðu
farir sínar ekki sléttar. Síðan þá
hefur Efling gengið hart fram
gegn starfsmannaleigunni með
það að markmiði að rétta hlut
starfsmannanna, sem Efling tel-
ur að hafi í reynd verið í nauð-
ungarvinnu fyrir MÍV og sýnd
vanvirðandi framkoma. Vinnu-
málastofnun (VMST) hefur einnig
látið málið sig varða og lagði í
mars 2,5 milljóna króna stjórn-
valdssekt á MÍV, sú ákvörðun var
kærð til félagsmálaráðuneytis sem
nú hefur kæruna til umfjöllunar.
Nýjustu vendingar
Ný vending átti sér svo stað á
dögunum er fyrirtækið Eldum
rétt var dregið inn í málið, en það
leigði starfsmenn af leigunni í
skamman tíma í byrjun árs. Efl-
ing hefur haldið því fram að Eld-
um rétt beri skylda til að rétta hlut
Rúmenana á grundvelli nýs laga-
ákvæðis í lögum um starfsmanna-
leigur sem kveður á um svonefnda
keðjuábyrgð.
Eldum rétt hefur borið því við
að keðjuábyrgð nái ekki til fyrir-
tækisins. Starfsmenn hafi unnið
að meðaltali í fjóra daga og þar
með skemur en þá 10 daga sem
þurfa að líða til að keðjuábyrgð
verði virk. Þessari fullyrðingu
hefur Efling hafnað, en gefur þó
ekki upp hversu marga daga téð-
ir starfsmenn eiga að hafa unnið
fyrir Eldum rétt, en alls störfuðu
þessir tilteknu starfsmenn aðeins
í mánuð í heildina fyrir MÍV, eða
frá 9. janúar til 7. febrúar.
Vinnumálastofnun brást seint
við
MÍV hefur, líkt og áður segir, kært
sektarákvörðun VMST til félags-
málaráðuneytis, sem hefur enn
ekki úrskurðað í málinu. Skýrist
það líklega að nokkru leyti af
seinagangi VMST að bregð-
ast við upplýsinga- og um-
sagnarbeiðnum ráðu-
neytisins sem þurfti að
margítreka áður en
VMST brást við. DV
hefur undir höndum bréf ráðu-
neytisins til VMST dagsett 23. maí,
þar sem vísað er til þess að um
þriðju ítrekun á gagnabeiðni sé að
ræða. Var VMST gefinn frestur til
31. maí til að senda umrædd gögn
eða koma með skýringu á töfum.
Blaðamaður bar efni bréfs-
ins undir Unni Sverrisdóttur, for-
stjóra Vinnumálastofnunar, sem
staðfesti að ráðuneytið hefði í þrí-
gang þurft að ítreka beiðni sína á
tímabilinu 5. apríl til 23. maí áður
en VMST brást við. Í svari Unnar
segir:
„Félagsmálaráðuneytið óskaði
eftir umsögn Vinnumálastofnun-
ar um stjórnsýslukæru Manna
í vinnu þann 5. apríl. Send voru
ítrekunarbréf vegna þess erindis
6., 14. og 23. maí. Umsögn stofn-
unarinnar var send ráðuneytinu
þann 31. maí en það dróst því
miður vegna mikilla anna. Ráðu-
neytið óskaði eftir afriti af ráðn-
ingarsamningum þann 11. júní sl.
og voru þeir sendir ráðuneytinu í
síðustu viku.“
Þarna minnist Unnur á ráðn-
ingarsamninga sem VMST hafði
undir höndum, en samkvæmt
heimildarmönnum DV var staðl-
aður ráðningarsamningur sem
MÍV studdist við eftir umfjöllun
Kveiks sendur til Vinnumálastofn-
unar í haust en VMST hafi engar
athugasemdir gert. En Efling held-
ur því fram að það ákvæði sé ólög-
legt og ósanngjarnt. Þegar blaða-
maður bað Unni að staðfesta að
VMST hefði engar athugasemdir
gert við ráðningarsamninginn gat
hún þó ekki svarað:
„Vinnumálastofnun getur
ekki tjáð sig um einstök mál eða
einstök gögn sem henni berast í
tengslum við framkvæmd og eftir-
lit með hinum ýmsu lögum. Því er
ekki unnt að svara þessari spurn-
ingu.“
Gátu ekki staðfest að önnur
fyrirtæki hefðu greitt
Samkvæmt yfirlýsingum Eflingar
var Eldum rétt eina fyrirtækið
af þeim fjórum sem fengu send
kröfubréf, sem sýndi ekki sam-
starfsvilja. Hvorki Viðar Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Eflingar,
né Birkir Már Árnason, lögmaður
Réttar, sem annast málið fyrir
hönd Eflingar, gátu staðfest að
slíkar greiðslur hefðu átt sér
stað. Viðar vísaði á lögmann
Réttar og lögmaður Réttar
kvaðst ekki geta veitt upplýs-
ingar sökum þagnarskyldu.
„Fjögur notendafyrir-
tæki fengu slíka kröfu. Þrjú
þeirra féllust á hana án
andmæla en aðeins Eldum
rétt hafnaði,“ sagði á vef Efl-
ingar í byrjun mánaðar.
„Af fjórum notendafyrir-
tækjum svöruðu þrjú
þeirra innan upp-
gefins frests og
sýndu full-
an sam-
starfsvilja.
Því ber að
fagna og er það vonandi til marks
um hið almenna viðhorf flestra ís-
lenskra fyrirtækja til brotastarf-
semi á vinnumarkaði,“ sagði Við-
ar Þorsteinsson í Fréttablaðinu í
vikunni.
Fyrri yfirlýsingin á vef Eflingar
gefur sterkt til kynna að kröfurn-
ar hafi verið greiddar þótt það sé
ekki sagt berum orðum. Heldur
frábrugðið er orðalag í grein Við-
ars sem talar þar um fullan sam-
starfsvilja, en ekki um að fallist
hafi verið á kröfurnar.
Röng fullyrðing og gagnrýnis-
vert athæfi
Í svari Samtaka atvinnulífsins við
fyrirspurn blaðamanns frá því í
júní er krafa á hendur notendafyr-
irtækjum MÍV sögð: „svo óskýr að
engin vegur var að taka afstöðu til
hennar“.
„Í [kröfu]bréfinu var með vísan
til laga um greiðslu verkkaups því
haldið fram að allur frádráttur frá
launum teldist ólögmætur. Þetta
er röng fullyrðing og er gagnrýn-
isvert að lögmaður stéttarfélags
sendi frá sér, gegn betri vitund,
fullyrðingu um meint lögbrot
starfsmannaleigu með það
að markmiði að fá þriðja
aðila til að greiða kröfu
sem ekki virðist vera fyrir
hendi.“
Enn fremur:
„Samábyrgð á laun-
um skv. lögum um starfs-
mannaleigur nær til
vangoldinna lág-
markslauna og
annarra van-
goldinna
launaþátta.
Ábyrgð-
in nær þó
ekki til vangoldinna orlofslauna.
Í lögum um starfsmannaleigur
er sú krafa gerð að starfsmaður
starfsmannaleigu geri notenda-
fyrirtæki grein fyrir í hverju van-
efnd starfsmannaleigunnar hef-
ur falist, m.a. hvenær krafan féll
í gjalddaga. Krafa skv. bréfi lög-
manns Eflingar var hins vegar svo
óskýr að enginn vegur var að taka
afstöðu til hennar.“
Fullt erindi til að efast um
kröfurnar
Hvorki Efling né lögmaður Rétt-
ar gátu staðfest að önnur fyrirtæki
í viðskiptum við MÍV hafi greitt
kröfur starfsmannanna, en sam-
kvæmt heimildarmönnum blaða-
manns hafa engar slíkar greiðsl-
ur átt sér stað. Vinnumálastofnun
hvorki hafnar því né staðfestir að
ráðningarsamningur með um-
deildu frádráttarákvæði hafi borist
þeim til samþykktar og engar
athugasemdir gerðar. Þrátt fyrir að
Efling og Réttur hafi haldið fram
opinberlega ábyrgð Eldum rétt og
MÍV á að endurgreiða ólögmæta
frádráttarliði, þá eru Samtök at-
vinnulífsins á öðru máli.
Því er enn mörgum spurning-
um ósvarað í þessu máli og verð-
ur afar fróðlegt að fylgjast með
áframhaldinu þegar og ef málið
verður tekið til dóms. Kröfurnar
eru afar umdeildar og greinir til
að mynda lögmenn Eflingar og
lögmenn Samtaka atvinnulífs-
ins, sem og lögmenn Eldum rétt,
á um réttmæti þeirra. Því ætti
það í raun ekki að sæta furðu
að Eldum rétt hafi kosið
að láta reyna á lögmæti
þeirra fyrir dómi, frem-
ur en að greiða í blindni
bara vegna þess að Efl-
ing sagði þeim að gera
það. n
2. október 2018 – Kveikur fjallar um
slæman aðbúnað og stöðu starfsmanna
MÍV
Janúar 2019 Eldum rétt gerir samning
við MÍV vegna tímabundinnar leigu starfs-
fólks sökum anna
7. febrúar 2019 – Rúmenskir starfs-
menn MÍV stíga fram í sjónvarpsfréttum
með fulltrúum Verkalýðshreyfinga
8. febrúar 2019 – Efling tilkynnir að
mál rúmenskra starfsmanna sé í vinnslu
hjá félaginu
28. febrúar 2019 – Efling tilkynnir að
Rétti lögmannsstofu hafi verið falið að
gæta hagsmuna starfsmanna
11. mars. 2019 – VMST leggur 2,5 millj-
óna króna stjórnvaldssekt á MÍV
3. apríl 2019 – MÍV kærir stjórnvalds-
sekt til félagsmálaráðuneytis
5. apríl 2019 – Félagsmálaráðuneyti
óskar eftir upplýsingum og umsögn frá
VMST
6. maí 2019 – Félagsmálaráðuneyti
ítrekar beiðni við VMST
17. apríl 2019 – Réttur sendir fjórum
notendafyrirtækjum MÍV kröfubréf á
grundvelli keðjuábyrgðar
10. maí 2019 – Eldum rétt neitar að
gangast við kröfum
14. maí 2019 – Félagsmálaráðuneyti
ítrekar beiðni við VMST
17. maí 2019 – MÍV óskar eftir upplýs-
ingum frá Eflingu um meint vangreidd
laun
21. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni
23. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni. Viðar
svarar og segir málið í vinnslu
31. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni. VMST
verður við beiðni félagsmálaráðuneytis og
sendir umbeðin gögn
19. júní 2019 – Fulltrúar Eflingar funda
með rúmenska sendiráðinu um mál MÍV
20. júní 2019 – MÍV ítrekar beiðni, Viðar
svarar og segir fyrirspurnir félagsmanna
hafa forgang hjá Eflingu
29. júní 2019 – Réttur, fyrir hönd.
Eflingar, leggur fram stefnu gegn MÍV og
Eldum Rétt í héraðsdómi.
5. júlí 2019 – Efling og Eldum rétt funda,
en komast ekki að samkomulagi
Erla Dóra
erladora@dv.is
n Efling fól Rétti að fara með
mál 18 rúmenskra verkamanna.
Í þessu máli er stefnt vegna
fjögurra þeirra.
n Starfsmennirnir fjórir sem
greint er frá í stefnu hafa ekki
komið áður fram í fjölmiðlum.
n MÍV halda fram að í stefnu sé
ranglega haldið fram að starfs-
mennirnir hafi dvalið í 6–8
manna herbergjum, í reynd hafi
þeir dvalið í tveggja manna her-
bergjum.
n Í málinu mun líka reyna á
hvort rúmenskir starfsmenn hafi
verið á sömu kjörum á fastráðn-
ir starfsmenn Eldum rétt. Ef svo
reynist ekki vera gæti Eldum rétt
þurft að greiða mismuninn þar á
milli.
n Bæði í stefnu og kröfubréfum
minnist Efling á 1. gr. laga um
verkkaup, án þess að minnast
á niðurlag ákvæðisins sem seg-
ir skuldajöfnun launa heimila ef
um það hefur verið samið.
n Dómkröfur í málinu hljóða
upp á 6,8 milljónir auk
málskostnaðar
Molar úr stefnu
Tímalína
Sólveig Anna Jónsdóttir
Viðar Þorsteinsson