Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 6
6 12. júlí 2019FRÉTTIR Vafasöm vegferð í nafni réttlætis – Krafa sem ekki virðist vera fyrir hendi n Greiddu hin fyrirtækin ? n Vinnumálastofnun veldur töfum n SA gagnrýna kröfur Eflingar B arátta Eflingar gegn starfs- mannaleigunni Menn í vinnu (MÍV) hefur ver- ið áberandi í fjölmiðlum undanfarið. Málið kom fyrst upp í kjölfar umfjöllunar fréttaskýr- ingarþáttarins Kveiks í haust og svo aftur í febrúar þegar nokkrir rúmenskir starfsmenn MÍV stigu fram í fjölmiðlum ásamt fulltrú- um verkalýðshreyfinga og sögðu farir sínar ekki sléttar. Síðan þá hefur Efling gengið hart fram gegn starfsmannaleigunni með það að markmiði að rétta hlut starfsmannanna, sem Efling tel- ur að hafi í reynd verið í nauð- ungarvinnu fyrir MÍV og sýnd vanvirðandi framkoma. Vinnu- málastofnun (VMST) hefur einnig látið málið sig varða og lagði í mars 2,5 milljóna króna stjórn- valdssekt á MÍV, sú ákvörðun var kærð til félagsmálaráðuneytis sem nú hefur kæruna til umfjöllunar. Nýjustu vendingar Ný vending átti sér svo stað á dögunum er fyrirtækið Eldum rétt var dregið inn í málið, en það leigði starfsmenn af leigunni í skamman tíma í byrjun árs. Efl- ing hefur haldið því fram að Eld- um rétt beri skylda til að rétta hlut Rúmenana á grundvelli nýs laga- ákvæðis í lögum um starfsmanna- leigur sem kveður á um svonefnda keðjuábyrgð. Eldum rétt hefur borið því við að keðjuábyrgð nái ekki til fyrir- tækisins. Starfsmenn hafi unnið að meðaltali í fjóra daga og þar með skemur en þá 10 daga sem þurfa að líða til að keðjuábyrgð verði virk. Þessari fullyrðingu hefur Efling hafnað, en gefur þó ekki upp hversu marga daga téð- ir starfsmenn eiga að hafa unnið fyrir Eldum rétt, en alls störfuðu þessir tilteknu starfsmenn aðeins í mánuð í heildina fyrir MÍV, eða frá 9. janúar til 7. febrúar. Vinnumálastofnun brást seint við MÍV hefur, líkt og áður segir, kært sektarákvörðun VMST til félags- málaráðuneytis, sem hefur enn ekki úrskurðað í málinu. Skýrist það líklega að nokkru leyti af seinagangi VMST að bregð- ast við upplýsinga- og um- sagnarbeiðnum ráðu- neytisins sem þurfti að margítreka áður en VMST brást við. DV hefur undir höndum bréf ráðu- neytisins til VMST dagsett 23. maí, þar sem vísað er til þess að um þriðju ítrekun á gagnabeiðni sé að ræða. Var VMST gefinn frestur til 31. maí til að senda umrædd gögn eða koma með skýringu á töfum. Blaðamaður bar efni bréfs- ins undir Unni Sverrisdóttur, for- stjóra Vinnumálastofnunar, sem staðfesti að ráðuneytið hefði í þrí- gang þurft að ítreka beiðni sína á tímabilinu 5. apríl til 23. maí áður en VMST brást við. Í svari Unnar segir: „Félagsmálaráðuneytið óskaði eftir umsögn Vinnumálastofnun- ar um stjórnsýslukæru Manna í vinnu þann 5. apríl. Send voru ítrekunarbréf vegna þess erindis 6., 14. og 23. maí. Umsögn stofn- unarinnar var send ráðuneytinu þann 31. maí en það dróst því miður vegna mikilla anna. Ráðu- neytið óskaði eftir afriti af ráðn- ingarsamningum þann 11. júní sl. og voru þeir sendir ráðuneytinu í síðustu viku.“ Þarna minnist Unnur á ráðn- ingarsamninga sem VMST hafði undir höndum, en samkvæmt heimildarmönnum DV var staðl- aður ráðningarsamningur sem MÍV studdist við eftir umfjöllun Kveiks sendur til Vinnumálastofn- unar í haust en VMST hafi engar athugasemdir gert. En Efling held- ur því fram að það ákvæði sé ólög- legt og ósanngjarnt. Þegar blaða- maður bað Unni að staðfesta að VMST hefði engar athugasemdir gert við ráðningarsamninginn gat hún þó ekki svarað: „Vinnumálastofnun getur ekki tjáð sig um einstök mál eða einstök gögn sem henni berast í tengslum við framkvæmd og eftir- lit með hinum ýmsu lögum. Því er ekki unnt að svara þessari spurn- ingu.“ Gátu ekki staðfest að önnur fyrirtæki hefðu greitt Samkvæmt yfirlýsingum Eflingar var Eldum rétt eina fyrirtækið af þeim fjórum sem fengu send kröfubréf, sem sýndi ekki sam- starfsvilja. Hvorki Viðar Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Eflingar, né Birkir Már Árnason, lögmaður Réttar, sem annast málið fyrir hönd Eflingar, gátu staðfest að slíkar greiðslur hefðu átt sér stað. Viðar vísaði á lögmann Réttar og lögmaður Réttar kvaðst ekki geta veitt upplýs- ingar sökum þagnarskyldu. „Fjögur notendafyrir- tæki fengu slíka kröfu. Þrjú þeirra féllust á hana án andmæla en aðeins Eldum rétt hafnaði,“ sagði á vef Efl- ingar í byrjun mánaðar. „Af fjórum notendafyrir- tækjum svöruðu þrjú þeirra innan upp- gefins frests og sýndu full- an sam- starfsvilja. Því ber að fagna og er það vonandi til marks um hið almenna viðhorf flestra ís- lenskra fyrirtækja til brotastarf- semi á vinnumarkaði,“ sagði Við- ar Þorsteinsson í Fréttablaðinu í vikunni. Fyrri yfirlýsingin á vef Eflingar gefur sterkt til kynna að kröfurn- ar hafi verið greiddar þótt það sé ekki sagt berum orðum. Heldur frábrugðið er orðalag í grein Við- ars sem talar þar um fullan sam- starfsvilja, en ekki um að fallist hafi verið á kröfurnar. Röng fullyrðing og gagnrýnis- vert athæfi Í svari Samtaka atvinnulífsins við fyrirspurn blaðamanns frá því í júní er krafa á hendur notendafyr- irtækjum MÍV sögð: „svo óskýr að engin vegur var að taka afstöðu til hennar“. „Í [kröfu]bréfinu var með vísan til laga um greiðslu verkkaups því haldið fram að allur frádráttur frá launum teldist ólögmætur. Þetta er röng fullyrðing og er gagnrýn- isvert að lögmaður stéttarfélags sendi frá sér, gegn betri vitund, fullyrðingu um meint lögbrot starfsmannaleigu með það að markmiði að fá þriðja aðila til að greiða kröfu sem ekki virðist vera fyrir hendi.“ Enn fremur: „Samábyrgð á laun- um skv. lögum um starfs- mannaleigur nær til vangoldinna lág- markslauna og annarra van- goldinna launaþátta. Ábyrgð- in nær þó ekki til vangoldinna orlofslauna. Í lögum um starfsmannaleigur er sú krafa gerð að starfsmaður starfsmannaleigu geri notenda- fyrirtæki grein fyrir í hverju van- efnd starfsmannaleigunnar hef- ur falist, m.a. hvenær krafan féll í gjalddaga. Krafa skv. bréfi lög- manns Eflingar var hins vegar svo óskýr að enginn vegur var að taka afstöðu til hennar.“ Fullt erindi til að efast um kröfurnar Hvorki Efling né lögmaður Rétt- ar gátu staðfest að önnur fyrirtæki í viðskiptum við MÍV hafi greitt kröfur starfsmannanna, en sam- kvæmt heimildarmönnum blaða- manns hafa engar slíkar greiðsl- ur átt sér stað. Vinnumálastofnun hvorki hafnar því né staðfestir að ráðningarsamningur með um- deildu frádráttarákvæði hafi borist þeim til samþykktar og engar athugasemdir gerðar. Þrátt fyrir að Efling og Réttur hafi haldið fram opinberlega ábyrgð Eldum rétt og MÍV á að endurgreiða ólögmæta frádráttarliði, þá eru Samtök at- vinnulífsins á öðru máli. Því er enn mörgum spurning- um ósvarað í þessu máli og verð- ur afar fróðlegt að fylgjast með áframhaldinu þegar og ef málið verður tekið til dóms. Kröfurnar eru afar umdeildar og greinir til að mynda lögmenn Eflingar og lögmenn Samtaka atvinnulífs- ins, sem og lögmenn Eldum rétt, á um réttmæti þeirra. Því ætti það í raun ekki að sæta furðu að Eldum rétt hafi kosið að láta reyna á lögmæti þeirra fyrir dómi, frem- ur en að greiða í blindni bara vegna þess að Efl- ing sagði þeim að gera það. n 2. október 2018 – Kveikur fjallar um slæman aðbúnað og stöðu starfsmanna MÍV Janúar 2019 Eldum rétt gerir samning við MÍV vegna tímabundinnar leigu starfs- fólks sökum anna 7. febrúar 2019 – Rúmenskir starfs- menn MÍV stíga fram í sjónvarpsfréttum með fulltrúum Verkalýðshreyfinga 8. febrúar 2019 – Efling tilkynnir að mál rúmenskra starfsmanna sé í vinnslu hjá félaginu 28. febrúar 2019 – Efling tilkynnir að Rétti lögmannsstofu hafi verið falið að gæta hagsmuna starfsmanna 11. mars. 2019 – VMST leggur 2,5 millj- óna króna stjórnvaldssekt á MÍV 3. apríl 2019 – MÍV kærir stjórnvalds- sekt til félagsmálaráðuneytis 5. apríl 2019 – Félagsmálaráðuneyti óskar eftir upplýsingum og umsögn frá VMST 6. maí 2019 – Félagsmálaráðuneyti ítrekar beiðni við VMST 17. apríl 2019 – Réttur sendir fjórum notendafyrirtækjum MÍV kröfubréf á grundvelli keðjuábyrgðar 10. maí 2019 – Eldum rétt neitar að gangast við kröfum 14. maí 2019 – Félagsmálaráðuneyti ítrekar beiðni við VMST 17. maí 2019 – MÍV óskar eftir upplýs- ingum frá Eflingu um meint vangreidd laun 21. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni 23. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni. Viðar svarar og segir málið í vinnslu 31. maí 2019 – MÍV ítrekar beiðni. VMST verður við beiðni félagsmálaráðuneytis og sendir umbeðin gögn 19. júní 2019 – Fulltrúar Eflingar funda með rúmenska sendiráðinu um mál MÍV 20. júní 2019 – MÍV ítrekar beiðni, Viðar svarar og segir fyrirspurnir félagsmanna hafa forgang hjá Eflingu 29. júní 2019 – Réttur, fyrir hönd. Eflingar, leggur fram stefnu gegn MÍV og Eldum Rétt í héraðsdómi. 5. júlí 2019 – Efling og Eldum rétt funda, en komast ekki að samkomulagi Erla Dóra erladora@dv.is n Efling fól Rétti að fara með mál 18 rúmenskra verkamanna. Í þessu máli er stefnt vegna fjögurra þeirra. n Starfsmennirnir fjórir sem greint er frá í stefnu hafa ekki komið áður fram í fjölmiðlum. n MÍV halda fram að í stefnu sé ranglega haldið fram að starfs- mennirnir hafi dvalið í 6–8 manna herbergjum, í reynd hafi þeir dvalið í tveggja manna her- bergjum. n Í málinu mun líka reyna á hvort rúmenskir starfsmenn hafi verið á sömu kjörum á fastráðn- ir starfsmenn Eldum rétt. Ef svo reynist ekki vera gæti Eldum rétt þurft að greiða mismuninn þar á milli. n Bæði í stefnu og kröfubréfum minnist Efling á 1. gr. laga um verkkaup, án þess að minnast á niðurlag ákvæðisins sem seg- ir skuldajöfnun launa heimila ef um það hefur verið samið. n Dómkröfur í málinu hljóða upp á 6,8 milljónir auk málskostnaðar Molar úr stefnu Tímalína Sólveig Anna Jónsdóttir Viðar Þorsteinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.