Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 11
12. júlí 2019 FRÉTTIR 11
„Þetta er búið að vera algjör hryllingur“
n Kanadísk fjölskylda í mál við Sjóvá n Fær engar bætur vegna andláts fjölskylduföðurins n „Við erum eyðilögð“ n Safna fyrir málskostnaði
hefði komið auga á þessa stað-
reynd í tæka tíð hefði fjölskylda
Grants Wagstaff getað höfðað
skaðabótamál í Bandaríkjunum
og átt þar von á margfalt hærri
bótum vegna fráfalls hans ef mál-
ið ynnist. Tveggja ára fyrningar-
frestur í Bandaríkjunum leið hins
vegar í ágúst 2017 án þess að nokk-
uð væri að gert ytra. Öll sund virð-
ast því lokuð fyrir fjölskylduna þar
í landi,“ segir enn fremur í grein
Fréttablaðsins.
Ætla að ná fram réttlæti
Fjölskyldan hyggst fara með mál-
ið fyrir dómstóla á Íslandi, en það
kostar sitt. Hafa þau því hrund-
ið af stað söfnun á vefsíðunni
Gofundme.com.
„Hann skildi eftir sig þrjú börn
og eiginkonu í Kanada. Aðstæður
slyssins hafa verið til rannsóknar
í nokkur ár og á meðan hefur fjöl-
skyldan þurft að bíða eftir bótum frá
tryggingafélaginu,“ segir Sarah og
bætir við að faðir hennar hafi verið
aðal fyrirvinna fjölskyldunnar.
Rannsókn málsins lauk á sein-
asta ári og segir Sarah að eftir enda-
lausa bið eftir svörum hafi fjöl-
skyldunni að lokum verið neitað
um bætur, bæði frá fjölskyldunni
sem réð föður hennar og einnig frá
Sjóvá tryggingafélagi.
„Sjóvá heldur því fram að hann
hafi verið „flugmaður ekki að
fljúga“ sem þýðir að engar bætur
verða greiddar fyrr en málið hefur
verið tekið fyrir hjá dómstólum.“
Þá er fjölskyldan ósátt við að
tryggingafélagið Sjóvá hafi notast
við upplýsingar úr skýrslu rann-
sóknarnefndar samgönguslysa
og telur Sarah að slíkt sé ólöglegt.
Þá telur hún að skilgreining rann-
sóknarnefndar samgönguslysa sé
einfaldlega ekki rétt. Líkt og fyrr
segir var faðir hennar skilgreind-
ur sem „pilot not flying.“ Það skjóti
skökku við þar sem að flugvélin
sem um ræðir var ekki skilgreind
sem tveggja manna flugvél heldur
eins manns flugvél.
Þess má geta að tekið er fram í
skýrslum rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa að innihaldið sé ekki
ætlað til notkunar í þeim tilgangi
að ákvarða sök eða ábyrgð. Þá megi
ekki nota innihald skýrslnanna
sem sönnunargagn fyrir dómstól-
um.
„Okkur hefur verið tjáð að það sé
útilokað, eða að minnsta kosti afar
ólíklegt að við munum ekki fá rétt-
læti fyrir dómstólum,“ segir Sarah
jafnframt. Fjölskyldan hyggst fara
með málið fyrir dóm á þessu ári.
Sarah segir fjölskylduna þó engan
veginn hafa efni á málaferlunum.
Þau leita því allra leiða til að geta
náð fram réttlæti.
Ein leið sem þau hafa farið er að
hrinda af stað fyrrnefndri söfnun
á vef Gofundme.com og óska eftir
frjálsum fjárframlögum. Vonast
þau til að ná að safna 100 þúsund
Bandaríkjadölum. Að sögn Söruh
mun söfnunarféð fara í málskostn-
að auk ferðakostnaðar.
Hún segir fráfall föður síns
hafa skilið eftir sig gríðarlega stórt
skarð og fjölskyldan hafi verið skil-
in eftir í miklu áfalli. Föðuramma
hennar missti annan son sinn,
frænda Söruh, úr hjartaáfalli að-
eins nokkrum mánuðum áður en
slysið varð.
Í samtali við blaðamann segir
Sarah föður sinn að mestu leyti
hafa haldið fjölskyldunni uppi fjár-
hagslega. Nú eigi þau systkinin ekki
lengur þetta bakland.
„Hann var með langhæstu
tekjurnar og hann passaði upp á
okkur öll. Núna erum við að berj-
ast í bökkum við að borga fyrir hluti
sem við vitum að hann hefði hjálp-
að okkur með, eins og skólagjöld,
fasteignakaup, brúðkaup og þess
háttar. En missirinn er auðvitað
ekki bara fjárhagslegur. Við erum
búin að missa pabba úr lífi okkar.“
Hún segir málið opið og þau
hafi því ekki verið í neinum sam-
skiptum við fjölskylduna sem réð
föður hennar til að ferja vélina
þennan dag. „Sjóvá hefur tjáð okk-
ur að dómstólar verði að úrskurða
í málinu. Við eigum engra kosta
völ.“
Einstakur
Í minningargrein sem rituð var
á sínum tíma kemur fram að
Grant hafi látist við að gera það
sem hann elskaði mest af öllu
– að fljúga. Hann tók einkaflug-
mannspróf 16 ára gamall og lauk
síðar meir atvinnuflugmannsprófi.
Hann flaug víða um heim og víkk-
aði sjóndeildarhringinn; lifði
meðal annars af flóðbylgjurnar
við Indlandshaf árið 2004 og tók
þátt í björgunaraðgerðum. Hann
elskaði íþróttir, hafnabolta mest af
öllu, og var þjálfari í hafnaboltaliði
allra barna sinna.
Sarah ritaði einnig minningar-
grein á sínum tíma.
„Samband okkar var einstak-
lega opinskátt og náið og við gát-
um endalaust rætt um daginn og
veginn,“ ritaði hún meðal annars.
„Það var ekkert sem ég gat ekki
rætt við hann um og ég átti alltaf
stuðning hans vísan. Hann var
vanur að segja að það væri al-
gjörlega tilgangslaust að stressa
sig yfir litlu hlutunum í lífinu, og
að hann vildi ekkert frekar en að
ég væri hamingjusöm og mér liði
vel.“
Sarah hitti föður sinn í seinasta
skipti rúmlega viku áður en hann
lést og segist hafa skilið við hann
„friðsæl og sterk.“
Hún segir fráfall föður síns hafa
veitt henni hvatningu til að leggj-
ast í ferðalög, og þannig ætli hún
að heiðra sitt eigið líf um leið og
hún heiðrar minningu föður síns.
Í minningarathöfn föður síns
hélt Sarah sömuleiðis ræðu.
„Hann var ótrúlega góður
pabbi, og fyrir mér þýðir það að
hann var líka ótrúlega góður vin-
ur,“ sagði Sarah meðal annars.
„Pabbi minn var alltaf til stað-
ar fyrir mig tilfinningalega og kom
fram við mig af hreinskilni, sem
hefur kennt mér að njóta lífsins og
umgangast það af ást og virðingu.
Takk pabbi, þú varst frábær
manneskja og ótrúlegur pabbi, ég
elska þig svo mikið.“ n
Arngrímur Jóhannsson
Slysstaður Flugvélin
brotlenti í Barkárdal.
Beaver N610LC Flugvélin daginn fyrir ferðina örlagaríku.
Jóladagur Fjölskyldan saman á jóladag.
MYND: GOOGLE EARTH