Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 34
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Með puttann á púlsinum
í brjóstagjafarráðgjöf
MÓÐURÁST:
Sérvöruverslunin Móðurást hefur verið starfrækt við Lauga veginn í um sautján ár. Í
versluninni fást ýmsar ungbarnavörur
sem henta vel fyrir börn frá fæðingu
fram á annað ár og hvort sem þau
eru á brjósti eða ekki. „Ég sel allt frá
snuðum, leikföngum og fatnaði til
barnakerra og vagna, svo eitthvað
sé nefnt,“ segir Guðrún Jónasdóttir,
menntaður brjóstagjafarráðgjafi og
eigandi verslunarinnar.
Menntaður brjóstagjafarráðgjafi
„Mín sérstaða er sú að ég veiti ráðgjöf
í brjóstagjöf. Staðreyndin er sú að
mæður, þá sérstaklega nýbakaðar
mæður, fá mikið af upplýsingum frá
umhverfi sínu um hvernig þær eigi að
haga brjóstagjöfinni. Oft geta þessar
upplýsingar verið misvísandi því þær
byggjast að miklu leyti á persónu
legri reynslu. Auðvitað er alltaf gott
að ráðfæra sig við fólk sem hefur
reynslu af brjóstagjöf, en það er líka
mikilvægt, sérstaklega ef það koma
upp einhver vandamál, að tala við
menntaðan brjóstagjafarráðgjafa.
Ég fer til dæmis í endurmenntun
á fimm ára fresti til að viðhalda
menntun minni. Það er sífellt verið
að gera nýjar rannsóknir og próf
anir á þessu sviði. Einnig koma nýjar
vörur á markaðinn og því er mikil
vægt að vera með puttann á púls
inum til þess að geta veitt bestu og
persónulegustu ráðgjöf sem hugsast
getur,“ segir Guðrún.
Leigir út mjaltavélar og ungbarna-
vogir
Þegar Guðrún stofnaði verslunina
var um sannkallaða frumkvöðla
starfsemi að ræða sem rekin var
af fallegri hugsjón. Guðrún hóf árið
1992 að kaupa brjóstadælur og leigja
þær út. „Ég eignaðist sjálf fyrirbura
árið 1987 og upp úr því stofnuðum
við nokkur saman stuðningshóp fyrir
fyrirburaforeldra. Þá áttaði ég mig á
því að þetta vantaði hér á Íslandi. Ég
keypti mjaltavélar dýrum dómum og
leigði þær út. Einnig fór ég að leigja út
vogir fyrir ungbörn. Svona var enginn
að gera á Íslandi og ég gerði mér
fljótt grein fyrir því að það vantaði
mikið upp á þjónustuna við mæður
nýfæddra barna.“
Ómetanleg tilfinning
„Við leigjum bæði ungbarnavigtirnar
og mjaltavélarnar út um allt land, en
það eru því miður sárafáar sér
vöruverslanir fyrir ungbörn að finna
á landsbyggðinni. Því gera margir
sér ferð til Reykjavíkur til þess að fá
ráðgjöf hjá mér í brjóstagjöf og skoða
vöruúrvalið. Ég er mjög lánsöm að
geta starfað við það sem ég hef unun
af að gera og þykir mér alltaf vænt
um að heyra aftur frá þeim sem ég
hef veitt ráðgjöf. Það er ómetanleg
tilfinning að vita til þess að maður
hafi getað hjálpað.“
Kvarta sáran yfir skorti á með-
göngusundfötum
„Auðvitað er ég með gríðarlegt úrval
af alls kyns brjóstagjafarvörum og
ráðlegg konum með börn á brjósti
hvaða vörur þær geti notað til þess
að auðvelda brjóstagjöfina.
Einnig var ég að fá stóra sendingu
af bæði brjóstagjafarhöldurum og
meðgöngusundbolum.
Konur hafa kvartað sáran yfir því að
lítið úrval sé af slíkum vörum á Íslandi
og því vil ég bæta úr því með því að
bjóða upp á gott úrval af þessum
vörum. Ég er einnig með frábært
úrval af burðarsjölum og burðarpok
um fyrir börn,“ segir Guðrún.
Skemmtileg leikföng
Þroskaleikföngin frá Lamaze og
Chicco eru sívinsæl og dúkkan Lottie
er ótrúlega skemmtileg fyrir eldri
börn. Dúkkan er í réttum stærðar
hlutföllum og einnig fæst fjöldi fylgi
hluta fyrir hana.
Leikföng handa þeim allra yngstu.
Þess má geta að Móðurást er
eina verslunin á Íslandi þar sem
Silvercrossbarnavagnarnir fást.
Annars eru bara netverslanir með
þessa vagna.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefversluninni modurast.is.
Sumar vörur eru eingöngu til sölu
í vefversluninni en það er engu að
síður hægt að sækja þær í versl-
unina.
Móðurást er staðsett að Laugavegi
178, við hliðina á gamla útvarps-
húsinu.
Sími: 564-1451
Netfang: modurast@modurast.is
Opnunartími er alla virka daga kl.
11–18 og laugardaga kl. 12–16.