Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 16
16 12. júlí 2019FRÉTTIR
n Helgi í Góu ómyrkur í máli um morðingja sonar síns n „Þeir sem fremja
svona hryllilega glæpi ættu að fá það sama til baka.“
É
g hef mjög einfalda skoðun
á þessu. Það ætti að vera
auga fyrir auga og tönn fyrir
tönn. Ég hef bara þessa einu
skoðun og þetta þyrftu menn þá
að vita áður en þeir ákveða að taka
líf annarra. Menn sem hafa svona
hugsunarhátt þyrftu að geta vitað
að ef þeir taka líf annarra þá verði
líf þeirra líka tekið,“ segir Helgi
Vilhjálmsson, oftast kenndur við
Góu, í einkaviðtali við DV.
Árið 2010 varð Gunnar Rúnar
Sigurþórsson syni Helga, Hann-
esi Þór Helgasyni, að bana með
hrottalegum hætti. Hann var
dæmdur ósakhæfur í héraðs-
dómi en Hæstiréttur sneri þeim
dómi við, úrskurðaði Gunnar
Rúnar sakhæfan og dæmdi hann
í sextán ára fangelsi. Samkvæmt
reglum um afplánun verður sak-
borningur sem sakfelldur hefur
verið fyrir glæp af þessu tagi að af-
plána minnst tvo þriðju hluta af
dómnum. En til eru úrræði sem
gera föngum kleift að ganga um
frjálsir undir eftirliti meðan á af-
plánun stendur, til dæmis í formi
dagsleyfa eða búsetu heima með
ökklaband. Gunnar Rúnar fékk
slíkt úrræði árið 2017 og undan-
farið hafa borist sögusagnir um
að hann sé á ferli í Hafnarfirði og
víðar. Sá orðrómur að Gunnar
Rúnar gangi laus fékkst endan-
lega staðfestur er kom í ljós að
hann er skráður á stefnumótafor-
ritið Tinder, en fangar sem sitja
inni hafa ekki aðgang að interneti.
Ljóst er að Gunnar Rúnar hefur
enn ekki afplánað tvo þriðju hluta
af dómi sínum. Það er svo aftur
annað mál að margir telja að mað-
ur sem hefur framið svo alvarlegt
brot ætti ekki að geta fengið afslátt
af afplánun.
„Sonur minn barðist til síðasta
blóðdropa“
Helgi í Góu er klárlega í þeim hópi.
Hann segir sársaukann og áfall-
ið sem glæpur Gunnars Rúnars
hefur valdið fjölskyldu hans vera
eitthvað sem vart sé hægt að færa
í orð.
„Enginn gerir sér grein fyrir
því hvað svona er hrikalegt fyrr
en hann lendir í því sjálfur,“ seg-
ir Helgi. Þegar hann ýjar að því að
dauðarefsing sé réttlátur dómur
þá meinar hann ekki fyrir öll morð
eða manndráp. „Þessi maður drap
ekki bara einn mann, hann stakk
hann nítján sinnum með hnífi –
nítján sinnum.“ Helgi endurtekur
töluna með áhersluþunga. „Þetta
er bara eins og hakkavél. Þetta var
allt ákveðið hjá honum fyrirfram.
Sonur minn barðist til síðasta
blóðdropa enda var blóð úti um
allt. Hann varðist og morðinginn
varð taugaveiklaður yfir sjálfs-
vörninni og dró hann fram í stofu.
Ég bara fer ekki ofan af því að þeir
sem fremja svona hryllilega glæpi
ættu að fá það sama í staðinn..“
Helgi segist vona að ef Gunnar
Rúnar verður á vegi hans þá beri
hann ekki kennsl á hann því
annars veit hann ekki hvað hann
myndi gera. Hann ítrekar að þess-
ar tilfinningar skilji aðeins fylli-
lega sá sem hefur lent í þessum
aðstæðum.
Menn sem setja svona lög og
reglur – hafa þeir lent í þessu
sjálfir?
Varðandi þyngd dómsins sem
Gunnar Rúnar fékk, heimildir til
að afplána ekki allan dóminn, og
að hann gangi laus þó að hann sé
ekki búinn að afplána, þá er Helgi
ómyrkur í máli.
„Menn sem setja svona lög og
reglur – hafa þeir einhvern tíma
lent í svona sjálfir? Að sonur þeirra
eða dóttir sé myrt af yfirlögðu ráði,
með köldu blóði? Það efast ég um.
En hafa þeir rætt við þá sem lenda
í slíku og sett sig í spor þeirra? Það
efast ég líka um.“
Aðspurður segist Helgi vita að
sést hafi til Gunnars Rúnars á ferli
og hann veit um skráninguna á
Tinder:
„Jú, ég frétti það. Ég er auðvitað
ekkert í slíku sjálfur og kann ekk-
ert á tölvur, en ég fæ að vita þetta
allt saman. Ég endurtek bara að ég
vona að ég þekki manninn ekki ef
ég sé hann. En hann gerði mikla
vitleysu með því að láta vita af sér
á stefnumótasíðu. Hann er stór-
klikkaður. Enda sögðu þeir menn
sem yfirheyrðu hann á sínum tíma
að hann væri stórhættulegur.“
Þegar hann er spurður hvernig
tilfinning það sé fyrir fjölskylduna
að vita að morðingi Hannesar
gangi laus segir Helgi: „Maður er
að reyna að gleyma þessu, en því
miður, það er ekki hægt …“ Rödd
Helga brestur í stutta stund. Síð-
an harkar hann af sér. „Maður
hugsar um þetta á hverjum degi.
Þess vegna tek ég svona til orða.
Þeir sem fremja svona hryllilega
glæpi ættu að fá það sama til baka.
Minni skoðun í þessu verður ekki
haggað. Refsingin þarf að vera
þannig að ef þú gerir svona og ert
búinn að ákveða það fyrirfram, þá
þarftu að vita hvað bíður þín. Og
það á ekkert að vera að púkka upp
á menn eins og þennan.“
Eyðileggingarmáttur glæpsins
„Hann drap ekki bara mann, þessi
maður sem hann myrti átti ungt
barn. Og þetta fór með móður
hans, konuna mína, í gröfina. Það
sama hefur gerst í öðru morðmáli
hér á landi, morðið á syni varð til
þess að móðirin missti heilsu og
líf. Svona skilur eftir sig sár í allri
fjölskyldunni til langframa. Þetta
er svo mikill hryllingur að maður
getur varla talað um það. Samt er
ég hrifinn af því að þið fjölmiðl-
ar sýnið þessu áhuga því fólk átt-
ar sig ekki á því hvað er í gangi.
Fréttaflutningur af svona málum
er nauðsynlegur,“ segir Helgi Vil-
hjálmsson – Helgi í Góu. n
Morð Gunnars Rúnars á Hannesi er flokkað sem ástríðuglæpur.
Gunnar Rúnar birti ástarjátningu til þáverandi unnustu Hannesar
árið 2009. Ástarjátninguna birti Gunnar Rúnar á YouTube og vakti
myndbandið mikla athygli fjölmiðla og Hannesar. Ári síðar myrti
Gunnar Rúnar Hannes, en í yfirheyrslum lögreglu sagðist hann hafa
hugsað um að myrða hann lengi. Hann sagðist enn fremur hafa viljað
losna við Hannes til að hann og unnusta Hannesar gætu verið saman.
Gunnar Rúnar var metinn ósakhæfur í Héraðsdómi Reykjaness
árið 2011, á grundvelli vitnisburða þriggja geðlækna. Hann var í kjöl-
farið vistaður á Sogni. Í dómnum kemur meðal annars fram að Gunn-
ar Rúnar sé hættulegur og að hann hefði sjálfur lýst ofbeldisfullum
hugsunum gagnvart fanga, á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi. Því
eigi hann að sæta strangri öryggisgæslu auk meðferðar, á grundvelli
réttaröryggis. Fjölskylda Hannesar lýsti því yfir opinberlega að úr-
skurðurinn væri vonbrigði. Hæstiréttur sneri hins vegar við dómi
héraðsdóms í október 2011 og mat það svo að Gunnar væri sakhæf-
ur. Hann var í kjölfarið dæmdur til sextán ára fangelsisvistar. Í dómn-
um kemur fram að ásetningur Gunnars Rúnars hafi verið einbeittur
þegar hann stakk Hannes ítrekað. Samkvæmt sérfræðimati þriggja
geðlækna þjáðist Gunnar af ástsýki (erotomania), ranghugmyndum
(fixed delusions) og persónuleikaröskun (dissociative disorder) sem
lýsir sér í tvískiptum eða rofnum persónuleika.
„Ég vona að ég þekki
manninn ekki ef ég sé hann“
Ástríðuglæpur
„Hann drap ekki
bara mann, þessi
maður sem hann myrti
átti ungt barn. Og þetta
fór með móður hans,
konuna mína, í gröfina.
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is