Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 6
6 19. júlí 2019FRÉTTIR
46 heltust úr lestinni og þá voru eftir fjórir
A
ðeins hefur verið lögð fram
stefna fyrir hönd fjögurra
einstaklinga sem störf-
uðu fyrir starfsmannaleig-
una Menn í vinnu, en alls hafa
um fimmtíu starfsmenn leitað til
Eflingar eftir aðstoð. Þessir fjórir
starfsmenn höfðu starfað allt í allt
í tæpan mánuð hjá starfsmanna-
leigunni. Óljóst er hvar mál hinna
46 starfsmannanna eru stödd.
Ekki fæst staðfest að önnur not-
endafyrirtæki starfsmannaleig-
unnar hafi greitt kröfurnar sem
voru lagðar fram, en hvorki Efling
né lögmaður þeirra gátu staðfest
að slíkt hefði átt sér stað.
Efling hefur ekki haft samband
síðan í febrúar
Romeo Sarga varð eftirminnilega
andlit baráttunnar eftir að hann
steig fram í fréttum og greindi
frá aðstæðum sínum og annarra
kollega hjá starfsmannaleigunni.
Hann er ekki meðal þeirra fjögurra
sem stefnt hefur verið fyrir, og veit
ekki fyrir víst hvort lögmannsstof-
an Réttur sé yfirhöfuð að vinna í
máli hans.
„Ég hef ekkert heyrt síðan í
febrúar, og skil ekki hvers vegna,“
segir Romeo í samtali við blaða-
mann. „Þetta gerir mig ákaflega
kvíðinn og reiðan. Hvert get ég
leitað? Ég er mjög leiður yfir þessu,
ég bjóst ekki við að Efling myndi
draga mig á asnaeyrunum með
þessum hætti.“ Hann segir að þeir
starfsmenn sem greinir frá í stefn-
unni séu þeir sem unnu styst fyrir
Menn í vinnu. „Til hvers að koma
hingað og vinna myrkranna á milli
í rigningu og roki? Sumir okkar eru
með fátæk börn á framfæri. Ég er
bara orðlaus.“
Efling mismunar
Valeriu Marius Peptenatu starfaði
fyrir Menn í vinnu þegar frétta-
skýringarþátturinn Kveikur fjall-
aði um bága stöðu erlendra verka-
manna í október í fyrra. Hann
hefur staðið í ströngu við að reyna
að fá upplýsingar um hvar hans
mál er statt og sakar Eflingu um
mismunun. Af hverju gæta þau
bara hagsmuna fjögurra Rúmena
sem unnu bara stutt hjá leigunni
á meðan við sem unnum þarna í
mun lengri tíma erum ekki einu
sinni hluti af þessu ferli? Efling
mismunar.“ Hann leitaði fyrst til
Eflingar í september fyrir næstum
ári, en máli hans virðist ekki miða
neitt áfram.
Sakar Eflingu um að ljúga að
rúmenskum yfirvöldum
Valeriu er staddur í Rúmeníu og
fer fyrir hópi 32 fyrrverandi starfs-
manna MÍV. Eftir að Efling til-
kynnti í lok febrúar að Ragnari Að-
alsteinssyni hjá Rétti hefði verið
falið að gæta hagsmuna 18 verka-
manna leitaði hann til rúmenskra
yfirvalda eftir upplýsingum.
Í bréfi sem hann fékk sent frá
rúmenska utanríkisráðuneytinu
segir:
Samkvæmt upplýsingum frá
Eflingu voru starfsmenn beðnir um
að senda inn launaseðla og tíma-
skráningu sem hægt væri að nota
sem grundvöll fyrir kröfum. Þó svo
að 50 Rúmenar hafi upprunalega
leitað til Eflingar sendu aðeins fá-
einir þeirra fullnægjandi gögn,
mikill meirihluti þeirra yfirgaf Ís-
land og vildu þeir ekki kæra Menn
í vinnu til lögreglunnar. Rúm-
enska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn mun halda áfram að fylgjast
með þróun mála og verður einnig
í stöðugum samskiptum við viðeig-
andi stofnanir á Íslandi.
Í kjölfarið hafi Valeriu sam-
band við Eflingu og sakaði þau um
lygar. Hann hafi sent þeim allar
upplýsingar, bæði í tölvupósti og
bréfapósti. Þetta getur blaðamað-
ur staðfest því hann fékk samrit af
tölvupóstunum þegar þeir voru
sendir Eflingu. Einnig hafði starfs-
maður Eflingar staðfest móttöku
póstsins með tölvupósti. „Þetta er
bara leiksýning,“ segir Valeriu og
hyggst mótmæla fyrir utan skrif-
stofu íslenska ræðismannsins í
Rúmeníu í dag.
Segir kerfið ósanngjarnt
Valeriu hafði einnig samband
við túlk sem starfaði fyrir Eflingu
þegar málið kom upp og fékk þær
upplýsingar að aðeins væri unnið
í málum þeirra verkamanna sem
voru við störf í febrúar á þessu
ári. Blaðamaður hefur fengið að
sjá skjáskot af samtölunum og fær
þessi fullyrðing hans stoð í þeim
gögnum. Þar greinir túlkurinn
frá því að mál rúmensku verka-
mannanna séu flokkuð mismun-
andi eftir því hvort þeir hafi kvart-
að persónulega, eða sem hluti
af hópi sem kvartaði sameigin-
lega. Þeir sem leituðu til Eflingar
í febrúar hafi gert slíkt sameigin-
lega, en aðrir ekki. Þar lýsir túlk-
urinn því líka yfir að hann sé sam-
mála Valeriu um að kerfi Eflingar
sé ósanngjarnt og aðgerðir stéttar-
félagsins yfirborðskenndar.
Túlkurinn, sem vill ekki láta
nafn síns getið, vildi ekki tjá sig
frekar um málið í samtali við
blaðamann. Samtal hennar við
Valeriu hafi verið í trúnaði og hún
hefði ekkert við fjölmiðla að ræða.
Engin svör
Efling hefur ekki svarað spurning-
um blaðamanns um stöðu hinna
46 Rúmenanna sem til félagsins
leituðu. Blaðamaður hefur falast
eftir afdrifum þessara mála í tölu-
verðan tíma, en fátt verið um svör.
Lögmaður Eflingar neitar að svara
fyrirspurnum og vísar til þagnar-
skyldu. Hvorki Romeo né Valeriu
hafa fengið greitt og kannast ekki
við að nokkur kollegi þeirra hafi
fengið greitt.
Þeir fá takmarkaðar upplýs-
ingar og vita ekki hvar mál þeirra
standa. Að þeirra sögn er eins
komið með ríflega 30 aðra verka-
menn sem unnu fyrir MÍV. Þeir
fá heldur engin svör um af hverju
Rétti voru fengin aðeins 18 mál af
50 og hvað þá af hverju aðeins sé
stefnt fyrir hönd fjögurra þeirra.
Hvað með hina 46? n
Valeriu (lengst til vinstri) og fleiri á leið
að mótmæla.
Erla Dóra
erladora@dv.is
n Vita ekki hvort mál þeirra séu enn í vinnslu n Saka Eflingu um mismunun
Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson.
Romeo Sarga