Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 14
19. júlí 2019FRÉTTIR14
Spurning vikunnar Hver er helsta ógn mannkynsins í dag?
Xxxxxxxxxxxxx
Xxxxxxxxxxxxxxxxxx
Leiðari
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
MYND: EYÞÓR/DV
„Gróðurhúsaáhrifin.“
Linda Vilhjálmsdóttir
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Sandkorn
„Loftslagsbreytingar.“
Linda Hreggviðsdóttir
„Manneskjan sjálf.“
Arndís Jónsdóttir
„Maðurinn.“
Linda María
Þorsteinsdóttir
Úrelt höfundalög
Það vakti mikla athygli þegar
að DV sagði frá blekking-
um Sólrúnar Diego, áhuga-
konu um þrif, fyrr á þessu ári.
Sólrún hafði auglýst vörur á
samfélagsmiðlum sem unnusti
hennar seldi án þess að taka
fram hagsmunatengsl eða að
um auglýsingu væri að ræða. Þá
var einnig sett spurningarmerki
við leyfi um sölu á vörunum en
eftir umfjöllun DV var netversl-
un unnustans lokað. Stuttu eft-
ir umfjöllun DV barst ritstjórn
bréf frá lögmannsstofunni
LOGOS þar sem DV er bannað
að birta myndefni af samfélags-
miðlum Sólrúnar, hvort sem
það væru skjáskot eða tengill
á myndir. Jafnframt var leyfi
á notkun mynda úr fortíðinni
afturkallað. Vísar stofan í
höfundalög sem voru síðast
uppfærð árið 2016. Ljóst er að
lögin eru úrelt, enda ekki einu
orði minnst á samfélagsmiðla. Stafrænn harmleikur
D
V hefur sagt í vikunni sagt
fréttir af Böðvari Guð-
mundssyni. Böðvar er
ungur maður sem fékk
dóm árið 2014 fyrir kynferðislega
áreitni á hendur fjórtán ára dreng.
Auk þess fundust yfir fimm hund-
ruð myndir í tölvu hans og farsíma
af börnum í kynferðislegum stell-
ingum. Í flestum tilvikum voru
börnin í bleyju.
Í dómnum frá 2014 kemur fram
að Böðvar sé með ódæmigerða
einhverfu og sé í hárri áhættu fyrir
kynferðislegri hegðun gegn börn-
um. Einnig kemur fram að hann sé
haldinn barnagirnd og hafi blæti
fyrir bleyjum, snuðum og öðru
sem tengist ungbörnum.
DV hefur áður fjallað um
Böðvar en hann stundaði það að
setja sig í samband við mæður,
ræða við þær um bleyjunotkun
barna þeirra, undir því yfirskini
að hann ætti sjálfur börn, og
bjóðast til að passa börnin eða
falaðist eftir myndum af þeim. Nú
er Böðvar kominn á kreik aftur en
upp komst í vikunni að hann hefði
stolið mynd af íslensku barni til
að komast á nýjan leik í samband
við mæður ungbarna. Virkilega
óhugnanlegt og ein af verstu
martröðum foreldra.
Þrátt fyrir allt þetta og þrátt fyr-
ir allar upplýsingarnar sem liggja
fyrir um Böðvar getur lögreglan
ekkert gert fyrir þá foreldra sem
lenda í slíkum myndastuldi. Þeirra
hendur eru bundnar. Foreldrar
sem hafa lent í slíkum ógeðfelldum
myndaþjófnaði geta heldur ekkert
gert – nema þeir taki hreinlega
lögin í sínar eigin hendur, sem
hefur aldrei í sögunni fengið far-
sælan endi. Eftir stendur að mynd
af barni sem gæti verið þitt liggur
kyrfilega geymd í tölvu barna-
níðings og alltof óhugnanlegt að
ímynda sér við hvers konar tilefni
hún verður dregin fram á skjáinn í
fullri upplausn.
Hvers konar samfélagi búum
við eiginlega í? Hvernig getur það
staðist, ef dæmdur barnaníðingur
með blæti fyrir snuðum og
bleyjum getur stolið mynd af
grunlausum foreldrum til að svala
sínum þörfum, að ekkert sé að
gert? Hljómar þetta ekki eitthvað
bogið? Þetta virðist vera klassískt
dæmi sem endurtekur sig í sífellu
á Íslandi – það þarf eitthvað stór-
fenglega hræðilegt að gerast svo
gripið sé inn í.
Margoft hefur laga- og refsi-
rammi á Íslandi verið gagnrýndur.
Fangelsisdómar þykja of vægir. Við
það má bæta að dómskerfið virð-
ist gjörsamlega hafa misst af lest
síaukinna vinsælda samfélags-
miðla. Skilin á milli raunheims og
netheims verða sífellt minni og eft-
ir situr lögreglan með takmarkaða
lagaheimild vegna úrsérgenginna
laga. Þessu þarf að breyta og fljótt.
Tæknibyltingin bíður ekki eftir
okkur og það er gróf vanræksla að
ætla að bíða eftir að harmleikur
gerist beint fyrir framan tölvuskjá-
inn okkar. n
„Tæknibyltingin bíður
ekki eftir okkur og það er
gróf vanræksla að ætla að bíða
eftir að harmleikur gerist
Á meðan ungt fólk deyr
Heilbrigðisráðherra tilkynnti
í febrúar að 630 milljónum
skyldi varið í geðheilbrigðis-
mál á Íslandi. Heilsugæslan
ætti að sinna andlegum veik-
indum jafnt sem þeim líkam-
legu og Landspítalinn að sinna
börnum og ungmennum í
fíknivanda. Greindi hún svo frá
að undirbúningur væri þegar
hafinn. Það eru frábærar frétt-
ir, en verða nokkuð marklausar
nú nokkrum mánuðum síðar.
Landspítalinn þurfti að loka 15
plássum á bráðageðdeild. Þeir
sem eru í vanda og hafa hug á að
sækja meðferð þurfa að taka sér
stöðu aftast á löngum biðlista.
Albert Ísleifsson lét lífið þann
9. júlí. Hann fann hvergi hjálp.
Á meðan heldur kerfið áfram
að grotna niður og unga fólkið
okkar áfram að deyja.
Kirkja Hjálpræðishersins
í Mörkinni er nú í smíðum.
Mynd: Eyþór Árnason