Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 18
18 19. júlí 2019FRÉTTIR Einelti þrífst á meðal eldri borgara á Íslandi E inhverjir eru kannski beðnir um sitja annars staðar, bara af því þeir eru svo leiðinlegir eða vond lykt af þeim,“ segir starfs- maður á dvalarheimili í Reykjavík. Einelti þrífst á meðal eldri borgara í þjóðfélaginu og eru karlmenn oft- ar í hlutverki þolanda og helgast það af fjölda kvenna í félagsstarfi og á dvalarheimilum fyrir aldraða. Algengast er að eineltið sé af and- legum toga og lýsir það sér meðal annars í baktali, illu augnaráði og höfnun. Lítið er um að starfsfólk á dvalarheimilum fái formlega þjálf- un um einelti og ekki er sjálfsagt að starfsfólk sé meðvitað um eineltis- áætlanir á vinnustaðnum, séu þær áætlanir til staðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum Péturs Kára Ol- sen, en í tengslum við lokaverkefni sitt til BA-gráðu í tómstunda- og fé- lagsmálafræði við Háskóla Íslandi rannsakaði hann einelti á meðal eldri borgara á höfuðborgarsvæð- inu frá sjónarhorni starfsfólks. Baktal og ljótur munnsöfnuður Í tengslum við rannsóknina ræddi Pétur Kári við sex starfsmenn, allt konur, sem vinna á sex dvalar- og félagsheimilum eldri borgara. All- ar eiga þær það sameiginlegt að hafa fylgst með samskiptum eldri borgara frá degi til dags og sinna einnig mikilvægu hlutverki þegar grípa þarf inn í eineltismál. Tvær kvennanna starfa sem deildar- stjórar en hinar fjórar starfa sem verkefnastjóri, umsjónarmaður, leiðbeinandi og starfsmaður í að- hlynningu. Allar konurnar segjast hafa orðið vitni að einelti á sínum vinnustað og er andlegt einelti langalgengast. Algengt er að hegðunin sé bundin við tvo til þrjá einstaklinga og svo virðist sem einstaklingar eigi helst á hættu að verða fyrir einelti í mat- salnum. Aðrir staðir eru þó einnig nefndir til sögunnar, eins og vinnu- stofur eða opin rými. Aðeins ein kvennanna segist hafa orðið vitni að líkamlegu ein- elti og vitnar hún þar til atviks þegar einstaklingi í göngugrind var hrint af öðrum með betri göngufærni. Allar nefna þær dæmi um mikið baktal, að fólk sé útilokað og að ljótur munnsöfnuður sé ákveðið vandamál. Þá lýsir eineltið sér einnig í gríni á kostnað annarra og niðrandi orðbragði í samskiptum einstaklinga. Ein úr hópnum nefnir dæmi um baktal sem hún varð vitni að, en þá heyrði hún fólk segja um aðra að „þetta væri bara heilabilað og fatlað og vitlaust fólk og ætti ekkert heima hérna“. Önnur úr hópnum segir að „yfir- leitt gerist eitthvað í hverri viku“. „Það er verið að gera lítið úr fólki sem er kannski minna veikt en það sjálft.“ Konurnar geta verið grimmar Konurnar segja hegðun gerenda lýsa sér meðal annars í „stjórnsemi, frekju, umburðarleysi, neikvæðni og þröngsýni.“ Ein af þeim lýsir ger- endum sem einstaklingum „sem vilja hafa hlutina 100 prósent eins og þeir eiga að vera“. „„Svona hef- ur þetta alltaf verið“ er mjög ein- kennandi við þeirra hugarfar.“ Önnur bendir á að eldri gerend- ur eineltis séu oftar en ekki fólk sem hefur átt erfitt. „Það finnur kannski vanmáttinn og finnur einhvern sem hefur ekki sama styrkleika, finna veikan punkt á einhverjum og vilja bara ýta á hann til að upphefja sjálft sig.“ Þá kemur fram að töluverð kynjaskipting er á þolendum og gerendum. Þannig eru konur í meirihluta meðal gerenda, en karl- ar upplifa sig oftar sem þolendur. „Mér finnst það helst vera kon- urnar sem eru mikið að tala og segja ljótt um og við aðra, þær eru grimmar.“ Fram kemur að þeir sem eru veikari fyrir eru auðveldari skot- mörk fyrir gerendur og oft er gert grín að þeim einstaklingum. Ein konan nefnir dæmi um einstak- ling sem sé hættur að sækja í félags- starfið vegna framkomu annarra þjónustuþega í hans garð. Þá segir önnur að mikið sé um hópamynd- un, eða svokallaða „klíkumyndun.“ Þögla kynslóðin Fram kemur að ástæður eineltis meðal eldri borgara geti verið margþættar. Ein úr hópnum tengir ástæðuna að einhverju leyti við elliglöp og bendir á að fólk sem er komið á þennan aldur og jafnvel farið að tapa hluta af eigin getu, skilji ekki alveg af hverju. „Og af því að það skilur það ekki sjálft, þá byrjar það oft svona að acta out.“ Önnur bendir á að fólk haldi í öll sín einkenni í gegnum lífið: einstak- lingar breytist ekkert endilega þó að þeir eldist. „Þó maður verði gamall, þá verður maður ekki bara engill, skiljiði? Maður heldur öllum sínum einkennum allt lífið.“ Ein úr hópnum talar um hina „þöglu kynslóð.“ Kynslóðinni sem var kennt að tala ekki um vanda- málin. „Þetta er kynslóð sem að tók öllu kannski þegjandi, þau þurftu að hafa fyrir lífinu strax þegar þau voru ung eða jafnvel börn.“ Lítið um fræðslu Rannsóknin leiðir einnig í ljós að lítið er um að starfsfólk fái formlega þjálfun eða kennslu í því að stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn einelti. Fjórar af konunum sex hafa aldrei farið á sérstakt námskeið eða fengið formlega fræðslu um það hvernig best sé að bregðast við og taka á eineltismálum. Konurnar eru almennt sammála um mikil- vægi þess að bjóða upp á fræðslu og ein úr hópnum bendir á hversu mikið skorti á að boðið sé upp á fræðslu um þessi mál fyrir þessa kynslóð. Eineltisáætlanir og úrræði Þegar konurnar eru spurðar að því hvort þeirra vinnustaður sé með sérstaka eineltisáætlun og hvaða úrræði standi skjólstæðingum til boða eru svörin mismunandi. Tvær segjast ekki vera vissar, ein segir ekkert slíkt vera á hennar vinnu- stað og ein segist gera ráð fyrir að allir starfsstaðir Reykjavíkurborgar séu með einhvers konar áætlun. Sú sjötta bendir á að það séu „ein- hverjar áætlanir“ sem sviðið sjálft ætti að fara eftir, en viðurkennir að hafa lítið rætt við annað starfsfólk um þær. Þegar konurnar eru spurðar hvort einstaklingar geti verið reknir úr, vísað frá eða meinaður aðgang- ur að félagsstarfi vegna hegðun- ar eru flest svörin á þá leið að ekki hefði reynt á það enn sem komið er. Hins vegar talar ein þeirra um hálfgert ráðaleysi. „Svo veit maður aldrei hvað maður má gera. Þú get- ur allt í einu verið kærður fyrir það að vernda þitt umhverfi af því að þessi einstaklingur var vondur.“ Tómstundafræðingar væru frábær viðbót Pétur Kári segist ekki hafa áttað sig á í upphafi hversu greinileg þörf og vöntun er á fagfólki innan þessa sviðs. Allir viðmælendur tala um mikilvægi þess að tómstunda- fræðingar séu ráðnir í störf sem snúa að velferð eldri borgara, en af þeim fimm stöðum sem heimsóttir voru, var aðeins einn með starfandi tómstundafræðing. Pétur Kári tekur fram að þó svo að rannsóknina beri að taka alvar- lega þá alhæfi hún ekki um aðra samkomustaði eldri borgara í sam- félaginu. Þörf sé á frekari rannsókn- um til að skilja betur hvers vegna einelti meðal aldraða eigi sér stað og á sama tíma hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að það. „Gera má ráð fyrir því að ekki nokkur manneskja óski sér þess að verða fyrir einelti. Hvað þá þegar fólk er komið á eftirlaunaaldur, tímabil- ið sem oft er kennt við gull árin (e. golden years). Það er því mikilvægt að auka eineltisfræðslu fyrir aldraða sem og þá sem starfa með þeim,“ segir Pétur Kári og bætir við að tóm- stundafræðingar geti gegnt þar lykil- hlutverki en sérfræðiþekking þeirra fælist meðal annars í að leiða saman hópa, stuðla að félagslegum þroska, velferð og hæfni með fjölbreyttum viðfangsefnum. Eitthvað er í ólagi Pétur Kári segir niðurstöður rann- sóknarinnar í raun ekki hafa komið á óvart. „Í ljósi þess hvaða niðurstöðum rannsóknin skilaði er áhugavert að velta því fyrir sér hvort þessir öldr- uðu einstaklingar sem eru gerendur í þessari rannsókn hafi einnig verið að leggja aðra í einelti á sínum yngri árum. Miðað við kenningar í öldr- unarfræðum má gera ráð fyrir að svo sé, en samfellukenningin tekur einmitt á þessari vangaveltu. Sam- kvæmt henni reyna einstaklingar að halda í sín persónueinkenni og gildi út lífið. Með því fæst rökstuðning- ur fyrir því að einstaklingar sem eru gerendur eineltis í æsku séu líkleg- ir til að halda því áfram þegar á full- orðinsár er komið.“ Hann segir einnig áhugavert að velta því fyrir sér hvaða hugmyndir samfélagið hefur um hugtakið ein- elti. Það að einelti meðal eldri borg- ara hafi ekki verið rannsakað áður er að hans mati merkilegt. „Jafnvel gerir samfélagið ekki ráð fyrir því að fullorðnir og aldraðir einstaklingar leggi aðra í einelti, en á sama tíma samþykkir það og finnst það sjálfsagður hlutur að börn og unglingar verði fyrir einelti. Þarna er eitthvað í ólagi og spurningin er hvort við sem samfélag getum breytt hugsunarhætti okkar þegar kemur að einelti og eldri borgurum.“ Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna mikilvægi þess að opna um- ræðuna um einelti meðal eldri borgara. „Gamla fólkið er alls ekki heilagt og það þarf að veita því athygli eins og öðrum, því eins og einn sagði: „Þú breytist ekki í engil við það eitt að verða aldraður.“ n n Baktal og útskúfun á dvalarheimilum n „Þú breytist ekki í engil við það eitt að verða aldraður“ Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.