Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 21
PRESSAN 2119. júlí 2019
Efnahagsbrotadeildin
Árið 2011 lagði þáverandi ríkissak
sóknari, Valtýr Sigurðsson, fram
minnisblað um ástand efnahags
brotadeildar ríkislögreglustjóra. Þar
fullyrti hann að deildinni hefði lengi
skort faglega yfirstjórn og metnað.
Rannsókn mála tæki alltof langað
tíma og mörg mál hreinlega dagaði
uppi. Skömmu eftir þetta var efna
hagsbrotadeildin færð frá ríkis
lögreglustjóra yfir til sérstaks sak
sóknara. Þá sendi Helgi Magnús
Gunnarsson, sem áður starfaði hjá
efnahagsbrotadeild, bréf til Alþing
is þar sem hann lýsti reynslu sinni af
deildinni. Hann sagði deildina hafa
verið fjársvelta og mætt skilnings
leysi frá Haraldi.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
innkaup
Ríkisendurskoðandi taldi að Ríkis
lögreglustjóri hefði brotið reglur um
opinber innkaup. Embættið hefði
keypt mikið magn af vörum frá fyr
irtækjum sem væru í eigu lögreglu
manna eða tengdra aðila, án undan
farandi útboðs. Viðskipti fjórtán
löggæslustofnana við umrædd fyrir
tæki hefðu á þriggja ára tímabilið
verið um 91 milljón króna. Ríkis
lögreglustjóri taldi hins vegar að
ófært hefði verið að ráðast í útboð
vegna innkaupa, í miðri búsáhalda
byltingu.
Hótanir á bréfsefni embættisins
Haraldur skrifaði bréf til Björns Jóns
Bragasonar og Sigurðar K. Kolbeins
sonar á síðasta ári vegna bókarinnar
Gjaldeyriseftirlitið – vald án eftirlits?,
og sjónvarpsþáttar um sama efni.
Bréfin voru rituð á bréfsefni embætt
is ríkislögreglustjóra og undirrituð af
Haraldi sjálfum, auk tveggja fyrrver
andi starfsmanna embættisins og
gagnrýndu þeir umfjöllun um efna
hagsbrotadeild embættisins og sök
uðu Björn og Sigurð um ólögmæta
meingerð. Dómsmálaráðuneytið
taldi að bréfinu væri ætlað að vernda
persónulega hagsmuni Haraldar
og starfsmannanna tveggja, en ekki
embætti ríkislögreglustjóra. Upplýs
ingarnar í bréfinu væru villandi að
efni og framsetningu og taldi ráðu
neytið sendinguna ámælisverða og
til þess fallna að rýra traust og trú á
embætti ríkislögreglustjóra.
Leysti ekki meintan geranda
frá störfum
Aðalbergur Sveinsson lögreglu
maður hefur í þrígang verið
ásakaður um kynferðisbrot gegn
börnum, en öll málin hafa verið
felld niður. Móðir einnar stúlk
unnar, Halldóra Baldursdóttir,
hefur harðlega gagnrýnt að Aðal
bergur hafi ekki verið leystur
frá störfum á meðan málið var
til rannsóknar. Hún sagði Har
ald Johannessen hafa brugðist
henni og dóttur hennar og að
hann vildi ekkert fyrir þær gera.
Þessu hafnaði Haraldur, hann
gæti ekki leyst Aðalberg frá störf
um sökum þess að hann hefði
ekki fengið nauðsynlegar upplýs
ingar um rannsókn málsins. Inn
anríkisráðuneytið var þó á öðru
máli, Haraldur hefði, jafnvel án
upplýsinganna, getað tekið slíka
ákvörðun.
Samkvæmt kærunni braut lög
reglumaðurinn á dóttur Halldóru
í sumarbústaðarferð sem hún
fór í ásamt honum, skólasystur
sinni og móður hennar árið 2007,
þegar stúlkurnar voru tíu ára. Þá
hafi verið horft á klámefni í bú
staðnum. Með í bústaðnum hafi
verið háttsettur embættismaður
og eiginkona hans. Sá vann um
tíma hjá embætti ríkislögreglu
stjóra. „Þetta eru allt fyrrum
vinnufélagar, samstarfsfélagar úr
ráðuneytinu, það er alveg sama
hvar að borðinu maður kemur,
þetta eru allt félagar,“ sagði Hall
dóra í samtali við RÚV í júní. Hún
hefur kvartað til umboðsmanns
Alþingis vegna málsins og kallar
eftir því að Haraldur segi af sér.
Rekstur bifreiða
Embætti ríkislögreglustjóra á öll
ökutæki lögreglunnar og leigir út til
embættanna. Lögreglumenn hafa
gagnrýnt þetta fyrirkomulag og sak
að ríkislögreglustjóra um okur. Það
sé hagkvæmara fyrir embættin að
leigja ómerkta lögreglubíla frá bíla
leigum, frekar en að leigja frá ríkis
lögreglustjóra. Engu að síður hefur
verið taprekstur á Bílamiðstöðinni
og reksturinn sætt gagnrýni Ríkis
endurskoðanda. Vegna þessa máls
hefur ríkislögreglustjóri óskað þess
að Ríkisendurskoðun geri stjórn
sýsluenduskoðun á rekstrinum og
einnig farið fram á að lögmæti þess
að nota almenna bílaleigubíla til
löggæslustarfa verði kannað. Lög
reglustjórar á landinu hafa lýst því
yfir að best væri að að leggja mið
stöðina niður og færa rekstur lög
gæslufarartækja beint inn til emb
ættanna.
Fatnaður
DV greindi frá því í desember að
mikillar óánægju gætti meðal lög
reglumanna vegna fatamála. Ríkis
lögreglustjóri sér um að útvega
lögregluembættum vinnu og ein
kennisfatnað en enginn samn
ingur hefur verið gerður undan
farin misseri um hvar fatnaðinn
skuli kaupa. Vegna þessa hafa lög
regluembættin sjálf þurft að panta
klæðnaðinn og hefur þannig skap
ast ósamræmi milli embættanna.
Lögreglufélag Norðurlands vestra
sendi frá sér ályktun fyrir mánuði
þar sem vandræðum lögreglu
manna við að nálgast lögreglufatn
að var mótmælt. Lögreglustjórar
í hverju héraði fyrir sig sjái nú um
fatakaup, án útboða og samræm
ingar, en með þessu sé verið að sóa
almannafé.
Umdeildar ráðningar
Ríkislögreglustjóri hefur ítrekað
verið gagnrýndur fyrir ráðningar
innan lögreglunnar. Um þetta bera
fjölmörg álit umboðsmanns Al
þingis vitni, þar sem sett er út á
ýmislegt í verklagi og framkvæmd
Ríkislögreglustjóra í mörgum að
skildum álitum. Frægt var þegar
hann réð inn Birnu Guðmunds
dóttur, sem lögreglufulltrúa hjá
Lögregluskóla ríkisins. Bæði Lög
regluskóli ríkisins og kærunefnd
jafnréttismála töldu að Birna hefði
ekki verið hæfasti umsækjandinn,
en Birna er náfrænka Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, sem þá var innan
ríkisráðherra.
Líflátshótun á skemmtistað
Frægt var árið 2001 þegar Haraldur
var sakaður um að hafa skvett víni
framan í annan mann og hótað
honum lífláti. Haraldur mun
hafa verið staddur á Vínbarnum í
Reykjavík þegar maður kom þar að
og ávarpaði hann með röngu nafni.
Haraldur á að hafa reiðst mikið við
þetta, risið úr sæti, skvett vínglasi
yfir manninn og hótað honum líf
láti. Lögregla var kölluð til en mað
urinn þorði ekki að leggja fram
kæru. Haraldur hefur hafnað þess
um ásökunum. n
Í dagbókum sínum
lýsir Matthías Johann-
essen syni sínum sem
viðkvæmum og góð-
viljuðum.
Þegar Haraldur var
fjögurra ára gamall
skrifaði Matthías í
dagbók sína: „Halli
dafnar og þroskast
eins og fallegt lítið
blóm. Dálítið vand-
meðfarinn því tilfinn-
ingalíf hans er næmt
og viðkvæmt.“
Þegar Haraldur tók
við embætti ríkislög-
reglustjóra greindi
hann föður sínum frá
því að hann kviði nýja
starfinu. Það fannst
Matthíasi eðlilegt.
„Þetta er erfitt emb-
ætti sem fjallar meðal
annars um fólk sem
á bágt og hefur orðið
undir, ekki síst í bar-
áttunni við freistingar
sínar. Þetta veit Halli
og það er eðlilegt að
hann sé kvíðinn, því
hann hefur viðkvæm-
ar taugar og mann-
eskjulega afstöðu.“
„Hann er ákveðinn, en
hann er líka réttsýnn
og viðkvæmur. Hann
getur sett sig í spor
þeirra sem eiga bágt.
[…] Hann hefur sýnt
að hann er varkár og
góðviljaður.“
Lýsingar Matthíasar á syni sínum:
Aðalbergur Sveinsson
Birna Guðmundsdóttir