Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 30
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Glímufélagið Ármann er elsta íþróttafélag landsins og síður en svo bara glímufélag þótt
nafnið bendi til annars. „Þetta er
stórt og rótgróið hverfafélag með
fjölbreyttar íþróttir á sínum snærum.
Við erum svolítið frábrugðin mörgum
öðrum þar sem áhersla okkar er ekki
aðallega á boltaíþróttirnar, þó svo
að við séum líka með eina af stærstu
körfuknattleiksdeildum landsins,
heldur viljum við bjóða upp á fjöl-
breytt og uppbyggilegt íþróttastarf
fyrir alla aldurshópa,“ segir Jón Þór
Ólason, framkvæmdastjóri Glímufé-
lagsins Ármanns.
Nýjasta deildin er rafíþróttadeild
Nýjasta íþróttadeildin hjá Ármanni
er rafíþróttadeildin. Glímufélagið
Ármann, Rafíþróttaskólinn og G-Zero
Gaming hafa gert með sér sam-
starfssamning um uppbyggingu á
Rafíþróttadeild Ármanns. „Fyrst um
sinn viljum við einblína á barna- og
unglingastarfið og munum bjóða upp
á námskeið fyrir börn og unglinga
innan deildarinnar strax í haust. Þá
erum við í nánu samstarfi við Rafí-
þróttaskólann og fáum mjög hæfileik-
aríka kennara þaðan til þess að halda
utan um námskeiðin hjá okkur.“
Heilbrigðir spilahættir, samvinna,
liðsheild og sjálfsagi
Markmið Rafíþróttaskólans er að
þróa aðferðafræði og æfingar í rafí-
þróttum fyrir barna- og unglingastarf
(6–16 ára) með ríka áherslu á þau
gildi sem íslenska íþróttaumhverfið
hefur verið byggt á síðustu áratugi.
Áhersla er lögð á að allir geti fundið
sér eitthvað við sitt hæfi sem nýtist
þeim áfram í lífinu. Lögð er áhersla á
heilbrigða spilahætti, liðsheild, sam-
vinnu, samskipti og jákvætt umhverfi
iðkandans. „Við vildum fara þessa
leið, þ.e. að byggja upp deildina frá
grunni með langtímaplan að mark-
miði, enda trúum við því að það sé
heilmikil framtíð í rafíþróttum í dag.
Með þessu viljum við skapa félagslegt
og stuðningsríkt umhverfi fyrir börn,
ungmenni og forráðamenn. Það er
okkar trú að markvissar æfingar í
réttu umhverfi hafi jákvæð áhrif á
börn og ungmenni. Iðkendur æfa
saman í hópum í eigin persónu og
æfa þar samskipti, samvinnu, sam-
kennd, sjálfsaga og fleira, á sama
tíma og þeir fá að leggja stund á
áhugamál sitt.“
Fortnite námskeið í haust
Boðið verður upp á námskeið með
áherslu á Fortnite fyrir 10–12 og
12–14 ára hjá Ármanni í haust.
Námskeiðin verða haldin í G-Zero,
Grensásvegi 16, 108 Reykjavík. „Við
ákváðum að byrja á að bjóða upp á
námskeið í Fortnite frekar en öðrum
vinsælum tölvuleikjum innan rafí-
þróttanna þar sem hann snýst minna
um skotleikjaupplifun en margir
aðrir vinsælir tölvuleikir sem spilað-
ir eru í rafíþróttum í dag. Fortnite
er skemmtilegur og notendavænn
tölvuleikur sem hentar bæði börn-
um og fullorðnum. Við höldum svo
möguleikanum opnum á því að fjölga
námskeiðum og bæta við leikjum fyrir
breiðara aldursbil.“
Kynningarfundir í ágúst
Kynningarfundir um Rafíþróttadeild
Ármanns og þau námskeið sem boðið
verður upp á í haust verða haldnir
sunnudaginn 25. ágúst, kl. 14.00 og
þriðjudaginn 27. ágúst 2019, kl. 17.00
á G-Zero Gaming við Grensásveg 16.
„Þá viljum við kynna starfið sérstak-
lega fyrir foreldrum barna og ung-
linga sem hafa áhuga á tölvuleikjum,
en að sjálfsögðu eru allir áhugasamir
velkomnir,“ segir Jón Þór.
Skráningu í námskeið og upp-
lýsingar má nálgast á vefsíðunni
armenningar.felog.is.
Einnig má fá nánari upplýsingar
með því að senda netpóst á Eið,
íþróttastjóra Ármanns: eidur@
armenningar.is
„Við viljum byggja raf-
íþróttadeildina frá grunni“
GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN: