Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 34
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Leiktu þér betur með Pennanum
Það er alltaf mikilvægt að fara vel með líkamann og sérstaklega þegar um langa setu er að ræða. Hjá Pennanum fást ýmsar vörur sem gera leikjaspilunina bæði ánægjulegri og heilsusamlegri fyrir líkamann. Sand-
berg er frumkvöðull í framleiðslu leikjastóla sem passa upp á bakið og hafa
stólarnir og aðrar vörur frá þeim fengið frábærar viðtökur hér heima.
Láttu fara vel um þig í Voodoo leikjastólnum frá Sandberg og hafðu full-
komna stjórn á leiknum þegar spilað er. Stólinn er hannaður með afrísku
grímurnar í huga, sem sagðar eru gefa kraft, styrk og ósýnileika. Hámarks
þægindi, þökk sé mörgum stillingarmöguleikum í sæti, baki og á örmum.
Bak og sæti eru klædd PU-leðri en í miðju stólsins er efni sem tryggir öndun
óháð því hversu lengi er setið í honum og spilað. Stóllinn er byggður úr sterku
gæðaefni sem tryggir langa endingu.
Uppfærðu tölvuleikjaspilið með Sandberg leikjaborðinu. Borðið er 1,2 metrar á
breidd sem tryggir þér nóg pláss. Að auki hefur þú frelsi til þess að hreyfa þig
á meðan spilað er. Á sama tíma er borðið af stærð sem passar í flest herbergi.
Sterkir málmfætur og massíf MDF-plata mynda saman stöðugar undirstöður
þar sem hægt er að fela snúrur og framlengingar. Flott LED-lýsing í báð-
um endum borðsins sem kemur þér í rétta leikjastuðið! Borðið er sérsniðið í
stærðinni 120 x 64 x 77 sentimetrar.
Tölvuleikjasett sem færir þér allt sem þú þarfnast í tölvuleikina. Hver hlutur
er hannaður með mikla nákvæmni og skjót viðbrögð í huga. Fallegt lyklaborð
með marglitum ljósabakgrunni.
Fullkomnaður leikjaaðstöðuna með
flottri stólamottu frá Sandberg.
Mottan kemur í veg fyrir að stólinn
rispi gólfið á meðan spilað er auk
þess sem hún kemur í veg fyrir óhljóð
þegar stólnum er rennt eftir gólfinu.
Leikjamottan er búin til úr sterku
gervigúmmíi og er með saumuðum
köntum sem tryggir betri endingu.
Mottan hentar best á hörðu gólfi.
Stærð 100 x 100 x 0,3 cm.
Vörurnar eru fáanlegar í vefverslun Pennans penninn.is og verslun
Pennans í Smáralind.
Heyrnartól sem hylja alveg eyrun með hágæða "surround" hljóði sem
kemur þér betur inn í leikinn og næmum hljóðnema sem tryggir það að
andstæðingar og bandamenn heyra vel og greinilega í þér.