Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 47
SAKAMÁL19. júlí 2019 47
ákærður og sakfelldur sem fullorðinn einstaklingur. Sat hann
í 13 ár í alræmdustu fangelsum New York-fylkis, meðan hinir
sátu inni í sjö ár í unglingafangelsum. Árið 2002 játaði fangi
að hafa nauðgað og barið fórnarlambið og voru drengirnir
fimm, þá orðnir ungir menn í fangelsi, sýknaðir af verknað-
inum. Árið 2003 kröfðust þeir bóta frá New York-borg vegna
rangra sakargifta og fengu bætur greiddar ellefu árum síðar,
þær hæstu í sögu borgarinnar á þeim tíma. Þeir kröfðu einnig
fylkið um bætur og fengu þær greiddar árið 2016.
Þættirnir eru einstaklega vel gerðir og leiknir og eru áhuga-
verð heimild um eitt umtalaðasta sakamál seinni áratuga
og það réttarmorð sem framið var gagnvart fimm börnum. Í þeim kemur meðal annars fram
að athafnamaðurinn Donald Trump, núverandi forseti Bandaríkjanna, trúði einlæglega á
sekt drengjanna og borgaði persónulega fyrir heilsíðuauglýsingar í dagblöðum, þar sem hann
krafðist þess að dauðarefsing yrði tekin upp aftur. Ljóst er að ef af henni hefði orðið hefðu fimm
saklaus börn verið tekin af lífi í New York-fylki á tíunda áratugnum.
NÝTT Á DV
DV hefur opnað glæsilegan veðurvef þar
sem hægt er að kynna sér veðurspá
fyrir landið allt.
Klæddu þig eftir veðri
Kíktu á dv.is/vedur
Laugardagur
06. júlí 12:00
15°C
HVAR ER BESTA VEÐRIÐ?
3 m/s
„ÞÚ MISSIR ALLA VON EFTIR SVONA LANGAN TÍMA“
Póstmaðurinn Paul Savage var laminn til bana á
hrottalegan hátt með viðarkylfu þegar hann var á
sínum hefðbundna útburðarrúnti. Atvikið átti sér
stað um klukkan 7.15 að morgni 4. febrúar árið
2003.
Stuttu seinna fann húseigandi í Mold í Wales lík
Savage, þar sem hann lá við hliðina á hjóli sínu og
póstburðarpoka. Savage hafði verið laminn af slík-
um ofsa að höfuðkúpa hans var í molum.
Vitni sáu tvo unga hettuklædda menn hlaupa í
burtu frá vettvanginum.
Lögreglan komst að því að Savage, sem var frá
Sale í Manchester, átti langan afbrotaferil að baki.
Hann hafði setið í fangelsi í níu mánuði vegna
vörslu fíkniefna og ætlaðrar sölu á þeim eftir að
hann var handtekinn með kannabisefni að and-
virði yfir einni milljón punda.
Eftir afplánun flutti hann til Mold með
Charlotte, eiginkonu sinni, og fjögurra ára gamalli
dóttur þeirra.
Lögreglan rannsakaði málið í þaula þar til árið
2009 og í maí á þessu ári var enn á ný óskað eft-
ir vitnum. Lögreglan segir að engar nýjar upplýs-
ingar hafi komið fram í málinu.
Julia Webb var lamin til bana í skógi nálægt heim-
ili hennar í Sandiway í Cheshire í febrúar árið 2005
þegar hún var á göngu með labradorhund sinn.
Christopher, son hennar, var farið að lengja eftir
að móðir hans sneri heim og fór því á reiðhjóli sínu
að leita hennar. Hann fann hundinn, sem leiddi
hann að líki Webb.
Lögreglan hóf víðtæka leit að morðingja henn-
ar og bauð 30 þúsund punda verðlaun fyrir upp-
lýsingar.
Lögreglan er enn að leita tveggja karlmanna
sem sáust á svæðinu á sama tíma og Webb lést,
eldri manns með rauðan göngustaf og manns sem
líktist „George Michael“ með skeggbrodda, sem
keyrði silfraðan Ford Orion.
Lyn Bryant, 55 ára, var drepin
nálægt heimili sínu í Ruan High
Lanes í Cornwall í október árið
1998. Hún var á göngu með fjöl-
skylduhundinn Jay. Dætur henn-
ar, Erin og Lee, voru 19 og 21 árs,
og ömmusonur hennar, Keelan,
var 10 mánaða.
Mótorhjólamaður sá Bryant
tala við karlmann við gatnamótin
við kirkju bæjarins. Stuttu síðar
fannst lík Bryant við hliðarveg á
milli kirkjunnar og Trevilesseturs.
Á 20 ára dánarafmæli hennar
í október í fyrra óskaði fjölskylda
hennar eftir upplýsingum um
dauða hennar. Beiðnin hefur leitt
af sér 27 nýjar vísbendingar sem
tengjast 13 einstaklingum.
Stuart Ellis, rannsóknarlög-
reglumaður hjá lögreglunni í
Devon og Cornwall, sem fer með
rannsókn málsins, er ánægður
með viðtökurnar.
„Við erum þakklát fyrir stuðn-
ing almennings sem hefur leitt af
sér 27 raunhæfar vísbendingar.
Vegna þeirra erum við með nöfn
13 einstaklinga sem þarfnast frek-
ari rannsókna og við gætum ósk-
að eftir DNA-sýni frá þeim til að
útiloka þá.“
Lögreglumenn munu fara yfir
allar vísbendingar. Fyrra starf
okkar, að skoða einstaklinga, bæði
heimamenn og aðra á Englandi, í
samræmi við DNA-prófíl okkar
mun einnig halda áfram næstu
mánuði. Við höfum fengið mjög
jákvæð viðbrögð frá þeim sem
við höfum óskað eftir DNA frá
við rannsóknina og við vonum að
það samstarf haldi áfram.“
Lee Taylor, dóttir Bryant, sem
er orðin 41 árs, segir: „Eðlilega
eftir því sem lengra líður, verð-
um við vonminni, þar til nýlega.
20 ár eru langur tími. Margt hef-
ur breyst í fjölskyldu okkar, margt
sem mamma hefur misst af. Fjög-
ur barnabörn, trúlofanir, alls kon-
ar viðburðir. Ég hélt ekki að svona
langur tími myndi líða. Þú missir
alla von eftir svona langan tíma.“
PAUL SAVAGE
JULIA WEBB
LYN BRYANT
Julia Webb var lamin til bana.
Lyn
Bryant
var
drepin
á göngu
með fjöl-
skyldu-
hundinn.
Bíll Bryant.
Svæðið þar sem lík Bryant fannst.