Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 54
54 19. júlí 2019STJÖRNUSPÁ
Lesið í tarotspilin
stjörnurnar
Spáð í
Naut- 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogamaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja- 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 21.–27. júlí
Nú skaltu hætta að fresta öllu og finna
metnaðinn á ný. Þú finnur hvað það
gefur þér mikið að ráðast á hlutina og
ekkert múður! Gamalt mál, sem þú varst
að vinna í, skýtur aftur upp kollinum og
leysist á ótrúlegan hátt.
Það er spennandi ferðalag framundan
en þú nærð ekki almennilega að hlakka
til því þú hefur svo miklar áhyggjur af
vinnunni. Enginn er ómissandi og þú mátt
alveg láta vinnufélagana finna fyrir því
hve mikið þú í raun gerir.
Þú finnur fyrir aukinni kynhvöt og
skammast þín fyrir að tala um það. Ekki
skammast þín! Láttu frekar maka þinn
vita og hafið gaman saman. Ef þú ert
einhleyp/ur gildir hið sama – talaðu
um hvað þú vilt og hvað þú vilt ekki og
kynlífið blómstrar.
Það fylgir krabbanum aukin orka þessa
dagana. Ef þú ert í sambandi með
einhverjum sem er búinn að draga þig á
asnaeyrunum þá hefurðu loksins orku og
þor til að setja honum stólinn fyrir dyrnar.
Það er allt eða ekkert!
Nú þarf ljónið að forgangsraða. Þú hefur
tekið of mikið að þér og þótt þú hatir að
segja nei, þá verður þú að gera það. Þú
virðist vera að reyna að fylla eitthvert
tómarúm og það er mjög mikilvægt að þú
áttir þig á því hvað það er.
Þér vegnar vel þessa dagana og nú er tími
til kominn að þú skoðir þín mörk og hve
langt þú kemst. Ef þú ert í sambandi þá
skaltu segja maka þínum hvað þig langar
að gera í sumar, næstu fimm árin, til
eilífðar. Þið eruð sterkari tvö saman.
Það eru miklar breytingar í kortunum fyrir
vogir, hvort sem það er í vinnu, flutningar
eða ferðalög. Um leið endurmetur þú lífið
og sambönd þín, bæði við fjölskyldu, vini
og vinnufélaga. Þetta er spennandi tími
sem mun leiða af sér enn betra líf.
Í vinnunni skaltu varast að líta á utan-
aðkomandi einstaklinga sem ógn. Þessir
einstaklingar, eða einstaklingur, geta
hjálpað þér að ná markmiðum þínum.
Þú lærir mikilvæga lexíu um samvinnu í
vikunni og að dæma ekki bók af kápunni.
Þú elskar að plana og hafa allt í röð og
reglu. Þú ert hins vegar í nánu sambandi
við einhvern sem lætur allt ráðast. Þetta
fer í taugarnar á þér og þú þarft að
standa fast á þínu svo ekki sé traðkað á
gildum þínum.
Þú hefur unnið mjög mikið að vissu máli
undanfarnar vikur, jafnvel mánuði, og
loksins sérðu ávöxt erfiðisins. Færð
jafnvel að smakka á honum. Staldraðu
við og hreyktu þér af því sem þú hefur
áorkað – það ber ekki vitni um sjálfselsku
eða hroka.
Nú þarf vatnsberinn smá slökun og frí.
Þú hefur stundað partíin og veislurnar
og nú þarftu að segja stopp. Þú nærð
nefnilega ekki að njóta stundarinnar eða
afreka þinna ef þú ert stanslaust á fullu.
Fjölskyldan má heldur ekki vera í síðasta
sæti.
Þú kemur góðum vini til hjálpar og færð
það margfalt borgað til baka. Í fram-
haldinu færðu áhugavert og skemmtilegt
verkefni sem getur gefið mjög vel í aðra
hönd hvað varðar vellíðan og gleði – það
er stundum betra en peningar, sem geta
þó líka fylgt þessu verkefni.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 22. júlí – Kristófer Helgason útvarpsmaður, 49 ára
n 23. júlí – Júlía Margrét Einarsdóttir skáld, 32 ára
n 24. júlí – Dóra María Lárusdóttir knattspyrnukona, 34 ára
n 25. júlí – Gunnar Leó Pálsson, trommari og frasasmiður, 30 ára
n 26. júlí – Sigríður Beinteinsdóttir söngkona, 57 ára
n 27. júlí – Kolbeinn Tumi Daðason fjölmiðlamaður, 37 ára
Saga Sigurðardóttir
Fædd 10. október 1986
Vog
n Diplómati
n Örlát
n Félagsvera
n Ákvarðanafælin
n Sjálfsvorkunn
n Forðast átök
Vilhelm Anton Jónsson
Fæddur: 3. janúar
1978
Steingeit
n Agaður
n Ábyrgur
n Góð sjálfsstjórn
n Besservisser
n Býst við því versta
n Yfirlætisfullur
Villi og Saga byrjuð að hittast – svona eiga þau saman
O
rðið á götunni er að þúsundþjalasmiðurinn
Vilhelm Anton Jónsson, Villi naglbítur eins
og hann er oft kallaður, og Saga Sigurðar-
dóttir ljósmyndari séu farin að stinga saman
nefjum. Saga er vog en Villi steingeit og því margt
hægt að lesa úr stjörnumerkjunum um hvernig þau
eiga saman.
Þetta gæti nefnilega verið ágætis blanda ef þau
verða sátt við að þau eigi fátt sameiginlegt. Vogin
og steingeitin gætu ekki verið ólíkari. Steingeitin er
hæglát og hleypir ekki hverjum sem er að sér. Vogin
er hins vegar félagslegt fiðrildi og elskar að hitta nýtt
fólk. Frami og vinna skiptir steingeitina miklu máli
á meðan voginni finnst mikilvægara að finna fegurð
og jafnvægi í lífinu og samböndum. Hins vegar get-
ur sambandið orðið afar gjöfult ef þau elska og virða
hvort annað þrátt fyrir að þau séu algjörar andstæð-
ur. Steingeitin getur verið ráðagóð og róleg í erfiðum
aðstæðum á meðan vogin getur sýnt steingeitinni
allt það besta sem lífið hefur upp á að bjóða. SAGA SIGURÐARDÓTTIR. MYND: SKJÁSKOT AF YOUTUBE
B
irgitta Jónsdóttir, fyrrver-
andi þingkona fyrir Pírata,
hefur verið mikið í frétt-
um í vikunni eftir að til-
nefningu hennar í trúnaðarráð
Pírata var hafnað. Fréttir hermdu
að hún hefði yfirgefið félagsfund
Pírata grátandi, en hún var ein af
þeim sem kom að stofnun flokks-
ins á sínum tíma. Því fannst DV
tilvalið að draga þrjú tarotspil fyr-
ir Birgittu til að sjá hvað framtíðin
bæri í skauti sér fyrir hana.
Skrýtin og skapandi
Birgitta er hrútur, fædd þann 17.
apríl árið 1967, og er því bjartsýn,
ákveðin, örugg og ástríðufull að
eðlisfari. Að sama skapi getur hún
verið hvatvís og óþolinmóð þegar
sá gállinn er á henni. Fyrsta spil-
ið sem kemur upp í hennar spá er
Bikardrottningin sem táknar við-
kvæma, skapandi og góða konu
sem hleypir ekki hverjum sem er
inn fyrir skelina. Hún getur virkað
skrýtin á þá sem ekki þekkja hana,
en spilið táknar enn fremur að
Birgitta búi yfir miklum styrk sem
hún nýtir sér í framtíðaráformum
sínum.
Strembið valdatafl
Næsta spil er 3 sverð sem táknar
að ósættið sem Birgitta upplifir
innan Pírata heyrir fljótt sögunni
til. Þessir erfiðleikar og valdatafl
reynist Birgittu strembið, en með
metnaði og bjartsýni kemst hún
yfir það og reynir fyrir sér á nýj-
um vettvangi í stjórnunarstöðu. Sú
staða verður þó ekki í pólitík, enda
Birgitta komin með nóg af henni,
einkum vegna þess hve hreinskil-
in hún er – sem er eiginleiki sem
á ekki alltaf samleið með stjórn-
málum.
Á andlega sviðinu
Síðasta spil-
ið sem
kemur
upp fyrir
Birgittu er
náfrænka
spils númer
tvö, nefnilega
4 sverð. Það
merkir að áður
en Birgitta tek-
ur að sér krefjandi
stjórnunarstöðu
hugar hún að eigin
líðan, slakar á og ein-
beitir sér að því að
yrkja sál og líkama. Þannig
kemst hún í snertingu við
orkusvið hinnar djúpu
þagnar og tæru vitundar.
Þá verður allt skýrara og
ekki kæmi á óvart ef nýr
vettvangur Birgittu væri á
andlega sviðinu.
Fullsödd af pólitík í
skugga átakafundar