Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Page 58
58 FÓKUS 19. júlí 2019
PINNAMATUR
V e i s l u r e r u o k k a r l i s t !
Bjóðum uppá fjölda tegunda
PINNAMATS OG TAPASRÉTTA
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
YFIRHEYRSLAN
Söngvarinn Matthías Matthíasson, best þekktur sem Matti Matt, hefur komið
víða við á tónlistar ferlinum. Hann hefur spilað með hljómsveitunum Dúndur-
fréttum, Pöpum, Vinum Sjonna og Reggae on Ice ásamt því að koma fram í
ótal tónleikasýningum. Ný plata kemur út í haust og um helgina bjóða Dúndur-
fréttir upp á Led Zeppelin-tónleika. DV tók Matta í yfirheyrslu.
Hjúskaparstaða og börn?
Giftur og á þrjá stráka.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst krakki?
Sjómaður, hékk alltaf niðri á bryggju þegar ég var krakki og þráði
ekkert heitar en að komast á sjóinn, þetta blundar alveg í mér
ennþá.
Skemmtilegast að gera?
Fylgjast með börnunum í þeirra áhugamálum og ferðast með
fjölskyldunni.
En leiðinlegast?
Þrífa og taka til.
Fyrsta atvinnan?
Skera spyrður af signum fiski hjá Blika á Dalvík þegar ég var 10 ára,
keypti mér mitt eigið hjól fyrir sumarlaunin. Vann svo í harðfiski hjá
Hagga á Dalvík með skóla þangað til ég var 12 ára og flutti suður.
Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum?
Kannski ekki beint leyndum hæfileikum en mjög tilgangslausum
engu að síður, ég get talað og sungið heilu lögin aftur á bak.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
„Keep it simple“. Ekki flækja hlutina og ekki festast of
mikið í smáatriðunum
Fyrsta minningin þín?
Að syngja fremstur í flokki míns hóps á öskudaginn í
frystihúsinu á Dalvík.
Hvað finnst þér vera leiðinlegasta
húsverkið?
Að strauja, en það hefur allt lagast eftir að ég fékk
Russel and Hobbs gufugaurinn minn, nú strauja ég
liggur við nærbuxurnar.
Uppáhaldshljómsveit og af hverju?
Eru nokkrar: Led Zeppelin, Queen og The Beatles koma
fyrst upp í hugann Þetta eru böndin sem ég hlusta
mest á í dag og ég fæ aldrei nóg af þeim. Íslenskar
hljómsveitir væru líklega Nýdönsk, Þursaflokkurinn,
Spilverkið, Stuðmenn og margt fleira.
Hvað er það erfiðasta sem þú hefur
gert?
Það er of persónulegt til að fara út í það hér. En af dag-
legu lífi þá er það þegar miðjugaurinn minn klemmdi
af sér fingurinn á útidyrahurðinni heima og ég þurfti
að keyra hann öskrandi af sársauka á bráðamóttök-
una, þar sem ótrúlega flottir læknar saumuðu á hann
fingurinn og hann er eins og nýr í dag.
En mest gefandi?
Börnin mín og nýja platan sem ég er að klára og kemur
út í september.
Hvaða lag (önnur en þín eigin) hefðir þú viljað
semja?
Bohemian Rhapsody.
Hver myndi skrifa ævisögu þína?
Segjum bara Sólmundur Hólm, honum tókst nokkuð vel upp með
Gylfa Ægis.
Stærsta stundin í lífi þínu?
Fæðing barna minna. Veit að það er klisja að segja það, en það vita
það allir sem eiga börn að það er bara þannig.
Mannkostir þínir?
Jákvæður, sanngjarn, kurteis, með alltof mikla réttlætiskennd.
En lestir?
Gleyminn, utan við mig, en er að vinna í mér.
Eitthvað að lokum?
Sjáumst á Led Zeppelin-tónleikum Dúndurfrétta á laugardags-
kvöldið í Eldborg í Hörpu.
„Ég mun upplýsa alls
konar leyndarmál“
A
thafnakonan og gleði-
gjafinn Margrét Erla
Maack bíður nú spennt
eftir nýju hlutverki en hún
á von á sínu fyrsta barni í lok sept-
ember.
Meðgangan gengur vel og hefur
Margrét verið athafnasöm í sumar,
sem endranær: nokkrar sýningar
eru eftir af farandferðalaginu
Búkalú, námskeið eru framundan
í Kramhúsinu og nú auglýsir Mar-
grét það nýjasta, veislustjóranám-
skeið.
„Mér finnst eitthvað fyndinn
hroki í því að segja „JÁ, ÉG KANN
ALLT NÚ ÆTLA ÉG AÐ KENNA“,
segir Margrét aðspurð hvort þetta
sé í fyrsta sinn sem hún heldur
slíkt námskeið.
„Ég kann mjög margt sem
tengist þessu, allt frá að stjórna
þurrum ráðstefnum og upp í að
stjórna fínum kampavínsveislum
erlendis.
Ég hef unnið við að skemmta á
árshátíðum síðan 2006 – og þetta
hefur verið aðalatvinnan mín síð-
astliðin tvö ár. Margir spyrja hvort
það hafi ekki dalað síðan 2007
brjálæðið var, en svarið er; alls ekki.
Fólk hefur alltaf þörf á að skemmta
sér og sem betur fer hugsa vinnu-
veitendur vel um móralinn og hafa
ekki lagt jólahlaðborð og árshátíð-
ir af. Þær eru bara skynsamlegri –
og stór hluti af því felst í að ráða
veislustjóra sem veit til hvers er
ætlast af honum.“
Ertu ekkert hrædd við
samkeppnina?
„Samkeppni er alltaf af því góða
og ég geri mér fulla grein fyrir því
að það prógramm sem ég hef boð-
ið upp á, magadans, hnífakast og
sverðagleypingar, hentar ekki í öll-
um veislum. Og samkeppni hvet-
ur mig til að verða betri!“ segir
Margrét og bætir við að hana vanti
líka fleiri nöfn til að benda á.
„Í mars eru flestar árshátíðir
haldnar og síðastliðinn mars var
ég í algjörum vandræðum að
benda á fólk. Svo ekki sé minnst á
að ég er á leið í fæðingarorlof svo
það er að myndast gat á stærð við
minn rass á markaði, að minnsta
kosti tímabundið. Þar að auki eru
fyrirtæki og einstaklingar farnir að
leita meira að þessari þjónustu,
ekki bara risastórar fyrirtækja-
veislur.“
Námskeiðin eru þrjú og verða
haldin í ágúst á Kex hostel. Eins
og segir á vef Tix.is er námskeiðið
smíðað utan um að veislustýra
fyrir tækjaveislum, en þarna eru
líka hlutir sem koma að góðum
notum við veislustjórn afmæla og
brúðkaupa.
Farið verður yfir veislustjórn
frá ýmsum hliðum; hvers er ætl-
ast til af veislustjóra, að koma sér
á framfæri, peningamál, gildrur
til að varast, samskipti við árs-
hátíðarnefnd og yfirþjón, að búa
til efni, að raða upp dagskrá og
margt fleira. Margrét tekur lífinu
almennt létt, en skemmtanahaldi
grafalvarlega.
„ Í flestum þeim hópum sem ég
er í – eins og improvinu, drag-fjöl-
skyldunni og sirkustengdum hóp-
um – hefur líka verið óskað eftir
að ég kenni svona þetta almenna
utanumhald – og auðvitað feimn-
ismál feimnismálanna: peninga-
hliðina.“
Muntu kenna öll þín
leyndarmál?
„Ég mun upplýsa alls konar
leyndarmál, en fyrst og fremst af-
hjúpa mistök og hrakfallasögur
sem ég vona að nemendur hafi
gagn og gaman af.“
MYND: HANNA/DV
Matthías Matthíasson