Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 60
60 FÓKUS 19. júlí 2019
„Þetta er ljótur
raunveruleiki“
M
yndlistarmaðurinn
Elli Egilsson er nýjasti
gestur Föstudagsþáttar-
ins Fókuss, hlaðvarps-
þáttar dægurmáladeildar DV.
Elli er að opna myndlistarsýn-
inguna Hugarfar í dag í Norr11 við
Hverfisgötu. Á sýningunni verða
ný olíumálverk sem enginn hefur
séð, fyrir utan eiginkonu hans,
Maríu Birtu.
Við ræddum við Ella um listina,
vinnustofu hans í hættulegasta
hverfi Los Angeles og hjónaband
hans og athafna- og leikkonunnar
Maríu Birtu.
Alltaf verið listamaður
Elli hefur verið listrænn síðan
hann var barn og hefur sköpunar-
gáfan fengið að ráða för frá því að
hann man eftir sér.
„Ég var skríðandi á vinnustof-
unni hans pabba þegar ég var lít-
ill polli og eyðilagði hans verk,
eða „eyðilagði,“ ég gerði þau betri.
Bætti við litum og dýpt,“ segir Elli.
„Ég hef alltaf verið einhvers konar
listamaður.“
Þó svo að Elli hafi ætíð verið ná-
inn listinni í alls konar formum þá
tók hann upp á því að mála fyrir
átta árum. „Ég var búinn að vinna
sem grafískur hönnuður í mörg ár
og sitja fyrir framan tölvu. Það er
allt saman frábært, en ég fékk þörf
fyrir að nota fingurna í eitthvað.
Vera skítugur og setja terpentínu
á mig,“ segir Elli. Hann hafði búið
erlendis í mörg ár þegar hann tók
upp pensilinn. Söknuður eftir Ís-
landi varð kveikjan að ferli hans
sem landslagsmyndlistamanns,
og málar hann íslenskt landslag
eftir minni.
„Ég var þrítugur þegar ég byrj-
aði að mála. Stefán í Hörðudal var
held ég fimmtugur þegar hann
byrjaði. Maður þarf ekki alltaf að
byrja fimmtán ára. Það er aldrei of
seint að byrja,“ segir Elli.
Fyrsta sýningin
Fyrsta myndlistarsýning Ella var í
Atlanta árið 2011. Vinur Ella á þar
gallerí og bauð honum að sýna
verkin sín. „Ég var ekki viss um
hvort ég væri tilbúinn, en þetta
var mín fyrsta áskorun um að gera
sýningu. Og ég gerði það. Ég náði
að gera mjög flotta sýningu,“ seg-
ir Elli. „Verkin seldust upp. Það var
svolítið sjokkerandi.“
Eftir fyrstu sýninguna hélt Elli
áfram að mála og með tímanum
hætti hann sem grafískur hönnuð-
ur og einbeitti sér að myndlistinni.
Með stúdíó í hættulegasta
hverfi Los Angeles
Elli hefur verið með vinnustofu í
hættulegasta hverfi Los Angeles
síðastliðin ár. Vinnustofan er í
Crenshaw-hverfinu í suðurhluta
Los Angeles, sem hefur verið al-
ræmt í marga áratugi fyrir glæpi og
eiturlyfjasölu.
„Mér bauðst að fá vinnustofu
niðri í bæ þar sem flestir mynd-
listarmenn eru,“ segir Elli. „ Flestir
fara þangað. Ég ákvað að fara í
Crenshaw. Mér bauðst lítið stúdíó,
þetta er ekki stór vinnustofa, en
hún er fullkomin fyrir mig. Ástæð-
an fyrir því að ég vildi að fara
þangað er einungis sú að ég ólst
upp við rapptónlist og allir mínir
uppáhaldsrapparar koma þaðan.
Þetta er það sem ég ólst upp við
að heyra og mig langaði að upp-
lifa það með minni vinnu. Aðeins
öðruvísi. Þar hefur maður upp-
lifað allt sem maður hefur heyrt
í þessum lögum. Þetta er ljót-
ur raunveruleiki. Hann er til, því
miður. Það er sorglegt að horfa
upp á fólk vera að strögla á götun-
um, en þetta er ósköp vingjarnlegt
fólk samt, það bara á erfitt,“ segir
Elli.
„Það er mikið af gengjum þarna
og rosalega mikið af vændiskonum,
því miður. En þær eru mínar bestu
vinkonur á vingjarnlegum nótum.
Þetta eru áhugaverðir karakterar.
Sama með gengin. Jú, jú, maður
horfir á þá og dæmir strax en svo
byrja þeir að tala við þig eins og
hver annar maður. Þá er það mjög
vingjarnlegt.“
Skothvellir alla daga
„Ég hef orðið vitni að skotárás og svo
heyrast skothvellir eins og það sé
4. júlí í Bandaríkjunum,“ segir Elli.
Aðspurður hvort honum sé hætt að
bregða við hvellina svarar hann ját-
andi. „Ég man fyrsta daginn minn í
vinnustofunni þá stökk ég á gólfið,“
segir Elli. Sem betur fer hefur aldrei
verið brotist inn í vinnustofu Ella,
sem er varin með gaddavír og ör-
yggismyndavélum.
Lenti í hrekk gengjameðlima
Elli rifjar upp leiðinlegt atvik þegar
hann var að hjóla heim frá vinnu-
stofunni. „Það var búið að setja
glæran kaðal frá ljósastaur að bekk
þannig ég hjólaði beint á hann á
fullri ferð. Þetta er rafmagnshjól
þannig ég var á ágætis hraða. Ég
skall í jörðina en var með hjálm,“
segir Elli. „Það var eitthvert gengi
sem setti þetta upp og fannst voða
fyndið. En þetta voru bara 14 ára
krakkar. Ég stóð upp brjálaður og
ætlaði í þá, en svo fannst mér það
kannski ekki sniðugt. Þannig að ég
hélt áfram. Það er alls konar svona,
en flestir eru mjög vingjarnlegir,
en eiga einfaldlega erfitt,“ segir Elli
og bætir við að hann ætli að vera
áfram með vinnustofuna í Crens-
haw. „Þetta veitir mér innblástur,
frekar en að fara á söfn. Því þetta
er raunveruleiki. Ég er að mála
draumkenndan raunveruleika.
Minningar. Þetta er þeirra hverfi
alveg eins og Vesturbærinn er mitt
hverfi.“
Endalaust skotin
Við ræddum við Ella um hjóna-
band hans og Maríu Birtu. María
Birta er kunn flestum landsmönn-
um og hefur getið sér gott orð sem
leikkona, bæði hérlendis og er-
lendis. Nýlega skrifaði hún und-
ir sinn stærsta samning til þessa
og mun koma fram sem glímu-
kappi og leikkona á sviði í Las Ve-
gas og Skotlandi. Hún leikur einnig
í nýjustu kvikmynd stórleikstjórans
Quentins Tarantino.
„Við erum mjög fyndið par. Ég er
mjög jarðtengdur, rólegur mynd-
listarmaður og vill ekkert djamma
eða neitt þannig. En hún er algjört
partídýr og vill vera með tíu verk-
efni í einu,“ segir Elli. „Ég held að
þetta sé jang og jin, setur okkur í
jafnvægi. Við höfum svo góð áhrif á
hvort annað.“
Næstu mánuði verða Elli og
María Birta hvort í sínu landinu og
það er engin nýlunda hjá þeim.
„Við höfum verið fjarri hvort
öðru í alveg heilt ár. Það er erfitt, en
þegar við hittumst aftur erum við
eins og táningar sem eru að hittast
í fyrsta skiptið. Við erum skotin, aft-
ur og aftur,“ segir Elli. „Við ákváð-
um að fara aldrei í brúðkaupsferð.
Við vildum frekar að hvert einasta
frí sem við færum í yrði brúðkaups-
ferð.“ n
Sýningin HUGARFAR er opin
frá 19. júlí til 5. ágúst í Norr11 á
Hverfisgötu 18a.
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is „Ég hef orðið vitni að skotárás og
svo heyrast skothvellir eins og
það sé 4. júlí í Bandaríkjunum.
n Með vinnustofu í hættulegasta hverfi Los Angeles
n Harður heimur veitir innblástur
MYNDIR: EYÞÓR ÁRNASON
n Elli Egils opnar myndlistarsýningu