Skessuhorn - 28.02.2007, Page 5
^kUSUHuL
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
5
Sláturhúsmu á
Króksfj arðamesi lokað
Stjómendur Kaupfélags Skagfirð-
inga (KS) hafa ákveðið að loka slát-
urhúsi félagins í Króksijarðamesi ffá
og með 1. mars. Þetta kemur fram í
bréfi sem sent hefur verið bændum
sem í viðskiptum hafa verið hjá slát-
urhúsinu. KS hefur haft sláturhúsið
á leigu samkvæmt óuppsegjanlegum
samningi til 31. maí 2016.
I bréfinu til bænda kemur fram að
á brattann hafi verið að sækja í
rekstri hússins í samanburði við þær
afurðastöðvar sem búið er að endur-
hanna og tækjavæða. Sýnt þyki að
nauðsynlegt sé að fara í verulegar
ffamkvæmdir tdl að halda sláturleyf-
um og ber þar hæst fjárfesting í
nýrri sláturlínu og fjárfesting í nýrri
ffamtíðarlausn í úrgangsmálum.
Segir í bréfinu að verulegur kosm-
aður liggi í slíkri endmuýjun. „Það
er því mat okkar að betra sé að
horfast í augu við þessar staðreyndir
sem blasa við og leggja meira kapp á
að skapa hagræðingu sem skilar
okkur meiri hæfrd til að standast
harðnandi samkeppni og greiða
bestu verð á hverjum tíma,“ segir
orðrétt í bréfinu.
Eins og kunnugt er tók KS slátur-
húsið í Búðardal á leigu síðastliðið
haust og var slátrun þar hætt í kjöl-
farið. Fram kemur í bréfinu til
bænda að stefnt sé að því að halda
áfram þeirra starfsemi sem þar var,
það er rekstur ffystigeymslu og
svíðing hausa auk þess sem þar er
einnig sagað í súpukjöt þessa dag-
ana.
„Ef vel tekst til með uppbyggingu
á þessari starfsemi í Búðardal getur
það klárlega skapað áffamhaldandi
störf sem aðilar sem unnið hafa á
Króksfjarðamesi geta nýtt sér. Það
má líka geta þess að ákvörðun þessi
kemur inn á þeim tíma að fýrirsjáan-
leg er harðnandi samkeppni um
vinnuafl á þessu svæði þar sem stefiit
er að miklum ff amkvæmdum í vega-
málum á þessu svæði næstu árin,“
segir í bréfi KS.
Boðaður hefur verið fundur í fé-
lagsheimilinu Vogalandi á föstudag-
inn þar sem lokunin verður rædd.
HJ
Skyggnilýsingar-
fundur
Lionsklúbburínn Agla heldur
skyggnilýsingarfund með Þórhalli
Guðmundssyni miðli í Félagsmiðstöðinni
Óðali f Borgarnesi sunnudagskvöldið
4. mars klukkan 20:30.
Aðgangseyrír aðeins 1.500 kr.
Allur ágóði rennur til líknarmála
Allir hjartanlega velkomnir
Lionsklúbburínn Agla
BORGARBYGGÐ
Matráður óskast til starfa
í nýjum leikskóla í Borgarnesi
Um er að ræða 100% starf matráðs í nýjum leikskóla
við Ugluklett sem tekur til starfa í byrjun ágúst 2007.
í leikskólanum er lögð áhersla á hollt og fjölbreytt
mataræði.
Menntunar- og hæfniskröfur
► nám á sviði matreiðslu
► reynsla af vinnu við matreiðslu æskileg
► þekking á rekstri eldhúsa æskileg
► færni í mannlegum samskiptum
► skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og
áreiðanleiki í starfi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn
Alexandersdóttir, leikskólastjóri
í síma 437-1050 og 844-6677.
VIÐ OPNUM
KOSNINGARSKRIFSTOFUNA
LaugQrdQginn 3. mars nk. kl. 15.00
qö SkólQbraut 30.
Góðir gestir koma í heimsókn.
FjölbroutQrskólonemendur flytja otriði úr Almost Fomous
söngleiknum og morgt fleiro. Allir velkomnir!
Höfum gaman somon - Samfylkingin Akranesi.
Samfylkingin
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi leitar eftir tilnefningum um
einstaklinga sem eru þess verðir að hljóta sœmdarheitið
Frumkvöðull Vesturlands 2006.
Leitað er að einstaklingi sem skarar fram úr í þróun nýrrar þjónustu,
vöru eða viðburða í landshlutanum. Tilnefningar berist til Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi eða með
tölvupósti á netfangið frumkvodull@ssv.is
Tilnefningarnar þarf að rökstyðja með fáeinum orðum.
Dugnaður og frumkvœði eru mikilvœgir eiginleikar í sérhverju
samfélagi, ekki síst í smáum samfélögum. Þessir eiginleikar jafnvel
fárra einstaklinga geta skipt sköpum um það hversu lífvœnlegt er að
búa í litlu samfélagi í dreifbýlinu.
Dómnefnd mun velja úr innsendum tilnefningum. Það sem dómnefnd mun
einkum horfa til er eftirfarandi:
=> Nýjabrum á svœðinu*. Nýnœmi í framkvœmdum, atvinnulífi eða
félagslífi.
Framfarir. Hversu mikið framfaraskref er um að rœða fyrir landshlutann.
=> Árœðni. Hversu mikið árœðni og fyrirhyggju þurfti til að gera verk úr
hugmyndinni.
(*Svœði getur náð yfir all* Vesturland eða viðkomandi sveitarfélag, allt eftir eðli starfseminar og verður að meta
það i hverju tilfelli fyrir sig.)
Tilnefningar þurfa að berast
fyrir 15.mars 2007.
ssv
Samtök sveitarfélaga
á Vesturlandi