Skessuhorn - 28.02.2007, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007
SBlSSlíiIOiaKI
Vegagerð um Grunna-
íjörð fari í óformlegt mat
Borgarbyggð tapar máli vegna
sölu á Alftárósi
Vegamálastjóri leggur til að á
næstunni fari fram óformlegt mat á
því hvort vegagerð við Grunna-
fjörð geti átt sér stað í ffamtíðinni
og þeirri athugun verði lokið þegar
kemur að næstu endurskoðtm sam-
gönguáætlunar. Eins og ffarn hefur
komið í fféttum Skessuhorns var
vegur við Grunnafjörð tekinn út af
lista yfir líklegar ffamkvæmdir á
samgönguáætlun á lokastigum
matsvinnu áætlunarinnar. Að sögn
samgönguráðherra var það að til-
lögu samgönguráðs þar sem meðal
annars situr Jón Rögnvaldsson
vegamálastjóri. I samtali við
Skessuhorn segir Jón að vegur um
Gnmnafjörð hafi eins og fjölmarg-
ar aðrar ffamkvæmdir í samgöngu-
málum ekki komist inn á sam-
gönguáætlun áranna 2007-2018.
Það sé hinsvegar enginn dómur yfir
ffamkvæmdinni og nefnir að sam-
gönguáætlun sé endurskoðuð á
fjögurra ára ffesti.
Jón segir að það hafi lengi verið
ljóst að vegagerð á þessum stað
mæti nokkurri andstöðu og því hafi
málið verið í ákveðinni pattstöðu
því ekki sé hægt að fara í formlegt
umhverfismat fyrr en framkvæmdir
hafa verið ákveðnar. Hann segir
stöðu mála þarna mjög sérstaka og
því sé það hans persónulega skoðun
að fram þurfi að fara óformlegt mat
á möguleikum ffamkvæmda með
þátttöku hagsmunaðila eins og
sveitarstjóma á svæðinu, Vegagerð-
arinnar, Umhverfisstofnunar svo
einhverjir aðilar séu nefhdir. Nið-
urstöður matsins liggi síðan fyrir
þegar vinna fer af stað við næstu
endurskoðun samgönguáætlunar.
Með þessu fyrirkomulagi sé hægt
að koma málinu úr þeirri pattstöðu
sem það sé í að mati Jóns. HJ
Sveitarfélagið Borgarbyggð og
Sparisjóður Mýrasýslu töpuðu fyrir
skömmu máli í héraði sem ábúend-
ur jarðarinnar Alftáróss höfðuðu
vegna sölu á jörðinni. Krafa þeirra
var sú að kaupsamningur og afsal
yrði ógilt milli sveitarfélagsins og
Sparisjóðsins. Dómurinn féllst á
það og er Borgarbyggð gert að gefa
út afsal fyrir jörðinni til núverandi
ábúenda gegn greiðslu kaupverðs
að fjárhæð 45 milljónir króna
króna.
Forsaga málsins er sú að sveitar-
félagið Borgarbyggð seldi Spari-
sjóði Mýrasýslu jörðina 10. júní
2004 ásamt fleiri eignum í maka-
skiptum fýrir húseign að Borgar-
braut 14 í Borgarnesi, þar sem ráð-
hús sveitarfélagsins er nú. Kaup-
verðið var 83 milljónir króna sem
greitt var með þremur fasteignum,
jörðinni Álftárósi að andvirði 45
milljónir, Borgarbraut 9-13 sem
metin var á 30 m. og jörðinni
Stapasel að andvirði 8 milljónir. A-
búendur jarðarinnar, þau Einar
Karelsson og Ragnheiður Einars-
dóttir, hafa setið hana síðan 1. jan-
úar 1993 er þau tóku hana á leigu af
Alftaneshreppi. Leigutími var til
fardaga 1996 og átti fýrir þann tíma
að endurnýja byggingabréfið, sem
ekki var gert en samkomulag milli
aðila að ábúendur fengju lífstíðará-
búð. Með í leigunni fýlgdi fúllvirð-
isréttur í mjólk en undanskilin leig-
unni var öll lax- og silungsveiði í
ám og lækjum.
I makaskiptasamningi milli
Sparisjóðsins og Borgarbyggðar var
tekið fram að Sparisjóði Mýrasýslu
væri kunnugt um byggingabréf
milli ábúenda og fýrrum Álftanes-
hrepps. Borgarbyggð gaf síðan út
afsal til Sparisjóðs Mýrasýslu fýrir
jörðinni 27. september 2005. Spari-
sjóður Mýrasýslu býður ábúendum
jörðina til kaups, 5. ágúst fýrir
sömu upphæð og sjóðurinn hafði
fengið fýrir eigina í makaskiptun-
um sem var hafnað.
Annar af ábúendum Álftáróss,
Ragnheiður Einarsdóttir sagði í
samtali við Skessuhorn að hún vildi
ekkert tjá sig um málið að svo
stöddu. Borgarbyggð hefði enn
frest til að áffýja og best væri að sjá
hvort það yrði gert áður hún segði
eitthvað opinberlega. Páll S.
Brynjarsson sveitarstjóri Borgar-
byggðar sagði aðspurður að ekkert
hefði verið ákveðið enn hvort dóm-
urinn yrði látinn standa eða honum
áfrýjað.
BGK
Stefiit að stofiiun amarskoðunar-
stöðvar í Reykhólasveit
Uppi eru hugmyndir um að
koma upp arnarskoðunarstöð í
Reykhólasveit. I samtali við Oskar
Steingrímsson, sveitarstjóra Reyk-
hólahrepps kom ffarn að fólk á
staðnum er mjög spennt og bjart-
sýnt fýrir að slík stöð rísi í sveitinni.
Hugmyndin að amarskoðunar-
stöð er sótt til írlands, en ernir hafa
í hugum Islendinga löngum verið
taldir til einkennisfugla Vestfjarða
og Breiðafjarðar. Áhugi á því að sjá
örn er mikill en menn telja það
skipta sköpum fýrir aðdráttarafl
stöðvarinnar að hægt sé að sjá fugl-
ana betur í sjónauka og því verður
staðsetning stöðvarinnar að taka
mið af slíku. Oskar segir að í lögum
tun verndtm arna sé óheimilt að
fara nær arnarhreiðri en 500 metra
og því þurfi að finna stað sem býð-
ur upp á slíkt. Ekki er líklegt að
stöðin verði á Reykhólum sjálfum,
en ekkert hreiður er í nágrenni
þéttbýlisins svo vitað sé, en Oskar
segir það eðli fuglaáhugamanna að
taka hvers kyns króka til að skoða
fugla og því efast hann ekki um að
staðurinn muni hagnast og njóta
góðs af umferð gestanna.
Auk þess sem
hægt verður að
skoða ernina sjálfa
er stefht að því að
innan stöðvarinnar
verði þekkingarset-
ur þar sem aðstaða
til rannsókna verð-
ur á örnum, í sam-
starfi við heima-
menn, fýrir vísinda-
menn hvaðanæva úr
heiminum. Einnig
er ráðgert að vett-
vangur verði fýrir
fuglaáhugamenn og
háskólanema sem
aðstoða við vöktun
yfir sumartímann í
sjálfboðavinnu.
Oskar vonast til
að málið eigi eftir
að skýrast fljótlega
enda fólk afar já-
kvætt fýrir hug-
myndinni og mikill akkur fyrir
ferðaþjónustu á svæðinu. Hann
segir að íbúar finni fýrir aukinni
umferð ferðamanna og með til-
komu arnarskoðunarstöðvar mætti
búast við enn ffekari fjölgun. Eina
vandamál Reykhóla í dag væri hins-
vegar skortur á starfsmönnum og
brýnt væri að leysa úr því.
KH
Ekld tónleikasalur í
nýjum tónlistarskóla
Salur sá sem verður í nýjum tón-
listarskóla á Akranesi verður ekki
tónleikasalur heldur svokallaður
fjölnotasalur. Þetta kemur ffarn í
minnisblaði af fundi um húsnæðis-
mál skólans sem haldinn var 21.
febrúar. Til fundarins mættu Elín
G. Gunnlaugsdóttir arkitekt húss-
ins og Bjarni Gíslason ffá VGK-
Hönnun. Auk þeirra sátu fundinn
bæjarfulltrúar meirihluta bæjar-
stjórnar, bæjarstjóri, skólastjóri
Tónlistarskólans og framkvæmda-
nefnd mannvirkja Akraneskaup-
staðar.
Á fundinum var kynnt fýrirliggj-
andi hönnun skólans og einnig var
gerð grein fýrir „þeim aðgerðum
sem unnið hefur verið að og snúa
að hljóðhönnun og kennslurýmis
og fjölnotasalar skólans,“ eins og
segir orðrétt í minnisblaðinu.
Hönnuðir undirstrikuðu sérstak-
lega á fundinum að verið væri að
hanna „kennslurými svo og fjöl-
notasal en ekki tónleikasal.“ Þá
kemur ffam að gert sé ráð fýrir að
allur ffágangur verði eins og best
verður á kosið þannig að húsnæðið
fullnægi ýtrustu kröfum til tónlist-
arkennsluhúsnæðis. „Fram kom í
máli Bjama að vegna lofthæðar í
tónleikasal væri gert ráð fýrir sér-
stökum búnaði sem tryggja á full-
nægjandi hljómburð í aftari hluta
salarins,“ segir orðrétt í minnis-
blaðinu.
Eftir að hönnuðir höfðu yfirgef-
ið fundinn bókuðu fundarmenn að
í ljósi undangenginnar kynningar
hönnuða og viðræðna við þá séu
fundarmenn sammála um að undir-
búningur svo og niðurstaða hönn-
tmarinnar muni leiða til fullnægj-
andi lausnar á húsnæðismálum tón-
listarskólans og að ekkert bendi til
annars en að fýrirhugaður fjölnota-
salur muni geta þjónað því hlut-
verki sem í upphafi var stefht að.
Hvort slegið hafi verið af kröfum
til húsnæðis tónlistarskóla skal
ósagt látið en þann 23. janúar ritaði
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri grein
í Skessuhorn þar sem segir meðal
annars orðrétt: „Á næstunni verður
undirritaður samningur um tónhst-
arskóla og mtm sá skóli standa und-
ir ítrustu gæðakröfum og verða til
mikils sóma fýrir Akurnesinga.“
HJ
Oskudegi fagnað með söng, gleði og leikrænni tjáningu
Krakkar um allt Vesturland héldu upp á öskudaginn í síðustu viku með tilheyrandi hátíðarhöldum, búningum, s'öng og nammiáti í fi'amhaldinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Grundarfirði, Borgamesi og á Akranesi og tala sínu máli.