Skessuhorn - 28.02.2007, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
7
Vatnsútflutningur firá
Snæfeflsnesi að hefjast
Undirbúningur að byggingu
vatnsverksmiðju Icelandia á Snæ-
fellsnesi gengur sem næst sam-
kvæmt áætlun að sögn Birgis Viðars
Halldórssonar eins af frumkvöðlum
verkefnisins. Hann segir vinnu við
íjármögnun fyrirtækisins standa nú
sem hæst og vonast til þess að fram-
kvæmdir við byggingu verksmiðju
hefjist sem fyrst.
A næstu dögum hefst átöppun
vatns í 24 þúsund lítra tanka sem
fluttir verða út til framleiðenda sem
þurfa að nota gæðavatn við ffam- Rifi. Að sögn Birgis Viðars er von- erlendis fyrri hluta marsmánaðar.
leiðslu sína. Atöppunin fer fram í ast til þess að tilraunasending fari HJ/ Ljósm. Alfons Finnsson
úúfyv Í Exporiing soon!
I WATERFOR
THEWORLD.
1
'"'imX'
Nc
•- ' . fy'VÍ’
r t I
Mfldl hækkun fasteignagjalda
í Borgarbyggð
í lok síðustu viku barst fasteigna-
eigendum í Borgarbyggð í pósti
álagningarseðill fasteignagjalda árs-
ins 2007. Greinilegt er að mörgum
þeirra brá í brún er þeir lásu álagn-
ingarseðilinn því ljóst er að talsverð
hækkun hefur orðið á milli ára.
Skessuhom hefur undir höndum
álagningarseðil frá eiganda einbýlis-
húss í Borgamesi. Fasteignagjöld
þess húss hafa á milli ára hækkað um
ríflega 31%. Sem kunnugt er hækk-
aði fasteignamat í Borgamesi um
síðustu áramót um 15%. Sum sveit-
arfélög hafa bragðist við slíkri hækk-
un á þann veg að lækka álagningar-
stuðla á móti. Slíkt var ekki gert í
Borgarbyggð og er því álagningar-
stofrúnn áffam 0,41%. Fasteigna-
skattur þessa húss hækkar því á milli
ára um tæp 15%. Lóðarleiga húss-
ins hækkar á milli ára um rúm 53%.
Má það rekja til hækkunar matsins
eins og áður sagði og einnig til þess
að álagningarstuðull var hækkaður
úr 0,75% í 1% á milli ára. Fráveitu-
gjald hússins hækkar gríðarlega á
milli ára eða um tæplega 91%. Það
má rekja til hækkunar mats og þess
að álagningarstuðullinn hækkaði úr
0,18% í 0,3%. Vatnsgjald hússins
hækkar á milli ára um 12,3% en
sorpgjaldið stendur í stað á milli ára.
I heild hækka því fasteignagjöldin á
þessu húsi eins og áður sagði tun ríf-
lega 31%.
Páll S Brynjarsson, sveitarstjóri
sagði að við sameiningu sveitarfé-
laga í hina nýju Borgarbyggð hefði
þurff að samræma gjaldskrár þeirra
sveitarfélaga er sameinuðust. Sveit-
arstjórn hefði ákveðið að halda
álagningarstuðli fasteignagjalda
óbreyttum þrátt fyrir hækkun fast-
eignamats. Lóðarleiga hefði verið
misjöfn í sveitarfélögunum og hefði
niðurstaðan orðið sú að hún yrði
1%. Mestar hækkanir hefðu hins
vegar orðið á ffáveitugjöldum. Sem
kunnugt er tók Orkuveita Reykja-
víkur þann málaflokk yfir á síðasta
ári og standa nú fyrir dyrum miklar
framkvæmdir í þeim málaflokki sem
vom löngu orðnar tímabærar að
mati Páls. Því hefði verið nauðsyn-
legt að hækka gjöldin. Aðspurður
hvort þau myndu þá lækka þegar
framkvæmdum lýkur árið 2009
sagðist Páll ekki geta slegið því föstu
því ffáveitugjöld þyrftu einnig að
standa undir rekstri ffáveitnanna.
Hann vildi ekki meina að þau hefðu
því verið of há til þessa þrátt fyrir að
nú þurfi að grípa til þeirra viðamiklu
ffamkvæmda sem nú er raunin. Þau
hefðu aðeins staðið undir þeim
rekstri sem verið hefði og nauðsyn-
legum framkvæmdtun.
Páll sagði að fasteignagjöldum
væri ætlað að standa undir ákveðn-
um hluta af rekstri sveitarfélagsins.
Sveitarstjóm hefði fjallað um álagn-
ingu fasteignagjalda á sínum tíma og
verið samstíga við afgreiðslu máls-
ins. HJ
Heyrnartækjaþjónusta
Borgarnesi
Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður Borgarnesí
við heyrnarmælingar og sölu heyrnartækja
13. og 14. mars
\-F- \ Gí\
Smágrafa ásamt
kerru til leigu
Fín ígarðinn, bílaplanið, drenið, grunninn
og margt fleira.
j Upplýsingar í síma 848 1554
eða 896 5735.
+
Rauði kross íslands
Akranesdeild
Rauði kross Islands-Akranesdeild
heldur aðalfund þriðjudaginn
13. mars nk. kl. 20:00 í húsnæði
deildarinnar að Þjóðbraut 11.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Stjórnin
A
Stéttarfélag Vesturlands
Stjórnarkjör 2007
Samkvæmt lögum Stéttarfélags Vesturlands ber að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þetta ár ber að
kjósa í stjórn sem nér segir:
Til 2ja ára: formann, ritara og 1. meðstjórnanda.
Til 1 árs: varaformann, vararitara og 2. meðstjórnanda.
Framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vesturlands
árið 2007, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna,
ber að skila til formanns kjörstjórnar, Sigríðar H. Skúladóttur,
Þórólfsgötu 17 a, Borgarnesi, fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn
15. mars 2007.
Hvert það framboð er gilt sem fram kemur innan þess tíma
og hefur skriflegt samþykki þeirra sem framboðslistann skipa.
Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að leggia
fram eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2007. - Komi ekki
fram fleiri listar teljast þeir sem trúnaðarráð hefur gert tillögu
um sjálfkjörnir:
Sveinn G. Hálfdánarson, Borgarbyggð
Baldur Jónsson, Borgarbyggð
Sigurþór Óskar Ágústsson, Borgarbyggð
Kristín H. Ármannsdóttir, Hvalfjarðarsveit
Kristján Jóhannsson, Dalabyggð
Kristín Anna Kristjánsdóttir, Borgarbyggð
Formaður:
Ritari:
1. meðstjórnandi:
Varaformaður:
Vararitari:
2. meðstjórnandi:
Borgarnesi, 24. febrúar 2007.
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands