Skessuhorn - 28.02.2007, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007
9
Nemendum og kennurum
í grunnskólum fækkar
í haust voru nemendur í grunn-
skólum á Vesturlandi 2.398 talsins
og hafði þeim fækkað um rúm 3%
frá árinu á undan þegar þeir voru
2.474 að tölu. Argangar eru mjög
misjafhlega stórir og því nokkrar
sveiflur á milli ára í fjölda nema.
Undanfarin tíu ár hafa nemendur í
grunnskólum Vesturlands verið
2.448 að meðaltali.
Flestir nemendur voru í haust í
Grundaskóla á Akranesi, 525 talsins
en fæstir voru þeir í Grunnskólan-
um í Tjamarlundi eða 11 að tölu. Af
einstökum sveitarfélögum má nefha
að þrátt fyrir nokkra fjölgun íbúa á
Akranesi fækkar grunnskólanemum
úr 952 árið 2005 í 948 árið 2006.
Grunnskólanemum hefur þó fjölgað
nokkuð á Akranesi á hðnum árum
því árið 2001 vora þeir 881 talsins.
I Borgarbyggð voru nemar í haust
635 en vora 648 árið áður. I Grund-
arfirði voru nemamir 175 og hefði
fækkað um rúm 11 % á milli ára. Frá
árinu 2001 hefur nemum þar fækkað
úr 211 eða um rúm 17%. í Stykkis-
hólmi vora 173 grunnskólanemend-
ur í haust og hafði fækkað á milli ára
úr 181. Frá árinu 2001 hefur þeim
fækkað úr 209 eða rúm 17%. í
Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi
voru 44 nemendur og hafði fjölgað
um tvo ffá fyrra ári.
I grunnskólum Snæfellsbæjar
vora 237 nemendur í haust en vora
árið áður 248 talsins. Frá árinu 2001
hefur nemendum fækkað úr 301 eða
um ríflega 21%. Eins og áður sagði
vora nemendur í Tjamarlundi 11 að
tölu en voru 12 árið áður og í
Grunnskólanum í Búðardal voru
nemendur 82 en voru 84 árið áður.
Frá árinu 2001 hefur grunnskóla-
nemendum í Búðardal hins vegar
fjölgað úr 70 eða um rúm 17%.
Kennurum grunnskólanna á Vest-
urlandi fækkaði einnig á milli ára.
Haustið 2006 voru þeir 289 að tölu
en árið áður vora þeir 294 talsins.
Frá árinu 2003 hefur kennuram
fækkað úr 315 eða um rúm 8%.
Kvenfólk var í miklum meirihluta í
kennarastétt. Þær voru í haust 216
talsins. Hlutfall kennara með
kennsluréttindi á Vesturlandi hefur
hækkað á undanfömum árum. Arið
2001 var hlutfallið 72,8% en í haust
var það komið í 83 %. HJ
Fonrnðurur
tveimur nej&idum
Karen Jónsdóttir bæjarfulltrúi
Frjálslynda flokksins í bæjarstjórn
Akraness og formaður bæjarráðs
hefur sagt af sér sem formaður at-
vinnumálanefiidar Akraness og í
hennar stað hefur Asgeir Hlinason
verið kjörinn formaður nefndar-
innar. Þá hætti Karen sem vara-
maður í félagsmálaráði og í hennar
stað var kjörin Barbara Davis.
Einnig hefur Sigurjón Runólfsson
hætt sem varamaður í atvinnu-
málanefnd og í hans stað var kjör-
in í nefhdina Helga K. Jónsdóttir.
Þá hafa einnig orðið breytingar á
nefhdaskipan Framsóknarflokks-
ins. Þórunn Matthíasdóttir hefur
látdð af störfum sem varamaður í
félagsmálaráði og í hennar stað
kemur Guðný Rún Sigurðardóttir.
Þá hafa Helgi Pétur Magnússon
sem sæti hefur átt sem aðalmaður í
tómstunda- og forvamanefnd haft
sætaskipti við Bjarka Þór Aðal-
steinsson sem verið hefur vara-
maður hans í nefndinni. HJ
Akraneskaupstaður
Óskum eftir nýliðum á aldrinum 20-
28 ára í Slökkvilið Akraness.
Iðnmenntun og meirapróf æskileg.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást hjá slökkviliðsstjórum í símum
894-2960 Þráinn
840-6386 Halldór
840-6618 Björn
Umsóknir berist fyrir 20. mars 2007, merkt:
Slökkvilið Akraness
Kalmannsvöllum 2
300 Akranes
L .................A
www.skessuhorn.is
r
Akraneskaupstað ur
-------------------7“---------------------
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Höfðasels á Akranesi
Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir
athugasemaum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Höfðasels á Akranesi.
Skipulagssvæðið eru lóðirnar númer 7, 9, 11,13,15 og 16 við Höfðasel Akranesi.
Breytingin felst m.a. í að lóðirnar númer 7 og 9 eru felldar út og lóðamörkum lóða
númer 11, 13, 15 og 16 er breytt. Einnig hafa byggingarreitir verið endurskilgreindir.
Lóðirnar verða áfram skilgreindar undir iðnaðarstarfsemi og nýtingarhlutfall verður
að hámarki 0,2.
| Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að
] Dalbraut 8, Akranesi, frá 5. mars 2007 til og með 2. apríl 2007.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 16. apríl 2007 og skulu þær
berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
L.
Akranesi 27. feb. 2007
sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar - Þorvaldur Vestmann
A
Sjúkraliðar -
ófaglært starfsfólk!
»".■ ■ - ■ . ............- - ----~1
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðm á Akranesi óskar
eftir að ráða sjúkraliða og ófaglært starfsfólk til
afleysinga á legudeildir stofnunarinnar i sumar.
Allar nánari upplýsingar um störfín og launakjör
gefur hjúkrunarforstjóri í síma 430 6012.
SIHAb
Sjúkrahúslð og heilsugæslustöðln á Ahranesi
Merkigerði 9 • 300Akranes
Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf
Melabraut 21-27 - 220 Hafnarfjörður
Sími 565-1240 - Fax 565-2243
Töivupóstur vhe@vhe.is
VHE, (vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf.) er
móðurfyrirtæki 10 annara fyrirtækja hér á landi.
Þessi fyrirtæki sérhæfa sig á ýmsum sviðum iðnaðar
svo sem í þjónustu við áliðnaðinn og önnur
iðnfyrirtæki, hönnun og framleiðslu á tækjum og
búnaði fyrir álver á íslandi og annars staðar í
heiminum, vökva- og loftbúnaði, vélahönnun,
rafmagnshönnun, hugbúnaðargerð og ýmsu fleiru.
Vegna mikillar vinnu, einkum í tengslum við
áliðnaðinn á íslandi, þá viljum við ráða
vélvirkja og rafvirkja til að starfa hjá
fyrirtækinu. Um er að ræða fjölbreytt og
krefjandi störf við hátæknivæddan iðnað.
í boði eru góð laun fyrir gott fólk og húsnæði
og mötuneyti á staðnum.
Nánari upplýsingar í síma 893 3844
Einnig er hægt að leggja inn umsókn eða
fyrirspurnir með rafpósti, ingi@stimir.is
Svœðisskrifstofa málefna
fatlaðra Vesturlandi
Viltu skemmtilega
sumarvinnu?
Við í skammtímavistuniimi í Holti óskum eftir starfsfólki á öllum aldri með ólík
áhugamál og starfsreynslu í sumarvinnu.
Stefnt er á að opna Holt fyrir sumardvöl í sex vikur í sumar frá
15. júní - 27. júlí.
Starfið byggist upp á að auka félagshæfni barnanna og gera þeim
sumardvölina sem ánægjulegasta.
Boðið er upp á að greiða aksturskostnað fyrir þá sem búa, á bilinu, 10-50 km
fjarlægð frá vinnustaðnum skv. taxta ríkisins 68,-kr per km.
Ef þú ert 17 ára eða eldri og hefur áhuga á að starfa með fötluðum börnum
hafðu endilega samband við Guðnýju Sigfúsdóttir
forstöðuþroskaþjálfa í síma 893-9588 eða
sendu tölvupóst á gudny@sfvesturland.is