Skessuhorn - 28.02.2007, Qupperneq 11
...fwiih..:
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
11
Frumkyöðullinn Páll Gíslason heiðraður
Síðastliðinn föstudag hélt fram-
kvæmdastjórn Sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarirmar á Akranesi
hóf til heiðurs Páli Gíslasyni fyrr-
verandi yfirlækni Sjúkrahúss Akra-
ness þar sem þess var minnst að um
þessar mundir eru rúm 40 ár liðin
frá því að æðaskurðlækningar
hófust á Islandi. Páll var einn frum-
kvöðla á því sviði og gerði fyrstu
aðgerðimar á Akranesi.
Fritz Berndsen yfirlæknir hand-
lækningadeildar rakti í upphafi
hófsins starf Páls og Þórir Berg-
mundsson lækningaforstjóri flutti
erindi um Pál, feril hans og störf í
þágu stofnunarinnar. Þá rakti hann
þá miklu uppbyggingu sem átti sér
stað þau ár sem Páll starfaði við
stofimnina.
I hófinu var sýnd kvikmynd sem
tekin var upp árið 1967 af aðgerð
sem Páll ffamkvæmdi á Sjúkrahúsi
Akraness og hafði hann nýverið tal-
sett hana. Að lokinni sýningu
myndarinnar ávarpaði Páll sam-
komuna. Lýsti hann
aðstæðum á Akranesi
þegar hann tók við og
þeirri baráttu sem háð
var við uppbyggingu
sjúkrahússins. Hann
sagði gott starf hafa
byggst upp vegna mik-
ils samhugs bæjarbúa.
A þeim tíma hefði bæj-
arfélagið þurft að leggja
sjúkrahúsinu til tals-
verða fjármuni sem
bæjarbúar hefðu ekki
séð efdr. Það hefði hins
vegar verið mikil bar-
átta að koma sjúkrahús-
inu á fjárlög þannig að
það stæði nær stóru
sjúkrahúsunum hvað
fjárveitingar varðaði.
I upphafi ferils síns á
Akranesi bjó Páll með
fjölskyldu sinni á
sjúkrahúsinu. Ekki lét hann sér
nægja að sinna eingöngu erilsömu
starfi yfirlæknis heldur starfaði
hann mikið í skátahreyfingunni og
varð seinna Skátahöfðingi Islands.
Um árabil sat Páll einnig í bæjar-
stjóm Akraness og var kjörinn fyrst
bæjarfulltrúi 1962. I aðdraganda
þeirra kosninga var tekist á um
stækkun sjúkrahússins og sagði Páll
það eina tímabilið sem tekist var á
um málefni sjúkrahússins. Stefna
þeirra sem vildu stækka náði fram
að ganga og var það mikið fram-
faraskref að sögn Páls. Minntist
hann margra samstarfsmanna sinna
frá þessum árum með mikilli hlýju,
bæði þeirra er störfuðu innan
sjúkrahússins og einnig þeirra er
störfuð að uppbyggingu hússins.
Þar hefðu ávallt ffamsýnir menn
verið á ferð en glíman við embætt-
ismannakerfið hefði oft verið erfið.
Þrátt fyrir háan aldur mætti Páll
til hófsins ásamt Soffíu Stefánsdótt-
ur eiginkonu sinni. Einnig vom
tvær dætur þeirra hjóna viðstaddar
svo og gamlir samstarfsmenn Páls,
ráðherrar, þingmenn, embættis-
menn ásamt núverandi starfsmönn-
um SHA.
Svo skemmtilega vildi til að hér á
landi var staddur skoskur prófessor
sem dvaldi á Akranesi í 3 mánuði
fyrir 40 árum sem skiptinemi á
sjúkrahúsinu og starfaði með Páli
og var hann jafnframt meðal gesta
og flutti stutt ávarp.
HJ
Páll Gíslason fyrrverandi yfirlæknir.
Bárður SnæfeUsás í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Síðastliðið haust hófst kennsla í
þróunaráfanga við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga sem hlaut nafnið
SNÆ. Afangiim er ætlaður nem-
endum sem luku námi í tíunda bekk
síðastliðið haust og sóttu 18 nem-
endur um inngöngu og fengu allir.
Afanginn er hluti af samstarfsverk-
efni þriggja skóla á Norðurlöndum,
FSN, Fredrika Bremer Gymnasium
í Haninge í Svíþjóð og Kainuun
Ammattiopisto í Kajaani í Finn-
landi. Nemendur FSN og Kainu-
un, munu heimsækja Fredrika
Bremer skólann í vor, Kainuun
verður heimsóttur vorið 2008 og
verkefninu lýkur með heimsókn
vinaskóla okkar hingað vorið 2009.
Markmið áfangans er að vinna
með goðsögur og sagnir af Snæ-
fellsnesi frá upphafi byggðar til
dagsins í dag. Við hófum vinnuna
með því að kynna okkur landnám
og unnu nemendur skemmtileg
verkefhi út frá því.
Að landnámi loknu færðum við
okkur örlítið framar í tíma og hóf-
um að kynna okkur sögu Bárðar
Snæfellsáss. Nemendur lásu söguna
og ákváðu upp frá því að setja hana
á svið. Þar sem Bárðar saga er flók-
in var ákveðið að gera uppsetning-
una með afar nýstárlegum hætti
sem myndi auðvelda okkur að yfir-
færa söguna á annað tungumál.
Nemendur hafa unnið hörðum
höndum að því að skrifa handrit að
leikritinu í samvinnu við kennara
og hafa nú þegar hafið tökur á ýms-
um atriðum sögunnar, en leikritáð
verður sambland hefðbundinnar
leiksýningar, kvikmyndagerðar og
ljósmyndasýningar. Aætluð frum-
sýning er um miðjan apríl, en hún
verður auglýst nánar þegar nær
dregur.
Afangi eins og þessi er alls ekki
sjálfsagður og kostar aukið fé, en
við höfum notið styrks frá
Nordplus junior áætlun Norður-
Mildl gróska í leik-
starfsemi í Borgarfirði
Mikil gróska er í leikstarfsemi í
Borgarfirði um þessar mundir. Eins
og ffarn kom í ff éttum Skessuhoms
nýlega er leikdeild Umf. Skalla-
gríms við æfingar á leikritinu Sex í
sveit í Lyngbrekku. En tvær aðrar
leikdeildir ungmennafélaga eru
komnar til æfinga.
I Logalandi era Reykdælir við
æfingar á stuttu leikriti og tveimur
einþáttungum. Leikritið „Nú fljúga
hvítu englarnir“ er eftir Örnólf
Guðmundsson sem búsettur er í
Reykholti og einþáttungarnir
„Flugfreyjuþáttur" og „Er það ég“
eru eftir Kristínu Gestsdóttur. Að
sögn Steinunnar Garðarsdóttur,
leiknefndarformanns á Grímsstöð-
um í Reykholtsdal, er þetta hóp-
vinna félagsmanna. Sett verður á
fót kaffileikhús í Logalandi þar sem
þessi gamanleikrit verða flutt auk
söngva úr verkum sem Ungmenna-
félag Reykdæla hefur áður sýnt.
Það er gott söng- og tónlistarfólk
úr sveitinni og nágrenni sem sér
um að flytja lögin. Ráðgert er að
frumsýna 9. mars nk.
I félagsheimilinu Þinghamri hafa
Tungnamenn hafið æfingar á leik-
riti effir Andreu Davíðsdóttur sem
lengst bjó í Norðtungu. Leikritið
gerist á stríðsárunum og hefur
aldrei verið sýnt áður, svo vitað sé.
Um er að ræða gamanverk þar sem
létt grín er gert að ýmsum hópum
samfélagsins og samskiptum þeirra
á milli. Og auðvitað kemur ástin
við sögu. Inn í verkið er fléttað
söngvum af ýmsum toga, flestum
frá þeim tíma sem verkið gerist á.
Leikstjóri er Margrét Akadóttir og
áætlað er að firumsýna í lok mars.
BGK
landanna og frá Þróun-
arsjóði ffamhaldsskóla.
Þegar ákveðið var að
fara í uppsetningu á
leikriti byggðu á sögu
Bárðar Snæfellsáss sótt-
um við um styrk til
Menningarsjóðs Vest-
urlands og hlutum
500.000 kr. styrk úr
honum síðastliðinn
fimmtudag. Við viljum
lýsa yfir þakklæti okkar
á styrkveitingunum því
þær hafa gert okkur
kleyft að setja upp ný-
stárlega leiksýningu og
flytja hana út fyrir land-
steinana.
Berglind Axelsdóttir,
Helga Lind Hjartardótt-
ir, Hrafnbildur Hall-
varðsdóttir og Sólrún
Guöjónsdóttir, nemend-
umir sem eru í SNÆ
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Akraneskaupstað ur TiHaga að breytingu á deiiiskipulagi Sólmundarhöfða á Akranesi
Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir
tillöt
athugasemdum við tilíögu að breytingu á deiíískipulagi Sólmundarhöfða á Akranesi.
Skipulagssvæðið er lóð undir dælustöð við Innnesveg á Akranesi.
Breytingin felst m.a. í að afmörkuð er 287 m2 lóð undir dælustöð fyrir fráveitu, stöðin verður
neðanjarðar nema nauðsynlegar lúgur og hlemmar til viðhalds og aðkomu. Kvöð verður á
lóðinni um að halda stígakerfi að mestu óbreyttu. Heimiltverði að leggja nýjan akfæran
aðkomustíg að Innnesvegi.
Tillagan, ásamtfrekari upplýsingum, liggurframmi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að
Dalbraut 8, Akranesi, frá 5. mars 2007 til og með 2. apríl 2007.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 16. apríl 2007 og skulu þær
berastá bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Akranesi 27. feb. 2007
sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar - Þorvaldur Vestmann