Skessuhorn - 28.02.2007, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007
^»U3UHu.-;
Fjölbreyttar íþróttír í boði fyrir
yngstu bömin á Vesturlandi
þriggja mánaða gömul tekið þátt og
segir Katrín það yfirleitt mjög vel
sótt. Framhaldsnámskeið í sundi
eru síðan í boði allt upp að skóla-
aldri og foreldrar eru þátttakendur
þar til bömin verða fjögurra ára, en
þá er m.a. farið að kenna börnunum
bringusund. Allar æfingar og áskor-
anir era gerðar ævintýralegar og
spennandi. T.d. eru börnin beðin
um að kafa efrir leyndum fjársjóði,
gulli og gersemum á botninum,
þegar æfa á kafsund.
Iþróttaskólinn á Akranesi er fyrir
böm á aldrinum tveggja til fimm
ára og er á laugardögum. Þar er
lögð áhersla á bæði gróf- og fín-
hreýfingar, með þrautum hvers
konar og leikjum en ekki síst, segir
Katrín, er gott að venja börnin við
ögrandi aðstæður. Hún segir
íþróttahús og umhverfi oft virka
ógnandi og yfirþyrmandi til þess að
byrja með fyrir yngstu börnin. Því
sé hollt að venja þau við húsin í
fylgd með foreldrum sínum, áður
1 ungbamasundi á Akranesi.
Mikilvægt er að börn, helst sem
fyrst, alist upp við að fá góða hreyf-
ingu til að byggja þau upp fyrir líf-
ið. Til að forvitnast um hvemig
íþróttaiðkun og ffamboði á þjálfún
barna er háttað hér á Vesturlandi
leitaði Skessuhorn til nokkurra að-
ila sem hafa með íþróttir bama að
gera. I ljós kom að í amk. þremur
sveitarfélögum er gott ffamboð af
ýmis konar íþróttum fyrir börn allt
niður í nokkurra mánaða aldur.
/
„Iþróttabær“
er réttnefni
A Akranesi em ýmsar íþróttir í
boði fyrir yngstu börnin og þ.á.m.
era í boði sundnámskeið, íþrótta-
skóli og að sjálfsögðu fótbolti.
Katrín Harðardóttir, íþróttakennari
í Grundaskóla, er mjög ánægð með
þá valkosti sem í boði em innan
bæjarins og er tilbúin að ffæða okk-
ur örlítið um hverjir þeir séu helst-
ir. Fyrst nefnir hún ungbamasund-
ið, en þar geta böm allt niður í
Katrín Harðardóttir, íþróttakennari á Akranesi.
Sigurður Öm Sigurðsson, íþróttakennari í Borgamesi.
I íþróttaskólanum á Akranesi sl. laugardag.
Telrna Sól og Sólrún Lilja viS einbeittar við œf'mgar i Borgamesi
en þau hefja nám í skólaleikfimi þar.
Fótbolti og Akranes eru bundin
órjúfanlegum böndum og rík
áhersla er lögð á þá íþrótt innan
bæjarins. Líkt og í öðmm íþrótta-
greinum er áríðandi að uppeldið og
þjálfúnin hefjist sem fyrst og því
geta börn hafið æfingar í fótbolta
ffá fjögurra ára aldri. Þær era einu
sinni í viku, á miðvikudögum og era
45 mínútur í senn. Aðspurð tun
óhefðbundnar íþróttir fyrir aldurs-
hópinn 0-5 ára, svarar Katrín að í
skoðtm sé að hefja barnajóga. Þá sé
öðra hverju danskennsla og hún viti
af nokkram krökkum sem stunda
badminton. Katrín hvemr foreldra
eindregið til að virkja börn sín í
íþróttir, af nógu sé að taka og þær
styrki þau á allan hátt, bæði líkam-
lega og andlega.
Hopp og skopp í
Borgamesi
I Borgamesi sér Sigurður Orn
Sigurðsson íþróttakennari, ásamt
konu sinni Kristínu Jónsdóttur, um
íþróttaskóla fyrir börn frá þriggja til
fimm ára og hefur gert um hríð.
Námskeiðin eru nokkur yfir árið og
yfirleitt eru þau mjög vel sótt. Þeg-
ar blaðamann bar að garði í íþrótta-
miðstöðinni í Borgarnesi, voru
krakkarnir þegar byrjaðir að hoppa
og skoppa. Alls kyns tækjum og dóti
var raðað um allan salinn og skríkj-
andi kæti ríkti. Þrautirnar voru
margvíslegar, börnin sveifluðu sér í
köðlum, hoppuðu á milli hluta,
kliffuðu í gegnum hringi og ýmis-
legt annað. Undir vökulum augum
kennara sinna og foreldra,
skemmtu börnin sér hið besta, virt-
ust öragg og óhrædd, sífellt að
sanna fyrir sér og öðram hversu
flink þau væra.
Sigurður segist hafa byrjað nám-
skeiðin fyrir u.þ.b. sex áram og þau
hafi ávallt verið mjögvel sótt. Hann
skipti krökkunum í nokkra hópa og
hver hópur fer sinn hring í skipu-
lagðri þrautabraut og þarf hver
hópur að fara minnst þrjá hringi
áður en skipt er um. Ekki aðeins
læra þau mismunandi æfingar, held-
ur einnig að bíða effir að aðrir
krakkar ljúki þrautum sínum, vera í
skipulagðri röð og hlusta. Aríðandi
sé að foreldrar fylgi börnum sínum,
þannig verða þau óragari á allan
hátt og ekki eins feimin. Námskeið-
in era jafnframt notaleg samvera á
milli barna og foreldra, sem Sigurð-
tn telur mjög mikilvægt. I upphafi
er algengt að börnin sýni loft-
hræðslu við að kliffa á tækjum eða
ganga á jafnvægisslám en það hverfi
yfirleitt og kjarkurinn aukist fljótt.
Iþróttaskólinn venji börnin vel við
íþróttir og oftar en ekki eykst sjálfs-
traust þeirra til muna.
Námskeiðin eru á sunnudags-
morgnum klukkan 10, en Sigurður
segir það því miður eina tímann
sem í boði er í íþróttahúsinu. Fólk
ffeistist frekar að sofa út á sunnu-
dögum en aðra daga og þ.a.l. bimar
það stundum á mætingu. Sex skipti
kosta 3.500 krónur og aðspurður
hvort sveitafélagið greiði eitthvað
af þeim kostnaði, segir Sigurður svo
ekki vera. Hinsvegar viti hann til
þess að sveitafélagið á Álftanesi
bjóði bömum upp á ffían íþrótta-
skóla ffá tveggja ári aldri og þannig
lögð rík áhersla á heilbrigða
íþróttastefúu frá upphafi í því sveit-
arfélagi. Slíkt telur hann vera til eft-
irbreytni, ekki aðeins fyrir Borgar-
byggð, heldur sveitarfélögin út um
allt land.
Að gera hlutina
skemmtilega
f Stykkishólmi verður Eydís Ey-
þórsdóttir fyrir svörum varðandi
íþróttaiðkun barna, en hún er leið-
beinandi og starfsmaður hjá
íþróttafélaginu Snæfelli. í Stykkis-
hólmi býður félagið upp á nám-
skeið, svipuð og í Borgarnesi,
byggð að mesm upp á leikjum og
því að hafa eins skemmtilegt og
mögulegt er. Tarzanleikir, Kötmr
og mús, Björn bóndi og aðrir hef-
bundnir leikir eru meðal þess sem
boðið er upp á, en einnig teygjuæf-
ingar og slökun. Auk námskeiða á
vemrna er gott samstarf á milli
Snæfells og leikskóla staðarins er
börnunum þar boðið upp á nám-
skeið yfir sumartímann. Eydís segir
þau kynnast vel íþróttarhúsinu, en
stærð þess getur orðið stór þrösk-
uldur fyrir óöragg böm, nýbyrjuð í
skóla.
Bamið fær útrás
fyrir orkuna
Sólrún Halla Bjamadóttir, for-
eldri og leikskólakennari á Hvann-
eyri, er dugleg við að nýta sér
íþróttanámskeiðin í Borgarnesi fyr-
ir dóttur sína Telmu Sól ísgeirs-
dóttur. Hún er á fjórða ári og hefur
nú þegar farið nokkram sinnum.
Sólrún Halla segist afar ánægð með
námskeiðin og þar fái Telma Sól út-
rás fyrir þá miklu orku sem hún býr
yfir, auk þess sem hún læri að hlýða,
hlusta og fara effir ákveðnum regl-
um. Telma Sól var tveggja ára er
hún fór í fyrsta skipti og samkvæmt
móðurinni er greinilegur munur á
getu hennar nú við að leysa þraut-
irnar. Hlutir sem hana langaði ekk-
ert sérstaklega að framkvæma í
byrjun leysir hún í dag án nokkurra
vandræða og veður óhikað í allt.
Sólrún Halla segir þetta afar
skemmtilega morgna og bæði hún
og dóttir hennar njóti stundarinnar
til hins ítrasta.
KH