Skessuhorn - 28.02.2007, Qupperneq 17
^ki»unuU:
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
17
Iið heimamaiuia sigr-
aði Viskukúna 2007
Sigurlið heimamanna varskipað þeim Magnúsi BJóns-
syni, Hauki Júlíussyni og Sveinbimi Eyjólfssyni.
Það var þétt setinn
matsalurinn hjá Land-
búnaðarháskólanum á
Hvanneyri þegar
spurningakeppnin
Viskukýrin fór ífam í
þriðja sinn í síðustu
viku en hátt í 200
manns mættu til að
fylgjastmeð. Keppnin
er á vegum Stúdenta-
ráðs og er í anda Gettu
betur keppninnar, en í
þjóðlegum stíl og var
salurinn skreyttur í bak
og fyrir með mjólkur-
brúsum, gærum, nautshúðum og
glæsilegri Farmall Cub dráttarvél
frá Búvélasafrúnu. Kálfurinn Viska
úr Hvanneyrarfjósi lét sig ekki vanta
en hún er sú þriðja í röðinni af
Hvanneyrarkúnum að bera þetta
heiðursnafn.
Baráttan í keppninni var hörð í ár
en úrslitaviðureignin var æsispenn-
andi en lokatölur voru 21:20 fyrir
hði heimamanna sem sigraði hð frá
háskóladeild II. I vinningsliðinu fyr-
ir heimamenn voru þeir Sveinbjöm
Eyjólfsson, Magnús B. Jónsson og
Haukur Júlíusson. Að vanda stýrði
Logi Bergmann Eiðsson keppninni
og fór hann á kostum yfir spuming-
tun um rauðbrandhuppóttar kýr í
bland við þjóðlegan fróðleik.
Skemmtiatriði vora í heimsklassa en
Bjartmar Hannesson á Norður-
Reykjum fór með gamanvísur og
nemendxu: Lbhí fluttu lagið Fjósa-
lykt og gúmmískór.
GB/ Ljósm. Sigrmmdur
Helgi Brink
Prjónað, fræðst og hlegið
í Handavinnuhúsinu
Fitjað upp, spdð og spekúlerað. F.v. Sœbjörg, Jóbanna og Stsí.
Verslunin Handavinnuhúsið hef-
ur verið starfandi við Brákarbraut í
Borgarnesi undanfarið tæpt ár og
hefur þessi nýjung í borgneskri
verslunarflóra mælst vel fyrir. Auk
þess að selja vömr til prjónaskapar
er einu sinni í viku boðið upp á svo-
kallað Prjónakaffi þar sem þær
stöllur Erla og Sísí leiðbeina gest-
um með hekl, handprjón, útsaum
og aðra handavinnu. Þá sýna þær
nýjungar í hann-
yrðavörum,
halda námskeið
og síðast en ekki
síst létta þær
lundina og halda
t.d. húslestra að
gömlum sið þar
sem ýmist eru
sagðar skemmti-
sögur, lesnar sög-
ur eða farið með
ljóð. Hafa margir
nýtt sér þetta og
allt upp í 18 kon-
ur hafa samtímis verið á námskeið-
um hjá þeim á þriðjudagskvöldum.
Þannig geta áhugasamir tekið þátt
og farið í Handavinnuhúsið með
handavinnuna sína fengið hjálp,
hvamingu og aðstoð t.d. með fyrstu
prjónaflíkina. Þá sakar ekki að
einnig er hægt að spjalla um heima
og geima við skemmtilegar kyn-
systur.
ES
.....................~"'"1
Akraneskaupstaður
Kynningarfundur um
fráveituframkvæmdir
á Akranesi
Akraneskaupstaður og Orkuveita Reykjavíkur efna
til opins kynningarfundar um fyrirnugaðar
framkvæmdir vegna hreinsunar fráveituvatns á
Akranesi.
Fulltrúar frá OR svo og hönnuðir munu kynna
verkefnið.
Fundurinn verður haldinn í Grundaskóla,
8. mars n.k. kl. 20:00.
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs
......................................
Reykjavíkur
BORGARBYGGÐ
Skipulagsauglýsing, Borgarbyggð
Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Guðnabakka, Borgarbyggð.
( samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint skipulag.
Deiliskipulag verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 28.02.2007 til 28.03.2007 frestur til
athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 12.04.2007.
Athugasemdir við breytingar á skipulaginu skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst samþykkur
tillögunni.
Borgarnesi 23.02.2007 - Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
BORGARBYGGÐ
Skipulagsauglýsingar, Borgarbyggð
Tillaga á breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna
norðan Skarðsheiðar 1997-2017 og deiliskipulag í
landi Húsafells 3, Borgarbyggð.
A: Breyting á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðarl997-2017
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir skv.2.mgr.14.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. tillögu að
breytingu á ofangreindu svæðisskipulagi.
Tillaga að breytingu felst að svæði fyrir frístundabyggð norðan Hálsasveitarvegar á jörðinni Húsafelli, er stækkað
til austurs um u.þ.b 58.4 ha og sunnan vegar er bætt við u.þ.b 1.3 ha íbúðasvæðis.
Sveitarstjórn bætir það tjón sem einstakir aðilar kunnað að verða fyrir við breytinguna.
Breyting á svæðisskipulagi verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 28. 02. 07 til 28. 03. 2007.
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 12.04. 2007.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingatillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda telst samþykkur
henni.
B: Tillaga að deiliskipulagi Húsafelli 3, Borgarbyggð
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við
ofangreinda skipulagstillögu.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi austan núverandi byggðar á jörðinni Húsafelli 3. í tillögunni er gert ráð
fyrirfrístundahúsalóðum og þjónustuhúsalóð.
Tillaga að deiliskipulagi verðurtil sýnis á skrifstofu Borgarbyggðarfrá 28.02.07 til 28.03.2007.
Fresturtil að skila inn athugasemdum rennur út 12. 04. 2007.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14,
310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingatillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda telst samþykkur
henni.
Borgarnesi 22.02.2007 -Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
BORGARBYGGÐ
Aðstoðarslökkviliðsstjóri - eldvarnareftirlitsmaður
í Borgarbyggð
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarslökkviliðsstjóra og
eldvarnareftirlitsmanns. Um er að ræða 100% starf. Laun skv. kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Hæfniskröfur:
► Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8. gr. reglugerðar nr. 792/2001 um
Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna
► Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið
► Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu
► Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir
► Hafa jákvætt hugarfar og gott vald á mannlegum samskiptum
► Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt konur sem karlar hvött til
að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Umsóknir sendist til forstöðumanns framkvæmdasviðs Borgarbyggðar, sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar um starfið. Síminn er 433-7100 og netfangið er sigurdur@borgarbyggd.is.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2007.
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar ____