Skessuhorn - 28.02.2007, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007
£
*
Konudagsleikur
Models og
Galito
Á konudaginn, þann 18. febrú-
ar sl. efndu verslunin Módel og
veitingastaðurinn Galito á Akra-
nesi til happadrættis meðal við-
skiptavina sem keyptu blóm í
Model þann daginn eða fóru að
borða á Galito. Nú hefur verið
dregið í happdrættinu og hlutu
eftirtaldir vinninga: Huldar
Agústsson og Dóra Scott. Með-
fylgjandi mynd var tekin þegar
Huldar tók við verðlaunum síntun
af Rannveigu Sturlaugsdóttur,
starfsmanni í Model.
('fréttatilkynning)
Fiðlu- og hörpu-
tónlist á Bifiröst
Þriðjudaginn 6. mars næstkom-
andi verða haldnir tónleikar í
Hriflu, hátíðarsal Háskólans á
Bifföst. Þar koma fram þær Lauf-
ey Sigurðardóttir, fiðluleikari og
Elísabet Waage, hörpuleikari.
Þær Laufey og Elísabet hafa starf-
að saman um árabil. Þær hafa
leikið víða á Islandi og í Hollandi.
Þá hafa þær gert upptökur fyrir
útvarp og sjónvarp og vinna nú að
undirbúningi geisladisks með leik
sínum. Á efnisskrá þeirra er tón-
list frá barokk tímanum og fram
til okkar daga og íslensk tónskáld
hafa samið fyrir þær sérstaklega.
Efiiisskrá þeirra á tónleikunum í
Háskólanum á Bifröst sam-
anstendur af tónlist eftir m.a.
Bach, Fauré, Tsjækowsky og út-
setningum á íslenskum þjóðlög-
um. Tónleikamir í Hriflu hefjast
klukkan 17:00. Þeir fara ffam á
vegum Háskólans á Bifföst og eru
Borgfirðingar og aðrir boðnir vel-
komnir. Aðgangur er ókeypis og
foreldrar eru sérstaklega hvattir
til að taka böm sín með og leyfa
þeim að njóta tónhstarinnar.
Þarnæstu tónleikar sem fyrir-
hugaðir em á Bifr öst verða haldn-
ir þann 28. mars en þá munu þau
Guðný Guðmundsdóttir konsert-
meistari og Gerrit Schuil píanó-
leikari kynna verk eftir Dvorak og
Ravel sem Guðný spilar einleik í
með Sinfóníuhljómsveit Islands í
apríl næstkomandi. Auk þess leika
þau sónötu nr. 10 eftir Beethoven.
(fréttatilkynning)
Fyrirspum um
Múlavirkjun
Jón Bjarnason, þingmaður
Vinstri-grænna hefúr lagt ffam á
Alþingi fyrirspum til umhverfis-
ráðherra um Múlavirkjun á Snæ-
feOsnesi. Jón vifl vita hvort ráð-
herra hafi kynnt sér hvort fylgt
hafi verið lögum og reglum um
undirbúning, útgáfu leyfa, hönn-
un og byggingu virkjunarinnar. Þá
viO hann vita hvers vegna virkjun-
in fór ekki í lögformlegt mat á
umhverfisáhrifúm og hvort ráð-
herra hyggist bregðast við ef stað-
reynd sé að virkjunin „sé með allt
öðrum hætti en upphaflega fékkst
leyfi fyrir og skaðleg umhverfisá-
hrif mannvirkjanna mun meiri en
ráð var fyrir gert,“ eins og segir
orðrétt í fyrirspurninni. HJ
~/^etitútui~*N.
Til sóma að muna efirir góðum firmnlierjum
Föstudaginn
23. febrúar sl.
bauð Sjúkra-
húsið og heilsu-
gæslustöðin á
Akranesi til samkvæmis í tilefni af
löngum og farsælum ferh fyrrver-
andi yfirlæknis á Sjúkrahúsi Akra-
ness, PáO Gíslasyni og í tilefni af því
að það era 40 ár síðan hann ffam-
kvæmdi fyrstu æðaskurðaðgerðina á
íslandi og það gerði hann hér á
Sjúkrahúsi Akraness. Það var vel til
faOið af Guðjóni Brjánssyni ffam-
kvæmdastjóra SHA og hans fólki að
bjóða til þessa samkvæmis þar sem
vora m.a. margir af samstarfsmönn-
um Páls í gegnum árin.
I dag era kannski ekki margir sem
gera sér grein fyrir því hve Páll
Gíslason markaði djúp spor í sögu
okkar Akumesinga. Páll hafði ekki
bara mikil og góða áhrif á mikla og
góða uppbyggingu Sjúkrahús Akra-
ness og atvinnumál okkar Akurnes-
inga, heldur stjómaði hann líka og
var félagsforingi Skátafélags Akra-
ness um árabil. Á þeim tíma eignað-
ist t.d. Skátafélag Akraness land í
Skorradal fyrir sumarbúðir þeirra og
sem bæjarfúlltrúi hér á Akranesi í 8
ár barðist hann fyrir hagsmunum
Akurnesinga ekki síst í þeim mála-
flokkum sem vörðuðu atvinnumál,
heilsugæslu og í hjúkrunarmálum.
Eftir að Páll flutti ffá Akranesi var
hann kjörinn Skátahöfðingi Islands
og í því starfi hafði hann sérstakan
hlýhug til Akurnesinga sem margoft
kom ffam í öllum hans verkum.
Eg og systkini mín vorum svo
heppin að fá að kynnast vel þeim
Páh og Soffiu hans yndislegu konu á
þeim árum sem þau vora á Akranesi.
Þann vinskap má þakka samstarfi
föður míns og Páls í skátastarfmu og
vinskapar sem var á milli foreldra
okkar og Páls og Soffiu.
Það er Guðjóni Brjánssyni og for-
svarsmönnum SHA til sóma að
muna eftir þeim ffumherjum sem
raddu veginn, megi aðrir taka það
sér til fyrirmyndar.
Takk fyrir boðið.
Gunnar Sigurðsson
Forseti bœjarstjómar Akranes
~/^etltÚtltl^A
Það eiga allir að hafa aðgang að góðri
menntun óháð efhahag og búsetu
Aðgangur að menntun í heima-
byggð er ein af meginforsendum
þess að styrkja búsetu, lífskjör og at-
vinnulíf á landsbyggðinni. Framboð
á góðri menntun í leikskólum og
grunnskólum, öflugar metnaðarfúll-
ar stofnanir á ffamhaldsskólastigi,
verkmenntun auk uppbyggmgar há-
skólastarfs er grundvöllur ffamfara
og þrótmar.
í skólakerfinu þarf einnig að ríkja
faglegt frelsi til að starfsfólk hafi
svigrúm til að vinna að blómlegu og
skapandi skólastarfi. Skólakerfið á
að vera Ofandi samfélag skólafólks,
nemendanna sjálffa og fjölskyldna
þeirra. Irman þess verður að mæta
þörfum nemendanna í samræmi við
þarfir og þroska hvers og eins. En til
þess að skólastarfið geti blómstrað
þarf að ríkja sátt um verklag, kjör og
aðbúnað innan skólanna. Því er
nauðsynlegt að sveitarfélögunum
séu tryggðir tekjustoffiar til að mæta
T^etuútu^-,
þeim kröfúm sem lagalega era gerð-
ar til skólastarfsins.
Efling háskólanna
Landsbyggðin þarf á ffumkvæði
og bjartsýni að halda og hvora
tveggja fæst með ábyrgð og sjálf-
stæði heimamanna. Framhaldsnám á
háskólastigi felur í sér mikinn samfé-
lagslegan ávinning. í Norðvestur-
kjördæmi hefúr verið gaman að
fylgjast með uppbyggingu háskóla-
náms s.s. á Bifröst, á Hvanneyri og
að Hólum þar sem ffumkvæði og
sveigjanleiki er styrkur skólanna.
Þessum skólastofnunum þarf að
skapa tækifæri á að vaxa áffam og
dafna á sínum forsendum. Miklar
vonir era bundnar við að Háskóla-
setrið á Isafirði verði eflt og það
gert að formlegum háskóla. einnig
þarf að huga að stolnun háskólaset-
urs á Akranesi með séráherslu á iðn-
nám og njóta þar samstarfs við iðn-
fyrirtækin á svæðinu. Annað brýnt
verkefni ffamundan er frekari upp-
bygging háskólastarfs á Sauðárkróki
Framhaldsskólanám
á sunnanverðum
Vestfjörðum
Undanfarið hef ég fengið að taka
þátt í því sem verkefnisstjóri ásamt
kröftugu fólki fyrir vestan að koma á
ffamhaldsskólanámi á sunnanverð-
um Vestfjörðum í samvinnu við
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði. Það sem gerir verk-
efni sem þetta ekki síst mögulegt er
tilkoma nýrra kennsluaðferða á sviði
dreiffnenntunar, og fjarkennslu. Við
sem höfum tmnið að kynningu þessa
náms á svæðinu höfum fúndið fyrir
miklum áhuga og bjartsýni samfara
því að þetta verkefni verði að vera-
leika. Foreldrar sjá fyrir sér að geta
stutt lengur við bakið á bömum sín-
um heima í héraði og bammargar
fjölskyldur þurf ekki að flytja burt til
annarra staða þar sem viðeigandi
nám er í boði
Mennt er máttur
Skólauppbyggingu og mótun
hennar er aldrei lokið, sífellt þarf að
leita nýrra og ffamsækinna leiða til
að gefa fólki kost á eins góðri
grann,-framhalds-, og háskóla-
menntun sem völ er á. Það sama á
við um endur- og símenntun. Metn-
aðarfullt starf allra er að skólastarf-
inu koma er leiðin að því markmiði.
Við höfum fólk sem hefúr vilja og
þor og við þurfum stjómvöld sem
styðja við hugmyndir þeirra og
ffumkvæði.
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir
skipar 2. sati á lista Vinstri grænna í
Norðvesturkjördami
Þjóðlenduvaitarinn á ferð
- Norðurland vestra mesti áfangi
Það var merkileg reynsla að sitja
stofnfund Samtaka landeigenda
fyrir nokkra, hlíða á reynslusögur
framsögumanna og stórmerkileg-
an fyrirlestur Guðrúnar Gauks-
dóttur, lögfræðiprófessors um
þjóðlendumálið og ótrúlega
ósvífna framgöngu stjórnarflokk-
anna gagnvart landeigendum. Nú
er málsmeðferð hafin á svæði 6,
sem er austanvert Norðurland en
lokið á svæðum 1-4 sem er allt
Suðurland og Reykjanesið. Norð-
urland vestra og Vestfirðir og
Vesmrland verða næst í röðinni
enda eru íbúar þar farnir að biðja
fyrir sér.
Þjóðlendumálið vakti fyrst at-
hygli mína þegar Stafafell í Lóni
var til meðferðar, þar sem ég hef
gengið um Lónsöræfi og þekkti
hvaða land var til umræðu. Það
landssvæði var dæmt af bændum
þótt þeir hefðu lögmæta pappíra
frá aldamótum sem staðfesta kaup
þáverandi eiganda á landinu af rík-
inu. Landið var engu að síður
dæmt af Lónsbændum.
Ríkisstjómin
ber ábyrgðina
Fjármálaráðherra Sjálfstæðis-
flokksins hefúr farið með miklu of-
forsi gegn bændum og þinglýst
kröfú til alls lands sem er 400 metr-
um yfir sjávarmáO, sumsstaðar farið
niður í 100 metra og jafnvel niður í
flæðarmál eins og dæmin úr Fjörð-
um sanna. Afleiðingar þessa era
m.a. að eigendur lenda í erfiðleikum
hjá lánastofnunum, jarðirnar era
illseljanlegar á meðan á málarekstri
stendtn, fólk er skilið eftir með þær
skuldbindingar sem til var stofnað
við kaup og uppbyggingu á jörðun-
um og borga þarf af þessum skuld-
bindingum áratugum saman þó svo
að ríkið sé löngu búið að slá eign
sinni á land þess.
Það er óþolandi að ríkisvaldið setji
líf og afkomu fólks slíka tvísýnu eins
og gert er með þessari aðför að land-
eigendum. Sjálfstæðisflokkurinn á
að svara fyrir þá fráleitu ffamgöngu
sem ríkisstjóm Islands hefur sýnt
bændum og landeigendum og
Framsóknaflokknum, sem telur sig
sjálfkjörinn málsvara bænda, á ekki
að haldast uppi að sitja þegjandi hjá.
Hann er ábyrgur, jafnvel þótt lítill
og veikur sé, ekki síður en Sjálfstæð-
isflokkurinn.
Vilji löggjafans
Þingmenn Samfylkingarinnar
hafa margsinnis tekið máOð upp á
Alþingi, t.d. Margrét Frímannsdótt-
ir og nú síðast Björgvin G. Sigurðs-
son sem stóð fyrir umræðum utan
dagskrár fyrir skömmu. Stjómar-
flokkarnir slá úr og í og nokkuð ljóst
af aðgerðarleysi þeirra að ekki er fyr-
irhugað að taka til þeirra ráða sem
nauðsynleg era og tiltæk. Það þarf
að skíra lagatextann sem þessi aðför
byggist á þannig að vilji löggjafans
komi þar ljóslega frarn. Það var ekki
vilji löggjafans að gengið yrði í
eignaupptöku meðal landeigenda,
það kom skírt fr am í umræðum á Al-
þingi á sínum tíma. Á meðan tillaga
að lagabreytingu kemur ekki ffam
frá stjómarflokkunum verður að líta
á það sem vilja þeirra að níðst sé á
bændum með þessum hætti.
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
alþingismaður Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördami
Lengd aðsendra greina
Enn og aftur skal það áréttað við höfunda aðsendra greina í Skessu-
horni að gæta að lengd þeirra. Þetta á aldrei frekar við en nú í aðdrag-
anda kosninga til Alþingis þegar margir vilja koma skoðunum sínum á
ffamfæri. Sökum plássleysis bíða nú nokkrar aðsendar greinar birtingar
í Skessuhomi. Höfundar þeirra era Jón P Pétursson, Sigurður Arnar
Sigurðsson, Valdimar Sigurjónsson og Veronika Sigurvinsdóttir. Þess
ber að geta að allar aðsendar greinar birtast einnig á vef okkar;
www.skessuhorn.is. Framvegis verður ekki tekið við greinum til birting-
ar í blaðinu séu þær lengri en ein A4 síða, miðað við 12 punkta letur.
Æskilegt er að þær séu þó eitthvað styttri. Gott er að hafa í huga: Stutt
grein þýðir í flestum tilfellum meiri lestur hennar.
-Ritstjóri.