Skessuhorn - 28.02.2007, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007
gHÉSSIöilOiSKl
Vesturlandsmeistarar í brids
Vesturlandsmótið í tvímenningi í
brids var spilað sl. sunnudag í Loga-
landi með þátttöku 26 para. Borg-
firðingar áttu góðan dag og upp-
skáru eftir því. Afgerandi forustu allt
mótið höfðu félagamir Sveinbjöm
Eyjólfsson og Láms Pétursson á
Hvanneyri og hreinlega stungu
næstu menn af þannig að sigri þeirra
var aldrei ógnað. Lokatölur þeirra
vora 249 stig og era því vel að Vest-
urlandsmeistaratitlinum komnir. I
öðra sæti urðu Borgnesingamir Jón
H Einarsson og Unnsteinn Arason
með 140 stig og í þriðja sæti Jón
Agúst Þorsteinsson og Bjöm Þor-
valdsson með 120 stig.
Fjórða sætinu náðu
bræðumir Sveinn og
Hallgrímur Hall-
grímssynir með 114
stig. Onnur pör höfðu
talsvert minna.
Sveitakeppni
BB lokið
A mánudag var
lokakvöld aðalsveita-
keppni Bridsfélags
Borgarfjarðar. Félags-
meistarar að þessu
sinni
Sveit Borgnesinga sigi'aSi aðalsveitakeppni BB að þessu sinni.
F.v. GuSjón, GuSmundur, SigurSur Már og Stefán.
Ljósm. MM
Vesturlandsmeistamir í tvímenningi, þeir Sveinbjöm og
Lárus spá í spilin. Ljósm. ÞP.
stig. 1 öðra sæti varð sveit þeirra
Sveins Hallgrímssonar/ Magnús M
auk Kristjáns A/ Onnu Einarsd. með
303 stig. I þriðja sæti með 277 stig
vora þeir Sveinbjörn/Láras og
Jón/Baldur. I fjórða sæti voru Jón/
Eyjólfur ásamt Jóhanni/ Eyjólfi með
261 stig og í fimmta sæti Islands-
meistari kvenna; Dóra Axelsdóttir
sem spilaði við Unnstein Arason
ásamt efnilegasta nýliðapari héraðs-
ins, þeim Fjölni Jónssyni og Lára
Lárasdóttur.
MM
varð Borgnesinga-
sveit með þá Sigurð
Má/ Stefán Kalm-
ansson og Guð-
mund Arason/Guð-
jón Karlsson innan-
borðs. Þeir hafa
ýmist trjónað á
toppi eða lúrt í hlíð-
um toppsins allt
mótið en með ör-
uggri spilamennsku
uppskára þeir sætan
sigur, með alls 334
Nítján UMSB met á
Gullmóti KR um helgina
Um síðustu helgi fór fram hið ár-
lega Gullmót KR í stmdi í Laugar-
dalslaugirmi. Alls tóku átta sund-
menn frá UMSB þátt í mótinu og
settu eða bættu samanlagt nítján
UMSB aldursflokkamet en keppt
var eingöngu í 50 m laug og er ald-
ur keppenda miðaður við alman-
aksárið.
I flokki 10 ára og yngri var einn
keppandi Karen Yr Finnbogadóttir
9 ára. Hún setti UMSB met í 50 m.
skriðsundi og bætti hnátumet Sól-
veigar Gunnarsdóttir frá því í fýrra
í 50 m. bringusundi. I flokki sveina
11-12 ára setti Kári Jón Sigurðs-
son 11 ára sveinamet í 200
m.bringustmdi. Jón Ingi Sigurðs-
son 12 ára bætti UMSB met Ottós
Hlíðars Gunnarssonar í 100 m.
skriðsundi og 400 m. skriðsundi og
bætti eigið sveinamet í 200 m.
skriðsundi, 100 m. bringusundi og
100 m. baksundi. Þá setti hann sjö
ný UMSB met, í 50 m. flugsundi,
50 m. skriðsundi, 50 m. bringu-
sundi, 50 m. baksundi og 100 m.
baksundi, 100 m. flugsundi og í 200
m. fjórsundi. Agnar Daði Kristins-
son keppti í 9 sundgreinum á mót-
inu og stórbætti tíma sinn í öllum
greinum. I flokki drengja 13-14
ára keppti Alexander Gabríel Guð-
finnson í 100 og 400 m. skriðsundi
og stórbætti tíma sinn í báðum
greinum. I flokki telpna 13-14 ára
bætti Isfold Grétarsdóttir 13 ára,
árangur sinn í öllum sínum grein-
um. Jóhanna Karen Guðbrands-
dóttir 13 ára setti UMSB met í 100
m. flugsundi og bætti árangur sinn
í öllum sínum greinum. Þórkalta
Dagný Þórarinsdóttir 14 ára bætti
fyrri UMSB met í 800 m. skrið-
sundi, 50 m. og 100 m. bringusundi
og setti UMSB met í 50 og 200 m.
baksundi og 200 m. fjórsundi. AM
Brúin milli lands og eyjar á Hamarsvelli.
Eyja búin til
á Hamarsvelli
Nýlega var komið fýrir brú út á
sjöundu flöt á golfvellinum á
Hamri við Borgarnes en flötin
verður eyja sem umlukt er vatni allt
í kring. Brúin var smíðuð í límtrés-
verksmiðju Límtrés-Vírnets á
Flúðum og var flutt í Borgarnes í
heilu lagi. Þar sem hún hefur allt að
tveggja tonna burðargetu þjónar
brúin ekki einungis golfleikuram
sem þurfa að komast út í eyjuna til
leiks heldur einnig þeim tækjum
sem þurfa að komast á svæðið til
nauðsynlegrar umhirðu. Brúin er
samstarfsverkefni Golfklúbbs
Borgarness og Límtrés Vírnets sem
styrkir klúbbinn við þessa ffam-
kvæmd. BGK
Nýjar leiðir í
félagsgjöldum
Golfklúbbsins Leynis
Nýjar leiðir standa nú þeim til
boða sem gerast vilja félagar í Golf-
klúbbntun Leyni á Akranesi. Var
þetta fyrirkomulag ákveðið á síð-
asta aðalfundi klúbbsins og er þeim
ætlað að stuðla að fjölgun félags-
manna þamnig að þeir verði ekki
færri en 800 á næstu áram auk
barna og unglinga. Meðal nýjtmga
er svokallað léttgjald sem hentar
sérstaklega kylfingum sem vilja
spila utan helsta álagstíma. Er þá
miðað við að leikur hefjist fýrir
klukkan 14 virka daga og eftir
klukkan 17 á helgum.
Þá hefur einnig verið tekið upp
svokölluð fjaraðild sem er full aðild
að klúbbnum fyrir félaga utan við
póstnúmer 300 og 301. Innifalið í
þessari aðild era innifaldar 40 ferð-
ir í Hvalfjarðargöng fyrir þá sem
búa á Reykjavíkursvæðinu. Með
þessu fyrirkomulagi verði klúbbur-
inn vænlegur kosmr fyrir kylfinga á
höfuðborgarsvæðinu sem fer sífellt
fjölgandi og eiga í miklum erfið-
leikum með að komast að á völlum
höfuðborgarsvæðisins.
Þá ákvað aðalfundurinn að ffá og
með næsta ári verði innheimt svo-
kallað skráningargjald þannig að
þeir sem hyggja á félagsaðild sleppa
við það gjald með inngöngu á þessu
ári.
Undanfarin ár hafa verið í gildi
svokallaðir vinavallasamningar við
golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu.
Samningarnir tryggðu félagsmönn-
um þeirra klúbba aðgang að
Garðavelli án endurgjalds. Að sögn
Brynjars Sæmundssonar hjá GL
vora þeir samrúngar liður í mark-
aðssetningu Garðavallar. Stjórn
GL hefur nú ákveðið að endurnýja
ekki umrædda samninga á þeim
forsendum sem vora áður. Með
hinum nýju leiðum sem áður vora
nefhdar gefst áhugasömum golfur-
um kostur á aðild að GL á mjög
sanngjörnu verði sem tryggir að-
gang að einum besta golfvelli
landsins. HJ
Æskan
á VgstUfiandi Öskudagurinn í Borgamesi í máli og mvndum
Síðasthðin miðvikudag, 21. febr-
úar, var öskudagsgleði hér í félags-
miðsöðinni Oðali. Um hádegi var
stjórnin komin niður í Oðal. Þá var
farið að gera allt klárt fyrir ösku-
dagsskemmtanirnar en þær vora
alls þrjár, ein fyrir hvert aldursstig í
Grunnskólanum. Fyrsti til fjórði
bekkur mættu fyrst á svæðið og
húsið varð brátt fullt af börnum í
flottum öskudagsbúningum. Það
var auðvitað mikið dansað og hleg-
ið en einnig var köttuirinn sleginn
úr tunnunni en þegar það gerist
trompast litlir krakkar af gleði og
gæða sér á innihaldinu. Þá byrjaði
að rigna karamellum úr loftinu og
ofan af sviðinu og fóra þá allir að
reyna að ná sem flestum karamell-
um og það gekk mjög vel hjá flest-
um ef ekki öllum. En hápunkturinn
var þegar veitt vora verðlaun fyrir
framlega búninga.
Val dómnefndar var mjög erfitt
en hún komst þó loks að niður-
stöðu. I þriðja sæti var Kristján
Snær en hann var vampíra, í öðra
sæti var Anna Margrét og hún var
poppkorns poki og sigurvegarinn
var Guðrún en hún var fiðrildi.
Næst mættu fimmti til sjöundi
bekkur á svæðið og þá hitnaði
veralega í kolunum. Þar voru hóp-
dansar sem stelpur úr sjöunda bekk
stóðu fyrir og það var mjög flott
hjá þeim. Þau slógu einnig köttinn
úr tunnunni og þar var það hún
Elín Björg sem átti lokahöggið.
Það kom líka karamellurigning hjá
þeim og þar vora mikil læti við að
ná sem flestum karamellum. En
allir vora farnir að bíða óþreyju-
fullir eftir búningaverðlaununum
og hjá dómnefhdinni var valið ekki
auðveldara en í fyrra skiptið. En
það var hún Hanna Björg sem lenti
í þriðja sæti og hún var klædd sem
tómatur, í öðra sæti var hann Þor-
kell og hann var eins og póstkassi
og sigurvegarinn var hún Hanna
Agústa og hún var riddarinn á hvíta
hestinum.
Um kvöldið var svo Halloween
ball fyrir unglinga í áttunda til tí-
unda bekk og þar var dansað fram
eftir kvöldi og svo var tilkynnt hver
hafði unnið búningaverðlaunin en
það var hún Valdís Hrönn og hún
var „Slutty schoolgirl."
En komandi viðburðir era hóp-
ferð á leiksýningu N.F.F.A. og
Samfés hátíðin sem er núna fyrstu
helgina í mars og svo árshátíðin
okkar í N.F.G.B. en æfingar era að
komast á fullt skrið en við ætlum að
sýna Wake me up before you go-
g°-
Þannig að það er nóg að gera
framundan og þið heyrið fljótlega
ffá okkur aftur en þangað til hafið
þið vonandi góðar stundir.
Stjóm N.F.G.B.
Elfar, Auður, Oli, Þórkatla,
Rakel, Salóme og Davíð.