Skessuhorn - 28.02.2007, Síða 24
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða íbuðalánasjóður www.ils.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR.
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-16.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
ar.is $ SAMSKIP
Markaðsráð verður ekki
endurvakið
Atvinnu- og markaðsnefnd
Borgarbyggðar efndi til opins há-
degisfundar í Borgarnesi í gær.
Megin tilgangur með fundinum var
að fá fram gagnlegar umræður um
atvinnu- og markaðsmál í sveitarfé-
laginu. Meðal annars var rætt hvort
endurvekja ætti Markaðsráð, sem
eitt sinn starfaði í héraðinu og var
niðurstaða fundarins sú að ekki ættd
að gera það.
Góð mæting var á fundinn og
umræður fræðandi. Meðal annars
var mat þeirra sem tóku til máls að
íbúar Borgarbyggðar væru allt of
hógværir, mættu vekja meiri athygli
á sér í fjölmiðlum og víðar. Nýlega
hefði verið birt skýrsla um ímynd
Vesturlands þar sem sást svart á
hvítu að Borgarfjörður hefur sterka
ímynd í hugum margra. Enginn
hefði séð ástæðu til að hampa þeirri
staðreynd. Staðarmetnaður íbúa
mætti vera meiri og þar kæmi
einnig til að Borgnesingar mættu
huga að fegrun bæjarins. I tengsl-
um við þetta mætti skoða hvort
innri markaðssetningar væri ekki
þörf þar sem ánægðir íbúar væru
besta auglýsing hvers sveitarfélags.
Fundarmenn vildu einnig að
áréttað væri að staðarnöfii væru
ekki hin sömu og stjórnsýsluheiti
og þeim ætti að halda þótt sveitar-
félagið hefði fengið nýtt nafn. Fólk
byggi enn í Borgamesi, á Bifröst og
á Hvanneyri, þótt allir þessir staðir
ættu það sameiginlegt að vera í
Borgarbyggð.
Fyrirhugað er að hafa svipaða
fundi reglulega, einu sinni í mánuði
yfir vetrartímann en sjaldnar á
sumrin.
BGK
Góð aflabrögð á Snæfeflsnesi
Góður afli er hjá bátum á Snæfellsnesi um þess-
ar mundir og sjómenn ánægðir með lífið og segja
að fiskur sé óvenju vænn og góður. Góður afli er í
öll veiðarfæri og nóg um að vera t.d. í Slægingar-
þjónustunni í Rifi. Sagði Sabaaudin Dagur
Dervic, verkstjóri í samtali við Skessuhorn að það
væri meira en nóg að gera í fyrirtækinu núna. A
mánudaginn hafi komið til þeirra um 220 tonn af
fiski af Nesinu, allt góður fiskur. „Við emm t.d.
núna að vinna um 120 tonn af ýsu sem er öll
flokkuð og þar af slægjum við 30 tonn og um 100
tonn af þorski sem við slægjum einnig. Það tekur
okkur um 18 tíma að vinna þetta magn,“ sagði
Dagur og bætir því við að alls séu 24 í vinnu hjá
Slægingarþjónustunni núna.
AF
Gísli Marteinsson og Sœþór Gunnarsson á Glað komu með
fullfermi að landi sl. mánudag, eða um 8 tonn.
Feðgamir Róbert og Óskar á Aðalheiði SH voru kátir enda báturinn
fullhlaðinn boltafiski.
Dragnótabátar eru að afla vel skammtfrá landi og var þessi mynd
tekin á mánudag við Öndverðames.
Við óskum eftir rösku og áhugasömu fólki til afleysinga hjá Norðuráli í sumar.
Störfin eru fjöibreytt, tækifæri gefast til að öðlast mikilvæga starfsþekkingu og góð laun eru í boði. Um er að ræða vaktavinnu í:
Kerskála Steypuskála Skautsmiðju Vöruhúsi
Einnig vantar afleysingafólk til vinnu við ræstingar (dagvinna og helgarvinna)
.... .... . . .
Umsækjendur þurfa að vera:
• 18 ára eða eldri
• samviskusamir og duglegir
• jákvæðir og hressir í samskiptum
• tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni
Umsóknarftestuf
ertil 15- marb’
Jafnrétti
Við leggjum áhersiu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Starfsandi
Við leggjum mikið upp úr góðum starfsanda
og tökum vel á móti þér.
Hvernig sækir þú um?
Tekið er við umsóknum og fyrirspurnum í síma 430 1000.
Þú getur líka sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.is,
sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina, merkta: Sumarstörf.
Norðurál
Hjá okkur starfa nú um 400 manns að margvíslegum verkefnum. Norðurál framleiðir árlega 220.000 tonn af áli til útflutnings og unnið
er að stækkun álversins sem felur í sér að framleiðslugetan verður aukin í 260.000 tonn á þessu ári.
Century
Grundartanga »301 Akranesi *Sími 430 1000 »Fax430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is