Skessuhorn - 02.05.2007, Qupperneq 1
Meðal
efnis:
Þjóðlendumálin rædd ...Bls. 6
Á sömu kennitölu í 40 ár Bls. 20
Gerðu að 12 hákörlum .Bls. 22
Naglastofa í dekkjununi .Bls. 30
Hitamet í Hólminum ...Bls. 2
Sveppir drepa kindur .Bls. 12
Sóknarfæri í silungi .Bls. 16
Fjölmenni á bændafundi .Bls. 12
Ástríðufullur tónlistarsafnari. Bls. 18
Eiturefnaúrgangs- skrímsli Bls. 11
Þrír nýir sparkvellir Bls. 31
Sala beint frá býli .Bls. 10
Fjölmenningar- hátíð .Bls. 14
Dreyri sextugur Bls. 30
Menntaborg rís ...Bls. 8
Skiluðu fullbúnu húsi Bls. 17
Drauma
Draumaland....Bls. 24
HlillÍ
*
■
1 I
1». , . „
SSWBf/Z', £.1 ( s. ; ^ v ':
i jv iVXi ri: '2 1
Wm 1F V L\\ k V.
Böm í grunnskólanum á Hellissandi vígðu formlega nýjan ruslavagn semþau hafa smíðað á degi umhverfisins sl. mið-
vikudag. Hér draga þau Kristínu Kristinsdóttur, stuðningsfulltrúa, en hún er að hœtta störfum við skólann, enda orðin
sjótug. Sjá nánarfrétt um umhverfisátak skólans inni í blaðinu. Ljósm. Alfons Finnsson.
Skipulagt byggingarland til fyrir
40% fjölgun íbúa í Borgamesi
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir í Borgamesi við byggingu íbúð-
arhúsnæðis af ýmsum stærðum og
gerðum. Auk þess er mikill fjöldi
lóða til ráðstöfunar samkvæmt sam-
þykktu skipulagi. Þannig em um 250
íbúðir ýmist í byggingu nú þegar eða
gert ráð fýrir á sldpulögðum svæð-
um.
I gamla miðbæ Borgamess er gert
ráð fýrir 40-50 íbúðum og era ffarn-
kvæmdir hafhar á hluta þeirra. I sam-
þykktu skipulagi að Bjargslandi II
verða 90-100 íbúðir og meðal þeirra
talsverður fjöldi af einbýlishúsalóð-
um. Þá eru þrjár íbúðablokkir í
byggingu í Bjargslandi og til stendur
að byggja eina blokk við Kveldúlfs-
götu. Lauslega áætlað er þar um að
ræða 50-60 íbúðir. Nokkrar óbyggð-
ar lóðir era einnig til við Stöðulsholt.
Loks er samkvæmt auglýstu skipu-
lagi fýrir Borgarbraut 55-59 gert ráð
fýrir um 50 íbúðum á svæðinu þar
sem gamla Essostöðin var. Miðað við
að íbúðarhúsnæði verði byggt á
næstu árum á öllum þessum lóðum
ætti það að rúma a.m.k. 750 manns
sem þýddi tæplega 40% fjölgun íbúa
í Borgamesi yrðu þær fullsetnar.
Þessu til viðbótar er rétt að halda
til haga að verktakafýrirtækið Eykt
hefur sótt um að fá byggingarland
handan Borgarvogs fýrir um 2000
manna byggð og standa viðræður
yfir milli fýrirtækisins og sveitarfé-
lagsins um það. Samkvæmt heimild-
um Skessuhoms vill a.m.k. hluti
sveitarstjórnar Borgarbyggðar þó
stíga varlega til jarðar við úthlutun
þess svæðis, a.m.k. á næstu misserum
og taka þá tilht til þess mikla fjölda
lóða sem þegar eru til á skipulögðum
svæðum.
A öðram stöðum í sveitarfélaginu
era einnig fyrirhugaðar allnokkrar
byggingaffamkvæmdir, t.d. á Bifföst,
Varmalandi, Reykholti og á Hvann-
eyri. Verði aUt þetta íbúðarhúsnæði
fullnýtt er samkvæmt þessu gert ráð
fyrir að íbúafjölgun verði á næstunni
talsvert yfir landsmeðaltah í sveitar-
félaginu Borgarbyggð og hlutfalls-
lega langt yfir þeirri fjölgun sem orð-
ið hefur í Borgarfirði um áratuga
skeið.
mm
I gamla miðbœ Borgamess verða ísumar byggðar 40-50 íbúðir og eru framkvœmdir
hafnar við nokkrar þeirra.
Nýtt
tréiðnahús
viðFVA
I gærkvöldi, 1. maí var ritað
undir samning um byggingu nýs
skólahúss fyrir byggingagreinar og
mannvirkjagerð, sem í daglegu tali
er kölluð tréiðnadeild, við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Það var Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, menntamálaráð-
herra sem ritaði undir samkomu-
lagið f.h. ríkisins og Gísli S Einars-
son, bæjarstjóri á Akranesi fyrir
hönd sveitarfélaganna fimm sem
standa að skólanum á sunnanverðu
Vesturlandi. Byggingin verður 566
fermetrar að flatarmáli og verður
vestan við núverandi skólahús. Þar
með verða allar kennslugreinar
FVA komnar á skólalóðina við
Vogabraut. Ríkið greiðir 60% af á-
ætluðum kosmaði en sveitarfélög-
in 40%, en samtals er áætlað að
verkið kosti um 127 milljónir kr.
Hörður O Helgason, skólameistari
FVA sagði þetta stóran dag í sögu
skólans því það hefði veralega ver-
ið farið að há eðlilegri uppbygg-
ingu verknámsgreina við skólann
sá húsnæðisskortur sem verið hef-
ur í tréiðnadeild. I ljósi fjölgunar
iðnstarfa á svæðinu væri þörfin fýr-
ir hentuga kennsluaðstöðu orðin
aðkallandi. Fulltrúar skólans,
menntamálaráðherra og fulltrúar
sveitarfélaga lýsm allir mikilli á-
nægju með að verkið færi nú af
stað en vonast er að byggingin
verði komin í gagnið á næsta ári.
mm
Fulltrúar skólans og sveitarfélaga ásamt
menntamálaráðherra að undiiTÍtun lok-
inni.