Skessuhorn - 02.05.2007, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 2. MAI 2007
S1ESSUH0BH
Framkvæmdir við nýja pósthúsið
formlega hafiiar á Akranesi
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Islandspósts og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í
kaffisams<eti sem boSið var til vegna formlegs upphafs á framkvtemdum við nýttpósthús
á Akranesi.
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra tók fyrstu skóflustunguna
síðastliðinn föstudag að nýju póst-
húsi sem rísa mun á Smiðjuvöllum
30 á Akranesi. Fagnaði ráðherra
þessum áfanga á Akranesi og sagði
það ánægjueftii hversu myndarlega
Islandspóstur ætlaði að bæta starfs-
aðstöðu og þjónustu sína og nýta
aflið sem fyrirtækið byggi yfir fyrir-
fram, áður en samkeppni hæfist, en
í ársbyrjun 2009 verður einkaréttur
fyrirtækisins afnuminn.
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Islandspósts sagði í ávarpi
sínu að fyrirtækið muni ráðast í
byggingu nýrra pósthúsa á 10 stöð-
um á landsbyggðinni næstu tvö árin
og á sex stöðum til viðbótar yrði
núverandi húsnæði Islandspósts
endurbætt.
Pósturinn var borinn uppi af
Símanum til fjölda ára, sem greiddi
tapið af þeirri starfsemi og því var
það verkefni stjórnenda þegar fyrir-
tækin voru aðskilin 1997 að ná ffam
hagnaði. Það tóks árið 2002 og
toppnum var náð árið 2004 þegar
hagnaður fyrirtækisins var yfir 300
milljónir króna. Nú hyllir undir
samkeppni sem ráðamenn fyrirtæk-
isins fagna og því er verið að ráðast
í uppbyggingu núna til að fyrirtæk-
ið verði í stakk búið til að mæta
henni.
Islandspóstur hyggst færa sig
meira út í sérþjónustu fyrir fyrir-
tæki og vera meira áberandi á
landsbyggðinni. Til gamans nefndi
Ingimundur að um 440 þúsund
sendingar færu um hendur starfs-
manna dag hvern sem gerði um 44
tonn á dag. A landinu væru 7 dreif-
ingarstöðvar, 88 afgreiðslustaðir og
85 landpóstar sem sæju um að
koma sendingum til landsmanna.
Hlutafélagið Islandspóstur hf
varð til þegar Pósti og síma var
skipt upp árið 1998. Fyrirtækið er
einn stærsti vinnustaður landsins
með um 1.200 starfsmenn, greiddi
á síðasta ári 3,2 milljarða í laun og
hafði 5,7 milljarða í tekjur. Mikið
vatn hefur því runnið til sjávar síð-
an fyrstu íslensku ffímerkin voru
gefin út árið 1873 og fyrstu póshús-
in sett á stofn.
bgk
Sturla Böðvarsson tókfyrstu skóflustunguna að nýju pósthúsi við Smiðjuvelli á Akranesi.
Veggir menntaskólans teknir að rísa
I síðustu viku var byrjað að reisafyrstu veggeiningar skólans. Það er Loftorka Borgar-
nesi ehf. sem er verktaki við bygginguna.
Nú eru fyrstu veggeiningar nýs
menntaskóla í Borgamesi teknar að
rísa við Borgarbrautina. Fram-
kvæmdir við skólann hafa, að sögn
Torfa Jóhannessonar formanns
stjórnar skólans, tafist nokkuð
vegna ff osta í vetur, en nú er unnið
af fullum krafti svo kennsla geti
hafist í haust. Framkvæmdum verð-
ur skipt í tvo áfanga. I seinni áfanga
er menningarsalurinn og þær
kennslustofur sem ekki þarf að nota
næsta vetur. Fyrri áfanga verður
skilað í haust en seinni áfanga næsta
vor. Reiknað er með að skólinn
verði settur miðvikudaginn 22. á-
gúst næstkomandi svo ljóst er að
verkinu þarf að miða vel næstu
misserin til að framkvæmdum við
fyrri áfanga byggingarinnar ljúki í
tæka tíð.
I byrjun þessa mánaðar afhenti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra Ársæli Guð-
mundssyni, skólameistara MB und-
irritaða yfirlýsingu um samþykki
menntamálaráðuneytisins á hug-
myndaffæði MB varðandi nám og
kennslu á framhaldsskólastigi.
Meðal helstu nýjunga sem felast í
skólastarfinu má nefna þriggja ára
nám til stúdentsprófs fyrir nem-
endur á meðalnámshraða, opið
skólastarf, einstaklingsmiðað nám
og afnám formlegra annarprófa.
Þetta og fleira tengt uppbyggingu
skólans kom ffam í viðtali við Ársæl
Guðmundsson, skólameistara í
Skessuhorni fyrir skömmu.
Nýlega var auglýst effir kennur-
um til starfa við skólann og létu
viðbrögðin ekki á sér standa, sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
skólans, menntaborg.is. Umsókn-
arffestur rann út í byrjun apríl um
fullar stöður kennara. 21 umsókn
barst um stöðurnar frá mjög fram-
bærilegum umsækjendum þannig
að áhugi fyrir störfum er mjög góð-
ur, segir á heimasíðu skólans.
mm
Óskar Gíslason skipsverji á Þorsteini BA heldur hér á skipaskrámúmerinu af Röst SH.
Margt finnst í sjónum
Dragnótarbáturinn Þorsteinn
BA, sem rær ffá Olafsvík, fékk í síð-
ustu viku óvæntan meðafla í nótina
er þeir voru að veiðum út af Önd-
verðarnesi. Þegar pokinn var tek-
inn um borð sáu skipverjar skipa-
skrárnúmersplötu með númerinu
1317. Leituðu skipsverjar í Sjó-
mannaakmanakinu en fundu engan
bát þar með þessu númeri. Að lok-
un tókst þó að hafa uppi á nafninu
á bátnum sem bar þetta skipaskrár-
númer og reyndist það vera af Röst
SH 134, sem sökk þann 19. mars
árið 2003 þegar báturinn var á leið
ffá Stykkishólmi til Reykjavíkur.
Mannbjörg varð þegar skipið fórst
út af Skálasnagavita og komust
tveir menn úr áhöfn í gúmmíbjörg-
unabát og var þaðan bjargað um
borð í grænlenska loðnuskipið Siku
Owbk og síðan yfir í björgunarbát-
inn Hjálmtý frá Ólafsvík, sem flutti
þá til Rifshafnar.
Þorsteinn BA hefur róið frá
Ólafsvík í vetur og hefur aflað vel
að undanförnu. I þessum róðri,
þegar skipaskrárnúmerið kom í
veiðarfærin, var aflinn 12 tonn af
stórum og fallegum þorski.
af
Einbeittar á svip við útsauminn.
Félagsstarf eldri
borgara í Snæfellsbæ
Eldri borgarar í Snæfellsbæ eru
duglegir við að sækja félagsstarfið
sem í boði er fyrir þá. Hittast þeir
einu sinni í viku í félagsheimilinu
Klifi í Olafsvík, þar sem margt er
gert til skemmtunar, eins og að
föndra, sauma, spilað boccia,
minigolf og svo taka konurnar til
hendinni og prjóna. Margir eru í
kjallara hússins og vinna úr gleri,
aðrir spila, svo það er um nóg að
velja fyrir eldra fólkið. Einnig eru
farnar ferðir innanlands sem og er-
lendis. I fyrra fór t.d. hópur eldri
borgara á Hótel Ork og til Kanarí-
eyja og í ár er fyrirhuguð ferð á
Vestfjarðakjálkann og á Lands-
námssetrið í Borgarnesi auk fyrir-
hugaðrar ferðar til Kanaríeyja í
október.
Félag eldri borgara hefur síðustu
ár staðið fyrir kaffisölu 1. maí á
hverju ári fyrir verkalýðsfélagið.
Auk þess sem félagið heldur basar
tvisvar sinnum á ári. Félagar eru
einnig með dansleik á hverju hausti
og er það svokallað Nesball þar
sem saman koma félagar af öllu
Snæfellsnesi og er ballið haldið til
skiptis í hverjum bæ og þetta árið
verður það í Klifi.
af
Þœr stöllur Guðrún Tryggvadóttir og Steinunn Júlíusdóttir bera hitann ogþungann af
félagsstarfi eldri borgara í Snœfellsbœ.
í