Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 31
.■.t-MHh.- : ’ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 31 Nýir sparkvellir á þrjá staði í Borgarbyggð í þessari viku verður boðin út vinna við þrjá sparkvelli í Borgar- byggð. Um er að ræða Hvanneyri, Bifröst og Laugagerðisskóla. Að sögn Páls S. Brynjarssonar eru þetta gervigrasvellir og er ætlunin að þeir verði allir tilbúnir næsta haust. Völlurinn við Laugagerðis- skóla er í samvinnu við Eyja- og Miklaholtshrepp en Borgarbyggð rekur byggðasamlag um Laugar- gerðisskóla með þeim. I tengslum við gerð sparkvallar- ins í Laugargerði verða leiktæki við skólann endurnýjuð ásamt því að gerð verður andlitslyfring á húsinu. Að sögn Eggerts Kjartanssonar, oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps er kominn tími til að endurnýja leiksvæðið við skólann. „Við ætlum að gera með þessum breytingum samfellt leiksvæði fyrir krakkana þar sem verður bæði sparkvöllur og ný leiktæki. Einnig erum við að ljúka viðhaldi á húsinu að utan. Skipt verður um þakjárn á kennslu- álmu skólans, húsið málað og lag- færingar gerðar við innganginn. Þar verður skipt um jarðveg og hellulagt. Einnig er skurður fyrir neðan planið sem í verður sett drenlögn og honum lokað. Þetta er byggðasamlagið sem stendur að þessum ffamkvæmdum, þ.e Borg- arbyggð og Eyja- og Miklaholts- hreppur,“ sagði Eggert Kjartansson oddviti. bgk Grundfirðingar sigruðu afinæfismót BB Síðastliðinn föstudag héldu fé- lagar í Bridsfélagi Borgarfjarðar upp á 50 ára afmæli félagsins með opnu tvímenningsmóti í Logalandi. Þátttaka var góð og margt góðra gesta sem sótti félagið heim af Vest- urlandi og úr Reykjavík. Svo fór að Grundfirðingarnir Ragnar Har- aldsson og Guðmundur Einisson sigruðu mótið og í öðru sæti urðu þau Kristján Axelsson og Anna Ein- arsdóttir, en þau höfðu leitt mótið nær allan tímann. I þriðja sæti urðu Skagamennirnir Sigurgeir Sveins- son og Einar Guðmundsson. I fjórða sæti voru Dóra Axelsdóttir og Rúnar Ragnarsson úr Borgar- nesi, en Flemming Jessen og Guð- mundur Þorsteinsson ffá Varma- landi í því fimmta. Með þessu móti eru félagar í Bridsfélagi Borgarfjarðar farnir í sumarfrí enda sauðburður að hefj- ast hjá bændum en þráðurinn verð- ur tekinn aftur upp í haust að göng- um og réttum loknum. mm Hjónin unnu Opna Borgarfj arðarmótið Þrjú efstu pörin á mótinu, Þeir Karl, Alfreð, Dóra, Rúnar, Ingi Steinar og Oli Grétar. Hinu þriggja kvölda Opna Borgarfjarðarmóti í brids lauk sl. fimmtudag með sigri hjónanna Dóru Axelsdóttur og Rúnars Ragnarssonar úr Borgar- nesi. Óhætt er að segja að baráttan hafi verið mikil lokakvöldið og sveiflur einstakra spilara í sam- ræmi við það. Sem dæmi endaði parið sem leiddi mótið um miðbik síðasta kvölds í áttunda sæti þeg- ar yfir lauk og ritstjórinn og Vatnshamrabóndinn fóru sneyptir heim. Þannig skipast fljótt veður í lofti í brids eins og öðru. Þau pör sem höfnuðu í efstu sætum höfðu þó öll skipst á að vera ofarlega allan tím- ann, nema síst sigurvegararnir sem byrjuðu illa, en áttu ffábært annað kvöld og góðan lokasprett. I öðru sæti á mótinu enduðu feðgarnir AI- ffeð Viktorsson og Karl Alfreðsson, í þriðja sæti Ólafur Grétar Ólafsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson og í fjórða sæti bræðurnir Guðjón og Þorvaldur Guðmundssynir, allt Skagamenn sem og fimmta sætið þeir Karl Ó Alfreðsson og Aifreð Þór Alfreðs- son. I sjötta sæti urðu síðan Sveinbjöm Eyj- ólfsson og Láras Pét- ursson sem komust næst því að halda uppi heiðri Borgfirðinga sem þó áttu stærstan hópinn einstakra fé- laga á mótinu. Mótstjórar voru feðgarnir Guðmundur Ólafsson en og Birkir Guðmundarson. mm Landsbankahlaupið er á laugardaginn í tilefni 120 ára aftnælis Lands- bankans verður hið sögufræga Landsbankahlaup endurvakið og fer það ffam nk. laugardag, 5. maí. Hlaupið verður haldið með sam- ræmdu sniði um allt land þ.e. á ein- um stað á höfuðborgarsvæðinu, f Laugardalnum og við 21 útibú bankans á landsbyggðinni. Öll börn á aldrinum 10-13 ára geta tekið þátt í hlaupinu en það eru árgangar 1994 til og með 1997. Skráning fer fram á klassi.is og í útibúum Lands- bankans. Síðasti skráningardagur er 3. maí. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum riðli auk SkallagTÍinur lagði Hamar Skallagrímur bar sigurorð af Hamri í Akraneshöllinni á föstu- daginn 2-1, í síðasta leik Lengju- bikarsins. Hamar komst yfir á 33. mínútu og þannig stóð í hálfleik. Borgnesingar komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og á 52. mín- útu jafnaði Valdimar Kristmimds Sigurðsson metin. Það var síðan Guðmundur Lúther Hallgrímsson sem tryggði Skallagrími sigurinn með marki á 82. mínútu. Skalla- grímur lenti í fjórða og næstneðsta sæti síns riðils með sex stig. Liðið lék fjóra leiki, vann tvo og tapaði tveimur. Liðið má þó að mörgu leyti vel við una og hefur verið stígandi í leik þess. Það var t.d. eina liðið sem lagði Hamar, sem varð efst í riðlin- um ásamt Hömrunum með níu stig. Þá tapaði Skallagrímur naumt fyrir BI/Bolungarvík 4-3, þrátt fyr- ir að átta leikmenn væru meiddir og þjálfarinn staddur erlendis. Jón Aðalsteinn Kristmundssonj, þjálfari sagði í samtali við Skessu- hom að hann væri sáttur við árang- urinn þó aldrei væri gaman að tapa. „Það var fínn stígandi í liðinu og við vitum vel hvað við getum og hlökkum til stunarsins.“ kóp Misjafii árangur í Lengjubikamum Knattspyrnufélagið Kári, frá Akranesi lenti í öðra sæti í sínum riðli í Lengjubikamum. Víkingur Ólafsvík varð í þriðja sæti í sama riðli. Liðin léku í riðli 1 í B deild og hlaut Kári sex stig úr fjórum leikj- um, en liðið vann tvo leiki og tap- aði tveimur. Víkingur vann einn, gerði eitt jafhtefli og tapaði tveim- ur og hlaut fjögur stig úr fjóram leikjum. Lið Snæfells í knattspyrnu lék í riðli 2 í C deild og lenti í neðsta sæti. Liðið tapaði öllum fjórum leikjum sínum og endaði með markatöluna 3-29. Ljóst er að Hólmarar verða að bíta í skjaldar- rendur og herða sig fyrir sumarið. Skallagrímur lenti í næstneðsta sæti þess riðils, en sagt er frá því annars- staðar í blaðinu. kóp s Jafiiteffi og sigur hjá IA IA gerði ágætisferð norður yfir heiðar um síðustu helgi þegar liðið lék tvo æfingaleiki í Boganum á Ak- ureyri. Liðið lék gegn Þór á föstu- dagskvöldið og þrátt fyrir nokkuð fjörugan leik endaði hann með markalausu jafhtefli. Óhætt er að segja að meira hafi verið skorað í leiknum gegn KA á laugardegin- um. I fyrri hálfleik var aðeins skor- að eitt mark og var Bjarni Guð- jónsson þar á ferð. I síðari hálfleik var allt annað uppi á teningnum og skorað grimmt. Dean Martin og Arnar Már Guðjónsson komu IA í 3-0 áður en KA minnkaði muninn. Bjami Guðjóns jók forskot Skaga- manna í 4-1, en eftír það slakaði liðið talsvert á klónni og norðan- menn gengu á lagið. Þeir skoruðu tvö mörk með stuttu millibili og leikurinn var því orðinn galopinn á ný, 4-3. Þeir Gísli Freyr Brynjar- son og Andri Júlíusson gerðu þó út um vonir KA marrna og komu IA í 6-3, en heimamenn náðu að klóra í bakkann með marki fyrir leikslok. Lokatölur urðu 6-4 IA í vil. Guðjón Þórðarson segir í viðtali á heimasíðu IA að hann sé mjög á- nægður með norðurferðina og hún hafi þjappað liðinu vel saman. Guðjón notaði alla tuttugu leik- mennina í báðum leikjum og var á- nægður með framlag þeirra allra. Guðjóns segir að Skagamenn hafi verið mun sterkari í leiknum gegn Þór en ekki náð að knýja fram sig- ur. I KA leiknum hafi gengið mun betur að nýta færin, en vömin hafi að sama skapi verið slakari. Hafa verði þó í huga að örar skiptíngar hafi riðlað leik liðsins. Nánar verður fjallað um lið IA og annarra liða á Vesturlandi í næsta tölublaði Skessuhorns þegar gerð verður úttekt á boltanum í sumar. kóp þess sem allir þátttakendur fá verð- launapening. Að hlaupi loknu verð- ur haldin fjölskylduhátíð á hverjum stað þar sem m.a. verður boðið upp á grillaðar pylsur, drykki, létta leiki og gjafir fyrir hlaupara og systkini. Hlaupavegalengdirnar eru tvær þ.e. 1500 m fyrir börn fædd '94-'95 og lOOOm fyrir börn fædd '96-'97. Skipt verður í stúlkna- og drengja- flokka. Fyrir hlaup verður upphit- un undir stjórn fagaðila á hverjum stað en fyrstu hlaupin verða ræst kl. 11.00 og fara þau fram á Akranesi, í Snæfellsbæ og í Grundarfirði hér á Vesturlandi. mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.