Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 21
 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 21 Landmælingar saíha og miðla upplýsingum Um síðustu áramót breyttist hlutverk Landmælinga Islands nokkuð, þegar kortaútgáfan var seld frá stofnuninni, líkt og Skessuhorn hefur greint frá. Landmælingar Islands hafa um árabil verið í því sérstaka hlutverki að vera ríkisstofnun í samkeppnis- rekstri og var oft og tíðum nokkuð áberandi á markaði. Landmæling- ar gáfu út vinsælar vörur, kort og geisladiska sem að hluta til voru í samkeppni við einkaaðila sem stundum kvörtuðu yfir sterkri stöðu stofnunarinnar. Nokkuð er síðan undirbúningur hófst að því að losa þennan þátt starfseminnar frá Landmælingum. Unnið hefur verið að skipulagsbreytingum síð- an í árslok 2004 auk greiningar á innra starfi og því lagaumhverfi sem stofnunin hefur starfað sam- kvæmt. Lögin sem fólu í sér sjálfar breytingarnar voru hinsvegar ekki samþykkt af Alþingi fyrr en um mitt ár 2006 og tóku gildi um síð- ustu áramót. I tilefni breytts um- hverf settist blaðamaður Skessu- horns niður með þeim Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra Land- mælinga og Gunnari H. Rristins- syni, þjónustustjóra og kynnti nýj- ar áherslur í starfinu. Breyttar áherslur Þessi breyting hefur haft minni áhrif á starfsemi Landmælinga en ætla má í fyrstu en samt þannig að stofnunin er ekki eins áberandi nú en áður. Kortaútgáfa var sú starf- semi stofnunarinnar sem var sýni- legust, en hún var hins vegar ekki stærsti hluti starfseminnar. Mikil- vægasta hlutverk stofnunarinnar á síðustu árum hefur verið að halda utan um og uppfæra gagnagrunna um Islands svo sem varðandi vegi, stjórnsýslumörk og mannvirki og að viðhalda og byggja upp lands- hnitakerfi. Við breytingar á lögum um starfsemina urðu áðurnefndir grunnar eftir hjá stofnuninni og getur hver sem er fengið afnot af þeim til kortagerðar eða annarra nota. Það sem selt var einkaaðilum voru sex útgáfugrunnar fyrir prentuð kort. Kaupandinn, Iðn- mennt, hefur rétt á útgáfu og sölu þeirra korta. Iðnmennt greiddi um 24 milljónir fyrir kortagrunnana og tæpar fjórar fyrir kortalager stofnunarinnar en það voru um 140.000 eintök prentaðra landa- korta. Við söluna má áætla að ár- legar sértekjur stofnunarinnar dragist saman um 30 milljónir króna, en allar þessar tölur eru án virðisaukaskatts. >s,. í takt við nágrannalöndin Magnús segir að þessi breyting á starfsemi stofnunarinnar hafi ekki átt að koma á óvart þeim sem til þekkja. Hún sé í anda við það sem gerst hefur í þessum eftitun í ná- grannalöndum okkar og í takt við stefiiu stjómvalda hér heima við að fela einkafyrirtækjum aukin verkefni í tengslum við opinbera þjónustu. Menn hafi því lengi séð í hvað stefndi og því hafi ekki verið um neina stökkbreytingu að ræða. Akveðin átök hafi hinsvegar átt sér stað á meðan verið var að finna út hvar línan ætti að liggja á milli einkaaðila og Landmælinga Islands. Mismunandi skoðanir hafi verið uppi um það, en á endanum hafi náðst sátt sem bæði hagsmuna- aðilar einkamark- aðarins, stjórn- völd og Land- mælingar geti vel við unað. Nokkur fækkun hefur orðið á starfsfólki Landmælinga undanfarin ár. Frá 2004 hefur þeim fækkað um sex starfsmenn, en engum var þó sagt upp við breytingarnar. Þess í stað var fært á milli deilda og ekki ráðið í þær stöður sem losnuðu. Nú era 28 starfsmenn hjá stofnun- inni og líklegt að sú tala muni hald- ast. Hlutverk Landniælinga Markmið Landmælinga Islands er að tryggja að ávallt séu aðgengilegar áreiðanlegar landfræðilegar grunn- upplýsingar tun allt Island. Sam- kvæmt nýsamþykktum lögum á stofhunin að vera umhverfisráðu- neytinu til ráðuneytis á fagsviðum hennar, byggja upp og viðhalda landshnita- og hæðakerfi og útbúa, halda við og miðla starfænum upp- lýsingum í mælikvarða 1: 50.000. Þá er það hlutverk Landmæhnga ís- lands að skrá og miðla upplýsingum um landfræðileg gagnasöfn (lýsigögn), stuðla að faglegu sam- starfi við háskóla, fyrirtæki og al- þjóðleg samstörf, sem og gerð og notkun staðla á fagsviðum stofhun- arinnar. Magnús og Gunnar segja að hlut- verk stofnunarinnar við að samræma og staðla vinnubrögð sé ekld síst mikilvægt, enda sé þar víða pottur brotinn. Mjög mikilvægt sé að menn Magnús Guðmundsson, forst/óri Landmæhnga og Gunnar H. Kristinsson, þjónustustjóri. leika á bættri þjónustu við notendur. Nýi vefurinn einfaldar aðgengi að gögnum og notendur hafa meðal annars aðgang að korta- og mynda- vefsjám. A vefhum eru einnig ýmis sérkort, s.s. kjördæmakort/sveitarfé- lagakort auk margvíslegs fróðleiks um Island. Vefurinn nýtist bæði al- menningi og fagmönnum. kóp Forsíða nýja vejjarins. noti sömu kerfin s.s. viðmiðanir og staðla, þannig að hægt sé að fá heild- stæðar upplýsingar um allt landið til að nota hvar og hvenær sem er. Slíkt gæti jafhvel bjargað mannslífum þegar til björgunaraðgerða kemur. Magnús segir að þetta sé ósköp ein- falt, það verði að vera til einn sam- ræmdur gagnagrunnur um Island sem margir geti haft afhot af. „Eg hef stundum líkt þessu við þjóð- skrána. Imyndum okkur ef hvert og eitt sveitarfélag væri með eigin kerfi til að skrá og halda utan um íbúa sína. Svo myndu þau kerfi kannski ekki getað talað saman. Þannig er þessu sumsstaðar háttað í korta- og landmælingakerfum t.d. á milli sveitarfélaga og við verðum að fá alla sem hlut eiga að máli til að samræma þetta.“ Nýr vefur bætir þjónustu Aðalhlutverk Landmælinga Is- lands er, eins og áður segir, að halda utan um gagnagrunn og uppfæra hann og miðla upplýsingum til not- enda. Nýr vefur stofhunarinnar sýn- ir hlutverk hennar glöggt, en hann var nýverið opnaður á slóðinni www.lmi.is. Vefurinn er hýstur hjá Nepal í Borgarnesi og gefur mögu- Glæsilegur leikskóli Kanntu að elda sóðan mat? Hefur þú gaman af að elda góðan matl Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað? Við leitum að duglegri mannesku til starfa í eldhúsí Landnámsseturs sem getur hafið störf sem fyrst. Unníð er á vöktum Frá 1. júní verður veitingahús Landnámsseturs opið alla daga frá kl. 10 - 20:30 Vinsamlega sendið umsóknir með tölvupósti á www.landnamssetur@landnam.is eða hafið samband í síma 8955460 Landnámssetur ÍSLANDS BORGARNESt B0RGARBYGGÐ Borgarbyggð - Framkvæmdasvið óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Boltageröum á eftirfarandi stöðum: Á Hvanneyri Á Bifröst Við Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi. Boltagerði 18 x 33 m að stærð sem lagt verður með KSÍ gervigrasi. Verkin innifela m.a. jarðvinnu, steyptan girðingarvegg, grindverk, snjóbræðsluskerfi, lóðarfrágang. Bjóða má í öll gerðin, tvö þeirra eða aðeins eitt þeirra og litið veður á tilboðin óháð hvort öðru. I Útboðsgögn verða seld í Ráðhúsi Borgarbyggðar, = Borgarbraut 14, Borgarnesi og I á Verkfræðistofu Sigurður Thoroddsen, Ármúla 4, I Reykjavík gegn 5000 krgjaldi. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsi Borgarbyggðar miðvikudaginn 16.maí 2007, kl 14:00. Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar Leikskólinn Ugluklettur í Borgamesi er núfullbúinn að utan en innandyra er unnið að frágangi. Skóla- húsið njtur sín vel á þessum stað og útsjni upp til sveita ogyfir f órðinn er ágcett. Ljósm . MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.