Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 20
20 MIÐVTKUDAGUR 2. MAI 2007 Rætt við Tómas Sigurðsson, verktaka í Ólafsvík Tómas ásamt syni sínum Svani og bamabarni vió vinnuna. í síðustu viku átti Vélalega TS í Olafsvík 40 ára starfsafmæli, en stofnandi hennar er Tómas Sig- urðsson. „Eg var að vinna í frysti- húsinu, ungur maðurinn," sagði Tómas um tilurð þess að hann fór að stofna þetta fyrirtæki. „Mig langaði að breyta til, keypti Massey Fergusson, fyrstu gröfuna ásamt bróður mínu Hauki í maí árið 1967. En á þeim tíma var erfitt að fá verk- efni, svo ég leitaði á náðir rafveitu- stjórans hjá Rarik á þeim tíma, því ég vissi að menn væru orðnir þreyttir á að moka með höndum og ég fékk strax smá verkefni hjá Rarik. I langan tíma var ég með mikla vinnu hjá Rarik eins og að plægja háspennulínur niður á mjög erfið svæði, en vann þess á milli í frystihúsinu. En svo fór þetta að vinda upp á sig, ég og aðrir félagar stofnuðum svo steypustöð og því fylgdu verkefhi við að moka steypu- efhi. Einnig voru við með fyrstu löndunarþjónustuna hér fyrir fisk- markaðina og var brjálað að gera í lönduninni hjá okkur. Einn morg- uninn biðu 80 trillur löndunar, þá fékk maðtu að svitna,“ segir Tómas um fyrstu árin í gröfuútgerð og öðru í Ólafsvík. Hann heldur áffam: „Svo tók ég að mér sorphirðu fyrir bæjarfélagið og var með hana í ein 26 ár. Svanur sonur minn byrjaði að vinna hjá mér árið 1980 og hefur verið með mér síðan og núna er Stefán sonur Svans einnig byrjaður í þessu.“ Aðspurður um verkefnastöðu fyrirtækisins um þessar mundir seg- ir Tómas hana mjög góða. „Við getum valið úr verkefhum, það er brjálað að gera. Við erum nú sex í föstu starfi hjá fyrirtækinu og vinn- um nær eingöngu í Snæfellsbæ þar sem okkur hefur verið vel tekið. Við erum þessvegna alltaf að endurnýja og kaupa ný tæki og erum til dæm- is með tveggja tonna gröfu sem er góð í garðvinnu og þessháttar og svo líka stærri tæki að sjálfsögðu. Þá gerum við ýmislegt annað sem til fellur, eins og t.d. steinsteypusög- un.“ Aðspurður um áhugamál sín fyrir utan vinnuna segist Tómas alltaf hafa haft gaman að boltanum. „Nú á ég trillu sem ég fer á á sumrin í góðum veðrum til þess að anda að mér fersku sjávarloftinu og ná mér í soðið,“ sagði Tómas. „En éghef því miður ekki haft mikinn tíma til þess vegna anna í vinmmni. Það er bara svo brjálað að gera.“ Tómas var að fullu á sinni gröfu við að moka sand á bíla og mátti engan tíma missa til þess að standi í einhverju spjalli við blaðamann, en sagði þó að lokum: „En ég er sáttur við lífið og tilveruna í dag, er vel á mig kominn líkamlega og á meðan svo er þá er ég ekkert að fara að draga mig í hlé, þetta er svo gam- an,“ sagði Tómas og hljóp eins og tvítugur unglingur upp í gröfu sína og tók til við að moka á bflana sína. af Tómas ásamt eiginkonu sinni Bimu en hún sér um bókhaldiö. Nokkrir af samstarfsmönnum Tómasar í gegnum tíöina ásamt nokkrum félögum frá Rarik. Myndin var tekin í samkvæmi sem haldiö var vegna 40 ára starfsafmælisins. Snemma beygist krókurinn. Svanur eins árs ájýrstu gröfu pabba síns. Stefán sonur Svans í gröfu aö- eins ársgamall en þarfannst honum hvergi betra aö sofa. Húsnœöi Varar er inni í húsnœöi Sjávarsafnsins en þar vinna iönaöarmenn nú höröum höndum viö aö fullklára húsnœöiö. Vinna við Vör í fullum gangi Vör, sjávarrannsóknarsetrið í Ólafsvík, er að byggja 140 fermetra húsnæði sem er staðsett inni í Sjáv- arsafninu en þar er nóg pláss til stækkunar. I húsinu verður skrif- stofuaðstaða og tvær rannsókna- stofur. Rannsóknaaðstaðan skiptist í blautrými, sem nýtist við úr- vinnslu sýna úr sjó og þurrrými fyr- ir greiningu og úrvinnslu. Vör er sjálfseignarstofnun og standa 22 aðilar að baki hennar. Eitt meginmarkmið stofnunarinnar er að rannsaka líffíki Breiðafjarðar með það að leiðarljósi að auka þekkingu á vistkerfinu og nýtingar- möguleika auðlinda svæðisins. Sótt er um styrki til rannsókna í inn- lenda sem erlenda rannsóknasjóði auk þess sem heimamenn taka virk- an þátt í athugun á lífríki Breiða- fjarðar. I upphafi er lögð áhersla á rannsóknir á undirstöðuþáttum líf- ríkisins (svifþörungum og dýrasvifi) en jöfnum höndum verður unnið að verkefhum sem stuðla að auk- inni nýtingu og arðsemi sjávarfangs úr Breiðafirði. I sumar munu fjórir vinna við rannsóknarsetrið ásamt Erlu Björk Örnólfsdóttir, forstöðu- manni. af Landgræðslufélag stofhað í Eyrarsveit Þau mættu á stofrftmd Landgræöslufélagsins. Frá vinstri Kristín Pálsdóttir, Hallur Pálsson, Aslaug Pét- ursdóttir, Gunnar Njálsson, Gunnar Kristjánsson, Olga Einarsdóttir, Þorkell G. Þorkelsson, Njáll Gunnarsson, OddurH Kristjánsson og Sunna Njálsdóttir. Á degi umhverfisins þann 25. aprfl sl. fór ffam formleg stofnun Landgræðslufélags Eyrarsveitar. Tólf félagar voru skráðir í félagið á stofnfundinum. Samþykkt voru lög fyrir félagið og kosin fimm manna stjórn sem skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnafundi. I að- alstjórn voru kosnir Hallur Páls- son Naustum, Oddur Hlynur Kristjánsson Skallabúðum, Gunn- ar Kristjánsson Grundarfirði, Gunnar Njálsson Grundarfirði og Þorkell Gunnar Þorkelson f.h. Ak- urtraða ehf. Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur þess að vinna að land- bótum í Eyrarsveit. Á stofnfund- inn mættu þrír fulltrúar Land- græðslu ríkisins, þau Þórunn Pét- ursdóttir héraðsfulltrúi Vestur- lands, Björn H. Barkarson sviðs- stjóri landverndarsviðs og Guðjón Magnússon sviðsstjóri almanna- tengslasviðs. I máli þeirra kom ffam að nokkur slík landgræðslufé- lög eru starfandi á landinu. Lýstu þau ánægju sinni með þetta fram- tak í Eyrarsveit. Þórunn Péturs- dóttir kvaðst reiðubúin að aðstoða félagsmenn í væntanlegri skipu- lagningu á starfi félagsins s.s. við gerð uppgræðsluáætlana og í því sambandi sagði hún frá því að væntanleg væri ný loftmynd af svæðinu í byrjun maí sem auðvelda myndi skipulagsvinmma. Miðað er við að á vegum hins nýstofnaða landgræðslufélags verði farið að vinna eftir slíkri áætlun árið 2008. Sk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.