Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 19
■ ■.t-VMII.... I MIÐVIKUDAGUR 2. MAI 2007 19 Unnið sér í haginn - ekki verið að dorga Síðastliðinn föstudag voru starfs- menn Vegagerðinnar í Borgarnesi á Borgarfjarðarbrúnni að vinna sér í haginn fyrir komandi vertíð í sum- ar. Að sögn Inga Reynissonar, starfsmanns Vegagerðarinnar er á hverju ári sett niður þurrkví til að gera við brúarstöplana. Botninn þarf að vera sléttur undir kvínni og þar sem þessi risavél, sem aðeins eru til þrjú eintök af á landinu, var stödd á svæðinu var tækifærið nýtt til að laga botninn. bgk Afstaða um Evrópusambandsaðild innan næstu átta ára Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum formaður Alþýðuflokksins og ráð- herra, fjallaði um jafnaðarstefnuna á íjörugum stjómmálafundi Samfylk- ingarfélags Borgarbyggðar í Borgar- nesi í gær. Ræddi hann um grunn- gildi jafnaðarstefnunnar og fór vítt yfir sviðið. Byrjaði á að tala um jafh- aðarstefnuna í alþjóðlegu samhengi, um bandaríska módehð og loks um norræna velferðarmódelið sem Evr- ópusambandið er í síauknum mæli að tileinka sér. Jón Baldvin fullyrðir að innan átta ára verði Islendingar að taka afstöðu, af eða á, um inngöngu í Evrópusambandið og að stjómvöld- um beri skylda til að stuðla að upp- lýstri umræðu um máhð. Jafhffamt tók hann það ffam að það væri afar mikilvægt fyrir stjóm- Hluti gesta á fundinum. málaumræðuna í dag að forystufólk flokkanna tækju afdráttarlausa af- stöðu til aðildar að Evrópusamband- inu og gæfu kjósendum um leið skýr skilaboð um það hvort stefnan væri að fylgja hinu norræna velferðar- módeli eða bandaríska markaðsmód- elinu. Aðspurður sagði hann stefnu Samfylkingarinnar hvað Evrópu- sambandið varðar góða, en að það vantaði uppá að henni væri nægilega haldið á lofti. Þá gagnrýndi Jón fjöl- miðla fyrir einhæfa umfjöllun í að- draganda kosninga og sagði þá ráða um of umræðunni í kosningabarátt-, unni. Yfirborðskennd umfjöllun og' metnaðarleysi einkenndi umíjöllun fjölmiðla þar sem lítið annað væri \ rætt en skoðanakannanir, sem ffam- bjóðendur létu hafa sig í að tjá sig endalaust um í stað þess að leiða málefhalega mnræðu um stjómmál. Aðspurður um áhrif skoðanakann- ana fjölmiðla vikumar fyrir kosning- ar sagðist hann hlynntur því að banna birtingu skoðanakanna eða „skoðanahannanna“ eins og hann kallaði það a.m.k. hálfum mánuði fyrir kjördag. Að lokum sagði Jón Baldvin komandi kosningar snúast um jöfnuð eða ójöfnuð, sérhagsmuni eða almannahagsmuni. vvm FISKISTOFA Útibú Fiskistofu í Stykkishólmi Staða veiðieftirlitsmanns við útibú Fiskistoíu í Stykkishólmi er laus til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni útibúsins em almennt veiðieftirlit til sjós og lands. Leitað er að einstaklingi sem hefur skipstjómarmenntun og reynslu af sjávarútvegi. Góð íslensku- og tölvukunnátta em áskilin. Starfið krefst þess að umsækjendur séu sjálfstæðir og nákvæmir í vinnubrögðum og búi yfir fæmi í mannlegum samskiptum sem einkennist af sanngimi, háttvísi og fagmennsku. Laun em samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt starfsferilsskrám skulu sendar til Fiskistofu merktar “starf veiðieftirlitsmanns í Sfykkishólmi” fyrir 16. maí 2007. Einnig er hægt að senda umsóknir til fiskistofa@fiskistofa.is Upplýsingar um starfið veitir Eyþór Bjömsson, forstöðumaður veiðieftirlitssviðs í síma 5697900 Starfshópur um ftístundabyggðir skilar tillöguin Starfshópur um málefhi er varða frístundahús, sem Magnús Stefáns- son félagsmálaráðherra skipaði í júlí 2006, hefur skilað einhuga til- lögum í formi framvarps til laga um réttindi og skyldur eigenda og leigjenda lóða í skipulagðri frí- stundabyggð. Hópurinn leggur meðal annars til að samningar um leigu á lóð undir frístundahús kveði á um endurskoðun á leigu og for- kaupsrétti leigjanda við sölu á leigulóð. Ennffemur leggur hópur- inn til að farin verði hliðstæð leið og í fjöleignarhúsalögum við úr- lausn tiltekinna ágreiningsefha. Fé- lög eigenda og leigjenda lóða í ffí- stundabyggð verði vettvangur fyrir samskipti aðila um sameiginleg hagsmunamál og eigendur og leigj- endur geti skotið ágreiningsefhum með nokkrum takmörkunum til kærunefndar fjöleignarhúsamála, því það sé fljótleg og ódýr leið til að fá niðurstöður í deiluefhi. Félagsmálaráðherra hefur ákveð- ið að senda ffumvarpsdrög starfs- hópsins til umsagnar hagsmuna- samtaka. Einnig gefst almenrúngi kostur á að koma á framfæri at- hugasemdum og ábendingum á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins. Eftir að umsagnarfrestur er úti verður farið yfir athugasemdirnar með það að markmiði að ffumvarp til laga verði lagt fyrir Alþingi í haust. bgk Númerslausir bílar hirtir í Borgarbyggð Borgarbyggð hefur gert samning við Vöku ehf. um að hirða núm- erslausa bíla innan marka sveitarfé- lagsins. I því felst að skriflega á- minning verður límd á númerslaus- ar biffeiðar og eigendum gefinn vikufrestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum færir Vaka bílana á geymslusvæði sitt og sendir eig- endtmum bréf. Ef þeir verða ekki sóttir verður þeim fargað eða boðnir upp. Allur kosmaður sem til verður fellur á eiganda biffeiðar- innar. A næstunni mun hefjast vinna við þessa hreinsun þar sem númerslausar bifreiðar á lóðum og löndum sveitarfélagsins verða fjar- lægðar. Hreinsunarvinnan mun vara næstu árin meðan samningur- inn við Vöku er í gildi. Líkt og Skessuhorn hefur greint ffá hefur Akraneskaupstaður gert sams kon- ar samning við Vöku. kóp Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fiskistofu við ráðningar. Umsóknir sem berast að umsóknarfresti loknum verða ekki teknartil greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um Fiskistofu má finna á heimasíðu: Hafnarfjörður, 25. apríl 2007 Fiskistofa www.flskistofa.is Dalshrauni 1 - 220 Hafnarfjörður Sími: 569 7900 - Fax: 569 7991 Þau völdu búfræði! Eins og gefur að skilja starfa þeir sem Ijúka tveggja ára námi í búfræði við Lbhl flestir við landbúnaðarstörf en einnig starfa margir innan stoð- og þjónustugreina landbúnaðarins. Markmið búfræðináms er að auka þekkingu og færni einstaklingsins til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf, ekki síst á sviði rekstrar, bútækni, jarð- og búfjárræktar. Meðal þess sem fjallað er um í náminu er búfjárrækt, jarðvegs- og umhverfisfræði, nytjaskógrækt, málmsuða og bókhald. Möguleikar á sérhæfingu í náminu eru einkum á sviði nautgripa-, sauðfjár- og hrossaræktar. Á Hvanneyri er nýtt kennslufjós og nýleg fjárhús á Hesti. Þá er skólinn með frábæra aðstöðu til kennslu í hrossarækt og hestamennsku. Fjórðungur búfræðinámsins felst í námsdvöl á einu af tæplega 80 kennslubúum, sem Lbhl er með samstarfssamning við. Þar dvelur nemandinn sem einn af fjölskyldunni í þrjá mánuði og tekur þátt í daglegum störfum heimilismanna. Námið er góður undirbúningur til framhaldsnáms á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga. Boðið er upp á búfræðinám í fjarnámi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Viltu kynna þér betur nám í búfræði við Lbhl? Hringdu í Sverri Heiðar, námsbrautarstjóra búfræðibrautar í síma 433 5032 eða 843 5332. „Búfræðinámið er fjölbreytt og spennandi, mérfinnst ég vera í góðum skóla. Á Hvanneyri er yndislegt að búa og félagsskapur inn er frábær! Búfræðinám er vænlegur kostur fyrir þá sem hafa áhuga á fjölbreytilegu náttúrufræðinámi með verklegu ívafi," segir Ragnhildur Anna Ragnars-dóttir, sem er þessa dagana í námsdvöl á Syðri-Hofdölum í Skagafirði. „Ég tel að búfræðinámið sé eitthvað það skemmtile- gasta sem ég hef lent í á ævi minni; endalaus gleði í góðum félagsskap þar sem maður lærir það sem maður hefur virkilega áhuga og vit á. Gott líka fyrir hin svo nefndu „borgarbörn" þvi grasið er oft grænna hinu megin við lækinn (Hvalfjörðinn)," segir Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, sem er í námsdvöl á Bessastöðum í Húnavatnssýslu. Það er einstök upplifun að vera á Hvanneyri, og búfræðin er virki lega spennandi og fræðandi kostur fyrir alla þá sem hafa áhuga á landbúnaði og tengdum málefnum. Búfræði er gott nám fyrir alla hvaðan sem er af landinu," segir Kópavogsbúinn Jón Örn Angan týsson. Jón Örn er um þessar mundir í námsdvöl að Skriðu í Hörgárdal. www.lbhi.is Hvanneyri ■ 311 Borgarnes ■ Sími 433 5000

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.