Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. MAI 2007 Fjölmenni á íj ölmenningardegi Það var margt um manninn á fjölmenningardeginum sem haldinn var í félagsheimilinu Klifi sl. laugardag. Fulltrúar ffá 16 löndum kynntu menningu lands síns og fengu gestir einnig að smakka á mat ffá löndunum. Var það óspart nýtt og gestir ánægðir að fá að kynnast með eigin ratm matarmenningu og Þessar systur erufrá Filippseyjum. menningu almennt frá hinum framandi löndum. Einnig var mikið um handverk og margt annað forvimilegt á boðstólum. Góð stemning var á meðal gesta og áætlar Þórdís Björgvins- dóttir, formaður lista- og menningarnefhdar að gestir hafi ver- ið á bilinu 4-500 og fór dagurinn fram úr björtusm vonum að Gestir aö skoða matfrá Filippseyjum. hennar sögn. „Það vilja margir að fjölmenningardagurinn verði gerður að fösmm lið hér í bæjarfélaginu á hverju ári. Þó að undirbúningsvinna hafa verið mikil er þetta fyllilega þess virði og allir sem að þessu stóðu eru í skýjunum yfir ffábærum degi,“ sagði Þórdís í samtali við Skessuhorn. af Svíamir höfðu upp á margt að Ijóða. Smakkað á teifrá Argentínu. Fulltrúi Tælands. Þessar ungu dömur kynntu Suður Afrtku af myndarskap. Gestir smakka á veitingum frá Póllandi. Fulltrúar Úkratnu. Ruslpósti safnað á degi umhverfisins Nemendur víða á Vesturlandi gerðu ýmislegt í tilefni dags um- hverfisins sem var sl. miðvikudag. I Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi tóku fyrsta,- og annarsbekkingar sig til og söfrmðu saman öllum ruslpósti sem safnast hafði á heim- ilum þeirra í eina viku. Líkt og kemur ffam á heimasíðu Borgar- byggðar gerðu elsm nemendur skólans könnun á bæjum um flokk- un sorps og meðferð ýmiss úr- gangs. Þar að auki könnuðu þau skógrækt í sveitinni. Þá tóku þeir sig til og hressm upp á skilti og miða tengt orkusparnaði. A mynd- inni, sem fengin er af vef Borgar- byggðar, má sjá nokkra nemendur við affaksturinn af ruslpóstssöfnun- inni. kóp Umhverfisátak í Skýjaborg Krakkamir tilbúnir t slaginn. Myndfengin afvef Hvalfjarðarsveitar. Krakkarnir á Skýjaborg, leik- skóla Hvalfjarðarsveitar, lém ekki sitt eftir liggja á degi umhverfisins sem var sl. miðvikudag. Þau fylkm liði, vopnuð ruslapokum, og tíndu rusl í nágrenni skólans og fegruðu þannig umhverfi sitt. Börn og starfsfólk lém slagveður ekki affra sér ffá starfi sínu. Með þessu ffam- taki hófst með formlegum hætti umhverfis- og náttúruþema í Skýjaborg en framundan eru gönguferðir, vorheimsókn í sveit, ræktun trjáa og skógræktarferð f Fannahlíð og ýmislegt fleira. Krakkarnir munu líka syngja um náttúruna, teikna og lita myndir henni tengdar og leika sér í nátt- úrulegu umhverfi. Framkvæmdir við stækkun skól- ans ganga vel og eru þær viku á undan áætlun. Risin er 127 fer- metra viðbygging úr timbri og þegar skólanum verður lokað í sumar verður farið í breytingar innanhúss f eldri hluta leikskólans. Leikskólaplássum mun við þetta fjölga úr 30 í 48. Framkvæmdum samkvæmt áætlunum á að vera lok- ið 1. ágúst. Það er Akur hf. á Akra- nesi sem sér um byggingarfram- kvæmdir. Líkt og Skessuhom hef- ur greint ffá ákvað sveitarstjóm Hvalfjarðarsveitar í fyrra að leik- skóli sveitarfélagsins yrði gjald- ffjáls. Viðbyggingin við Skýjaborg. Mynd fengin afvef Hvaljjarðarsveitar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.