Skessuhorn


Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. MAI2007 Séra, séra Ymsar sögur eru til af sr. Hall- grími Péturssyni sem kenndur hefur verið við Saurbæ á Hval- fjarðarströnd. Þegar hann var að fara suður á Hvalsnes að taka við prestakalli sínu þar, var hann fótgangandi og afar fátæk- legur til fara. Kom hann síðla dags á prestssetrið, svangur og þreyttur. Þar var öldruð kona við hlóðir í eldhúsinu og hræði í grautarpotti og bað Hallgrím- ur hana að gefa sér eitthvað að borða. Bað hún hann lengstra orða að koma sér á brott hið snarasta því vellingurinn ætti að vera handa nýja sóknarprestin- um, honum sr. Hallgrími. Þá varð Hallgrími að orði: Einhvem tíma, kerling, kerling kann svo til að bera, að égfái velling, velling og verði séra, séra. Augnlækning Leirulækj ar-Fúsa Margir hafa heyrt sögur af Leirulækjar-Fúsa, eða Vigfúsi Jónssyni. Hann þótti kunna talsvert íyrir sér og sumir töldu sig fá bót af læknisráðum hans. Eitt sinn kemur til hans maður sem er með mikinn verk í aug- um og biður Fúsa ásjár. Hann bregst vel við bóninni, krotar eitthvað á blað og segir mann- inum að binda seðilinn fyrir augun. Hann megi alls ekki taka blaðið frá fyrr en honum sé batnað. Þakkar maðurinn Fúsa, fer heim og gerir sem honum var sagt. Efdr stuttan tíma líður verkurirm í burtu og maðurinn tekur umbúðirnar frá og les þá eftirfarandi vísu á miðanum. Sá er í Víti, sem þig græði, sá á líti bænirnar. Ur þér slíti augun bæði og aftur skíti í tóttimar. Ósáttur við útsvarið Bóndi nokkur var ósáttur við útsvarið og kærði það. Hann tíndi eitt og annað til sér til málsbóta og bar sig meðal ann- ars saman við annan bónda í sveitinni, sem Jón hét. Sá hirm sami raðaði kvörtun granna síns í bundið mál og út úr því kom þetta: Eg kenni það konu minni að kemst ég í skuldir og basl. Því hún er mér alónýt inni. Og eins er að hafana í drasl. Útsvar mitt ætti að lækka svo eðli mitt njóti sín. En Jóns ætti heldur að hækka því hans kona,er duglegri en mín. Ekki fleira úr sveitinni að sinni. Meira síðar. Bima G. Konráðsdóttir Hestamannafélagið Dreyri sextugt Hestamannafélagið Dreyri hélt hátíð á Æðarodda á Akranesi í gær, 1. maí í tilefni af 60 ára afrnæli félagsins. Hátíðin hófst með hópreið frá skeiðbrautinni á Barðanesi klukkan 13 en dagskrá á Æðarodda hófst uppúr því. Fjölbreytt dagskrá var í boði, firmakeppni, skrautreið barna og unglinga, gæðingasýningar og útskýringar svo eitthvað sé nefnt. Þá sýndi Julio á Geitabergi listir frá heimalandi sínu Urúgvæ, en hestur hans er taminn að þess lands sið. Hesturinn kann ýmsar listir auk þess sem Julio sýndi handtök með snöruna og sitthvað fleira. Jón Sigurðsson, formaður afmælisnefndar Dreyra, sagði í samtali við Skessuhorn að einungis væri um upphafið á afmælisárinu að ræða. Verið væri að gera mynd um sögu félagsins og var m.a. tekið upp efhi á hátíðinni í gær. Aftur verður blásið til hátíðar með haustinu þegar afrakstur þeirrar kvikmyndagerðar verður kynntur og að auki stendur til að fara í félagsferð í sumar. Hestamannafélagið Dreyri var stofnað „af sérvitrum hestaköllum af Skaga,“ eins ogjón segir, þann 1. maí árið 1947. Fyrr um veturinn höfðu þeir stofhað félagið Geisla, en þar sem annað félag bar það nafn var skipt um heiti og nýtt félag stofnað á þessum degi fyrir sextíu árum. Meðfylgjandi myndir eru úr hópreið Dreyrafélaga frá Barðanesi þar sem ungir sem eldri tóku þátt. kóp/ Ljósm. mm. Naglastofa á dekkj averkstæði Nýverið keyptu hjónin Heiðar Axelsson og Sigurbjörg Hilmarsdóttir fyrirtækið Smur- og dekkjaþónustuna að Ennisbraut 55 í Ólafsfvík. „Okkur stóð það til boða að kaupa fyrirtækið og okkur langaði til að vera með okkar eigin rekstur og slógum því til,“ sagði Heiðar í samtali við Skessuhorn. „Ég er búinn að vera bflskúrsgrúskari í mörg ár og haft áhuga á bflum og því sem þeim tilheyrir. Við erum hér með öll helstu tæki sem til þurfa í svona rekstur og einnig þjónustum við bflaumboðin og erum með helsm dekk á lager auk þess sem við erum með gott úrval af smursíum. Það er búið að vera nóg að gera að tmdanförnu og viðskiptavinir hafa tekið okkur mjög vel,“ bætir hann við. Sigurbjörg segir að þau geti ekki verið annað en ánægð með v i ð t ö k u r bæjarbúa. Aður en þau hófu reksturinn hafði Heiðar starfað sem sjómaður í mörg ár og vann einnig hjá Fiskmarkaði Islands. Sigurbjörg var áður að vinna hjá Landsbankanum. „Við höfum lausamenn í mestu törnunum en erum núna tvö sem vinnum við þetta. Heiðar sér um viðgerðimar og ég sé um bókhaldið,“ segir Sigurbjörg að mála gelnögl á vinnustofu sinni á efri hæð dekkjaverkstæðisins. Heiðar Axelsson og Sigurbjörg Hilmarsdóttir. Sigurbjörg. Með naglastofii á efiri hæðinni Sigubjörg er lærð sem naglasnyrtifræðingur og á effi hæð verkstæðishússins er íbúð sem hún er búin að innrétta sem naglastofú og þar er hún að steypa og gera við gelneglur og mála. Auk þess að rukka og setja á neglur er Sigurbjörg söngkona í hljómsveitinni Bít og mega viðskiptarvinir þeirra því eiga von á að heyra hana taka ballöður í vinnunni. Þannig er nóg að gera hjá þessum athafnasömu hjónum þessa dagana. af Allt í einni ferð Þarftu að láta smyrja bílinn, fá klippingu og láta pressa buxurnar? Ef svo er má segja að hvergi á landinu sé það jafn hentugt og í Borgarnesi. Þar er hægt að slá a.m.k. þrjár flugur í einu og sama högginu. Smurþjónusta Hölla, hárgreiðslustofan Tíkó og efnalaugin Múlakot em nefnilega öll til húsa á sama stað við Borgarbrautina. Þó segja mætti að reksturinn sé ekki sérlega skyldur gengur sambýlið að því er virðist ágætlega. mm Kveðja frá Sveim í Hvammi Auðvald iðkar tálið eykur spennu brjálið. Töfi-ar tískuprjálið tötrum biiið gjálið. Eyðslu brennur bálið, bráðum vandast málið. Illt mun reynast álið Ekki sopið kálið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.