Skessuhorn - 02.05.2007, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 2. MAI2007
25
I
Eygló Harðardóttir i vinnustofu sinni í Englendingavík. Eins og sjá má er henniýmis-
legt til lista lagt. Ljósm. Eva Sumarlióadóttir.
Segist vera föndurkona
- ekki listamaður
Eygló Harðardóttir í Borgamesi
dundar sér í hjáverkum við að gera
bæði nytja- og skrautmuni úr gleri.
„Þetta byrjaði eiginlega allt á því að
ég fór í heimsókn til Olafar Sig gler-
hstakonu úti í Brákarey og í fram-
haldinu á helgamámskeið hjá Glit.
Þá varð ekki aftur snúið. Eg keypti
mér síðan bræðsluofii á síðasta ári og
hef fengið inni hjá Hollvinasamtök-
um Englendingavíkur. Þar er ég
með ofrúnn og aðstöðu til að vinna
glerið. Það kaupi ég í Glerborg, þeir
era að selja svona föndurkonum eins
og mér afskurði, einnig fæ ég af-
ganga hjá Glerhöllinni á Akranesi
ffítt eða fyrir lítið,“ segir Eygló.
Hún segist ekkert vera að auglýsa
starfsemina enda sé hún ekki lifi-
brauðið og ekld lagt upp með þetta
föndur í þeim tilgangi. Þó er hún
búin að selja eitthvað af matarstell-
um, bökkum, skrautmunum og þess
háttar. „Þetta fféttist svona um því
að maður þekkir mann eins og sagt
er. Fólk hringir ef það hefur áhuga á
að fá að skoða þetta föndur mitt og
ef ég er heima er það meira en guð-
velkomið að sýna. Þetta er einungis
gert mér til gamans og svo er hitt
bara bónus ef maður selur eitthvað,“
sagði Eygló Harðardóttir föndur-
kona að lokum.
hgk
Hörpuhátíð í leikskólanum
Hraunborg
Á leikskólanum Hraunborg á
Bifröst var haldin svokölluð
Hörpuhátíð dagana 23- 27.apríl
sl. Hátíðin samanstóð af þema-
vinnu alla vikuna sem fólst í
föndri, fræðslu og skemmtun sem
tengdist vorinu. Föndrað var í tré
og með blómum, flugur og far-
fuglar skoðaðir og teiknaðir, nátt-
úrulistaverk gerð og pöddum
safnað í skál með gróðri. Hátíð-
inni lauk svo formlega á föstu-
deginum með opnu húsi þar sem
foreldrum var boðið að koma að
skoða afrakstur vikunnar og
heyra hvern hóp flytja skemmti-
atriði. Á eftir var boðið upp á
pylsur og djús. Dagurinn heppn-
aðist mjög vel og foreldrar og
börn ánægð með vikuna.
Það var Auður Helgadóttir,
starfsmaður leikskólans sem
skipulagði þemavikuna, en hún
stundar nám í Kennaraháskólan-
um og var verkefnið liður í námi
hennar, að skipuleggja slíkt starf.
mm
Vinnuréttindi rædd á Bifröst
umferðaröryggisvika
Vinnuréttardagur Háskólans á
Bifföst verður haldinn næstkom-
andi föstudag á Bifröst. Frammæl-
endur verða Magnús M. Norðdahl,
deildarstjóri lögffæðideildar ASI,
sem talar um alþjóðlegan vinnurétt
- nýja Evrópusamninga og nýjar
samþykktir alþjóðavinnumálastofh-
unarinnar; Hrafnhildur Stefáns-
dóttir, yfirlögfræðingur Samtaka
atvinnulífsins, fjallar um lögffæði-
leg álitaefni varðandi frumvarp
endurskoðunarnefndar jafnrétt-
islaga; Elín Blöndal, dósent við
Háskólann á Bifföst, fjallar um
vottun jafhlaunastefnu; Ástráður
Haraldsson, dósent við Háskólann
á Bifföst, fjallar um nýjar takmark-
anir á rétti atvinnurekenda til að
ráða og reka, Bergþóra Ingólfsdótt-
ir, hdl. Mandat lögmannsstofu, um
ábyrgð notendafyrirtækja á latmum
leigðra og útsendra starfsmanna og
Lára V! Júlíusdóttir, lektor við Há-
skóla íslands, um rétt atvinnurek-
enda til skaðabóta við brotthlaup
starfsmanns úr starfi - heimild til
hýrudráttar og fleiri leiðir. Fundar-
stjóri verður Bryndís Hlöðvers-
dóttir, forseti lagadeildar Háskól-
ans á Bifföst.
Rannsóknasetur vinnuréttar og
jafnréttismála stendur að vinnurétt-
ardeginum í samstarfi við Vinnu-
réttarfélag íslands og lagadeild Há-
skólans á Bifföst. Áhugasömum er
bent á að ffekari upplýsingar er að
finna á heimasíðu Rannsóknarset-
urs vinnuréttar og jafnréttismála
www.rvj.bifrost.is og á vef Háskól-
ans á Bifföst www.bifföst.is og þar
geta þeir skráð sig til þátttöku.
(jréttatilkynning).
Síðasta vika var alþjóðleg um-
ferðaröryggisvika. Meðal þeirra
sem eiga að stuðla að auku öryggi í
umferðinni er Vegagerðin. I ný-
samþykktri samgönguáætlun fyrir
árin 2007-2010 er að finna umferð-
aröryggisáætlun sem gerir ráð fyrir
sérstökum aðgerðum til að fækka
slysum. Stór hluti þeirra verkefna
er á vettvangi Vegagerðarinnar.
Eitt af verkefnunum er eyðing
svartbletta sem eru staðir þar sem
óvenju mörg slys verða. I það verk-
efhi á að verja 120 milljónum króna
í ár og samtals 450 milljónum.
Annað verkefni varðar umhverfi
vega og aukna notkun vegriða og
fjölgun áningarstaða við þjóðvegi
landsins er þriðja verkefnið. Þar er
gert ráð fyrir hvíldarstæði fyrir
ökumenn atvinnuökutækja þar sem
þeir geta lagt bílum sínum og lagt
sig í leiðinni. Þá má nefna að settar
verða upp fleiri hraðamyndavélar,
samtals 16 fastar vélar og þar af sex
á þessu ári. Þá á að fjölga skiltum
við þjóðvegi með upplýsingum um
leiðbeinandi hraða. Ekki er talað
um að áningarstaðaskiltum eigi að
fjölga, þ.e. setja þau upp á fleiri
stöðum en rétt áður en beygja skal,
eins og víða er núna.
Loks má geta þess að inni í þess-
ari áætlun er verkefni sem miðar að
því að takmarka lausagöngu búfjár.
Áhersla verður lögð á að girða af
vegi þar sem áhættan er mest.
Áætlað er að girða um 300 kíló-
metra á þessu fjögurra ára tímabili
þar sem um þriðjungur slysa og ó-
happa verða af þessu tagi.
Vakið hefur athygli að í frétt ffá
Samgönguráðuneytinu um fund í
tengslum við umferðaröryggisvik-
una segir orðrétt: „Tilgangur
hennar (öryggisvikunnar) er meðal
annars að auka og efla vitund
stjórnmálamanna fyrir umferðarör-
yggí-“
bgk
Háskólasetur á Akranes
H I flKl íbúar
L*.f Akranessvæð-
I inu hafa með
afdráttarlaus-
um hætti lýst því að það sem skipt-
ir hvað mestu máli fyrir búsetuskil-
yrði séu menntamálin. Möguleikar
til að afla sér framhaldsmenntunar
eins og háskólanáms var í 2. sæti
yfir þá þætti sem íbúarnir töldu
helst ábótavant samkvæmt könnun
sem Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi létu gera. Sama könnun leiddi
í ljós brýna þörf fyrir iðnaðarmenn
með framhaldsmenntun.
Fjölbreytni er forsenda
öflugs samfélags
Þótt samgöngur verði stöðugt
greiðari milli Akraness og Reykja-
víkur má ætla að aðstæður fólks til
að sækja nám eða vinnu þangað geti
verið mismunandi. Það á t.d. við
um fólk sem þegar er í starfi og
komið með fjölskyldu. Háskólaset-
ur, sem færir námið til fólksins í
stað hefðbundinnar skólasóknar,
myndi gerbreyta aðstæðum til að
sækja sér slíka menntun. Mögu-
leikar til að stunda fjarnám fara sí-
fellt vaxandi. Vmstri hreyfingin -
grænt framboð leggur áherslu á að
sérhvert samfélag geti stöðugt sótt
ffam á sviði menntunar. Þróun há-
tækniiðnaðar framtíðarinnar sem er
baráttumál okkar krefst öflugs
menntunarkjarna í hverju byggðar-
lagi. Fjölgun starfa hér á Akranes-
svæðinu hefur að mestu hvílt á auk-
inni stóriðju. Sú mikla áhersla sem
lögð er á þann iðnað getur leitt
samfélagið út í einhæfni í störfum
sem höfða til afmarkaðs hóps á til-
teknum aldri. Því er afar brýnt að
auka fjölbreytni í atvinnulífi á svæð-
inu og efla framboð á möguleikum
til menntunar.
Vagga iðnmenntunar
Áratuga hefð er fyrir öflugri iðn-
menntun á Akranesi. Fjölbrauta-
skólinn er flaggskip Vesturlands á
því sviði. Iðnnámið hefur þó átt
undir högg að sækja í tíð ríkis-
stjórnar Framsóknar- og Sjálfstæð-
isflokks. En það nám krefst meiri
kostnaðar en hefðbundið bóknám.
Þarf skólinn að heyja stöðuga
baráttu fyrir iðnnámi sínu og þeirri
sérstöðu sem hann hefur haff á því
sviði.
Ibúum Akraness og nágranna-
byggða mun fjölga ört á næstu
árum, en um þessar mundir eru þeir
um 6500. Háskólasetur með
kennslu og rannsóknir í iðngrein-
um, sem hér er lagt til, mun auka
enn á fjölbreytni í tækni- og há-
skólanámi í héraðinu. Háskólasetur
á Akranesi mtm styrkja þessa heild-
armynd menntunar og bæta enn
ftekar búsetuskilyrðin og koma þar
til móts við eindregnar óskir íbú-
anna í þessu ört vaxandi byggðar-
lagi.
Sóknarfæri Akraness
Sókn er besta vörnin og áður-
nefnd könnun sýnir mjög sterka þrá
íbúanna eftir auknu framboði á há-
skólamenntun í heimabyggð. Hver
landshluti, hvert byggðarlag verður
stöðugt að sækja fram í menntunar-
málum annars er hætta á stöðnun.
Menntun, fjölbreytt atvinna, blóm-
legt mannlíf og hagvöxtur fara sam-
an. Þar liggja sóknarfæri Akraness.
Eg hef flutt tillögu á Alþingi um
stofnun háskólaseturs á Akranesi,
en nú þurfa heimamenn að taka
ffumkvæðið og setja málið í gang.
Eg heiti því að gera mitt til að fylgja
þessu máli efrir af fullum þunga á
Alþingi.
Jón Bjamason alþingismaður