Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 14
Langistígur Einn af þeim stígum á Þingvöllum sem Ófeigur flóraði.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ófeigur var óskaplega mikillhagleiksmaður, hann varkoparsmiður, söðlasmiðurog rennismiður. Hann smíð-
aði þrjár kirkjur, skreytti tólf eða fjór-
tán kirkjur, smíðaði fimm hundruð
rokka, hélt hreindýr, var orðlögð refa-
skytta, vegagerðarmaður og hagyrð-
ingur góður,“ segir Guðfinna Ragnars-
dóttir um alþýðulistamanninn og
bóndann Ófeig Jónsson á Heiðarbæ í
Þingvallasveit, en
Guðfinna ætlar að
vera með leiðsögn
á Þingvöllum í
kvöld þar sem hún
segir frá Ófeigi og
sýnir hluti eftir
hann.
„Ófeigur var
stórmerkilegur
maður sem vert er
að draga fram í
dagsljósið. Forvitni
mín um hann vaknaði þegar ég sá í
fyrsta sinn á heimili tengdamóður
minnar litla blómum skrýdda prjóna-
tínu og fallega snældu með stórum út-
skornum snældusnúð sem amma hans
hafði komið með þegar hún flutti að
Neðra-Apavatni. Ég fór að grúska í
sögu þessara gripa sem reyndust vera
smíðaðir af Ófeigi, en langafi Magnúsar
manns míns var tengdasonur Ófeigs.“
Guðfinna segir Ófeig hafa verið
ómenntaðan átjándu aldar mann sem
fæddur var árið 1770. „Hann bjó yfir
einstakri tilfinningu fyrir litum og
fylgdist vel með erlendum straumum
og stefnum. Hann var ævinlega vel til-
hafður og klæddi sig helst í kónga-
blátt. Hann var fjölhagur, málaði, skar
út og smíðaði, en þekktastur var hann
fyrir kirkjuskreytingar sínar, hvort
sem það voru altaristöflur, predik-
unarstólar, söngtöflur, kórbitar, graf-
skriftir eða annað. Frægust er altaris-
tafla hans sem var í kirkjunni á
Stóra-Klofa í Landsveit. Sú kirkja er
löngu horfin en altaristaflan lifir á
Þjóðminjasafninu. Önnur altaristafla
eftir hann var í Þingvallakirkju, sem
sýnir heilaga kvöldmáltíð og hana mál-
aði Ófeigur árið 1834, en henni var
skotið upp á loft í kirkjunni sextíu ár-
um síðar þegar ný tafla var gefin
kirkjunni. Þegar ensk hefðarfrú fékk
að gista í kirkjunni árið 1898, þá tók
hún eftir að tafla Ófeigs hékk ekki
lengur uppi og keypti hana fyrir 10
krónur. Hún fór með altaristöfluna til
Englands og gaf hana enskri kirkju til
minningar um son sinn. Þar hékk alt-
aristaflan í sjötíu ár eða þar til Magnús
Magnússon gekk í að fá hana aftur til
Íslands og frá 1974 hangir hún uppi á
sínum gamla stað í Þingvallakirkju og
við munum skoða hana í kvöld. Önnur
altaristafla eftir Ófeig fékk að dúsa
lengi uppi á kirkjulofti, en það var sú
sem hann málaði fyrir Úlfljótsvatns-
kirkju í Grafningi. Henni var kastað
upp á loft þegar tveir betri bændur í
Grafningnum héldu upp á silfurbrúð-
kaup sitt og létu af því tilefni mála nýja
altaristöflu. Sem betur fer var sú sem
Ófeigur málaði dregin aftur fram tutt-
ugu árum síðar.“
Rokkhjól var seta á kamri
Ófeigur var þekktur um allt
Suðurland fyrir handverk sitt, ekki síst
rokkana, en hann smíðaði mörg hundr-
uð slíka. „Allir hafa þeir glatast, en fyr-
ir nokkrum árum frétti Þórður í Skóg-
um af einhverju fornu hjá Skúla
Lýðssyni, bónda á Keldum á Rangár-
völlum, og fann þar í pörtum úti í mýri
hjól af rokki sem notað hafði verið sem
seta á kamri. Þetta hjól reyndist vera
frá Ófeigi, og lét Þórður setja það sam-
an úr þessum brotum.“
Ófeigur var ekki aðeins mikill
listamaður og smiður, hann var líka
vegagerðarmaður og sprengjumeist-
ari. Hann lagði vegi og stíga á Þing-
völlum og þegar allt hrundi þar í jarð-
skjálfta 1789, þá varð ómögulegt að
komast niður í gjárnar.
„Allar engjar hjá þáverandi Þing-
vallapresti fóru í kaf, svo hann varð að
heyja uppi hjá Brúsastöðum og Kára-
stöðum. Þá þurfti að henda heyinu of-
an í Almannagjá því ekki var fært nið-
ur, en þá fékk Kristján í Skógarkoti
hreppstjóri Ófeig til að flóra Stekkjar-
gjána. Hann hellulagði þennan Langa-
stíg sem liggur norðan við Öxarárfoss
og upp úr Stekkjargjánni svo þetta
varð kliffært og hægt að fara þar með
heybandslestir. Þetta eru nokkur
hundruð metrar og þurfti mann með
verkvit og listfengan eins og Ófeig í
verkið. Hann gerði líka Almannagjá
færa hestum. Þetta ætlum við að skoða
í kvöld.“
Veröldin hrundi við lát dóttur
Guðfinna segir að Ófeigur hafi
verið mikill fjölskyldumaður og við-
kvæmur í lund. „Sorgin barði oft að
dyrum hjá honum. Hann eignaðist sjö
börn, en sex þeirra lifðu og ævinlega
var mikil samheldni hjá fjölskyldunni.
Aðeins þrjú af börnum hans giftust og
ein dætra hans átti fjögur börn, en
þrjú þeirra fæddust andvana og það
fjórða lifði aðeins í þrjá daga. Guðrún
yngsta dóttur Ófeigs lést af barns-
förum 39 ára þegar hún fæddi frum-
burð sinn, son sem var fyrsta barna-
barn Ófeigs, en drengurinn lést líka í
fæðingunni. Ófeigur tók afar nærri sér
að missa uppáhaldið sitt yngstu dótt-
urina og son hennar nýfæddan. Veröld
hans hrundi og þau Þorbjörg kona
hans fluttu frá Heiðarbæ í framhald-
inu. Mæðginin Guðrún og sonur henn-
ar hvíla í Þingvallakirkjugarði. Vigfús
sonur Ófeigs dó úr holdsveiki aðeins
rúmlega fertugur, en lét eftir sig tvö
börn, sem eru einu barnabörn Ófeigs.“
Ófeigur var hagmæltur og
skrautskrifaði líka grafskriftir.
„Hann bjó síðustu sjö ár ævi sinn-
ar hjá dóttur sinni í Mosfellssveit og
var vinnandi til hinstu stundar. Þar
smíðaði hann og málaði sjálfum sér
grafskrift í bundnu máli á tréspjald,
sem nú hangir í forkirkjunni í Mos-
fellskirkju. Hann ætlaðist til að graf-
skriftin væri lögð á brjóst hans í kist-
unni en fólk gat ekki hugsað sér það,
enda einkar fögur og getur glatt augu
fólks um aldur og ævi.“
Fjölhagur og klæddist kóngabláu
Ófeigi Jónssyni var margt
til lista lagt, hann var
skreytingameistari, smið-
ur, refaskytta, sprengju-
meistari og hagyrðingur,
svo fátt eitt sé nefnt. Í
kvöld verður ganga með
leiðsögn á Þingvöllum
þar sem sagt verður frá
alþýðulistamanninum.
Augnayndi Altaristöfluumgjörð eftir Ófeig í Tungufellskirkju.
Kistill Ófeigur smíðaði og skreytti þennan handa eiginkonunni Þorbjörgu.
Guðfinna
Ragnarsdóttir
Í kvöld, fimmtudag 11. júlí, mun
Guðfinna leiða göngu um Þingvelli
og segja frá Ófeigi sem var, ásamt
Kristjáni Magnússyni hreppstjóra í
Skógarkoti, máttarstólpi í Þing-
vallasveit í byrjun nítjándu aldar.
Lagt verður af stað kl. 20 frá bíla-
stæði merktu P3 norðan við Hakið,
gengið niður í Stekkjargjá og endað
í kirkjunni þar sem altaristafla
Ófeigs og fleira verður skoðað. Allir
velkomnir og heitt á könnunni.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Brúðkaupskragar
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is