Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Bremsuviðgerðir
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reynir Árnason, framkvæmdastjóri
Póstmarkaðarins, segir Ríkis-
endurskoðun komast að rangri niður-
stöðu varðandi tap Íslandspósts.
Nánar tiltekið að Íslandspóstur hafi
ekki fengið sam-
drátt í bréfasend-
ingum að fullu
bættan með
hækkun á gjald-
skrá. Það sé rangt
og því geti sú
starfsemi ekki
skýrt fjárhags-
vanda fyrir-
tækisins.
Ríkisendur-
skoðun birti í lok
júní úttekt á Íslandspósti (ÍSP) að
beiðni fjárlaganefndar Alþingis. Til-
efnið var uppsafnað tap 2013-18, alls
246 milljónir, og 500 milljóna lán frá
ríkinu til að halda rekstrinum gang-
andi. Við gerð fjárlaga 2019 var
ákveðið að veita ÍSP lán eða hluta-
fjáraukningu, allt að 1,5 milljörðum.
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
hefur lögbundið eftirlit með starfsemi
ÍSP. Stofnunin greinir afkomu fé-
lagsins innan einkaréttar, samkeppni
innan alþjónustu og samkeppni utan
alþjónustu og hefur frá árinu 2013
birt úttekt á bókhaldslegum aðskiln-
aði og kostnaðarbókhaldi þess.
Tölur úr þeim úttektum eru endur-
birtar í grafinu hér fyrir ofan. Má
m.a. lesa úr þeim að afkoma ÍSP af
einkarétti hefur verið jákvæð um
samtals 984 milljónir frá árinu 2014,
eða að meðaltali um 197 milljónir á
ári. Vega þar þyngst árin 2016 og
2017, en þá var afkoman jákvæð um
497 og 414 milljónir.
Einkarétturinn nær til bréfa sem
eru undir 50 grömm. Reynir telur
þessa afkomu sýna að þvert á niður-
stöðu Ríkisendurskoðunar hafi ÍSP
fengið bættan samdrátt í bréfasend-
ingum á tímabilinu. Máli sínu til
stuðnings bendir Reynir á ákvörðun
PFS (21/2018) þar sem PFS hafnar
beiðni ÍSP um 8% hækkun gjald-
skrár. Þá bendi yfirlit PFS til viðvar-
andi hagnaðar af bréfapósti.
Hefði skert þjónustuna
Fjallað var um skylda ákvörðun
PFS (13/2009) í Morgunblaðinu sl.
laugardag, en í henni féllst PFS ekki
á frekari hækkun gjaldskrár ÍSP í
einkarétti. Byrði ÍSP af alþjónustu
hefði verið innifalinn í gjaldskrá fé-
lagsins innan einkaréttar. „Ef ekki
hefði komið til að tekið væri mið af
þessum kostnaði vegna alþjónustu …
hefði gjaldskrá félagsins innan einka-
réttar verið lægri í dag, en hún er
með því hæsta sem gerist innan
Evrópu“. Þá benti PFS á að ÍSP hefði
skert þjónustuna og með því dregið
úr kostnaði af útburði bréfa.
Meðal annars var vísað til þess að
útburðardögum í dreifbýli hefði
fækkað en með því „lækkaði alþjón-
ustukostnaður vegna landpósta um
200 millj. kr. á ári og kom sú kostn-
aðarlækkun fyrst og fremst fram í
kostnaði innan einkaréttar.
Árið 2018 var afkoma Íslandspósts
af einkarétti jákvæð um 53 milljónir
króna samkvæmt ársskýrslu Íslands-
pósts. Samkvæmt 16. grein póstlaga
skal gjaldskrá ÍSP fyrir alþjónustu
„taka mið af raunkostnaði við að veita
þjónustuna að viðbættum hæfilegum
hagnaði“. Reynir segir ríflega 900
milljóna frávik í hagnaði af einkarétti
2016 og 17 langt umfram lagaheimild.
Tvær meginskýringar
Fulltrúar Ríkisendurskoðunar
gerðu grein fyrir fjárhagsvanda ÍSP
á fundi með fjárlaganefnd Alþingis:
„Að mati Íslandspósts eru tvær
meginskýringar á rekstrarvanda fé-
lagsins. Annars vegar mikill sam-
dráttur í bréfasendingum sem ekki
hefur fengist að fullu bættur með
hækkun á gjaldskrá. Félagið fann
sérstaklega fyrir þessu á árinu 2018
þegar bréfum fækkaði mun meira en
áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir.
Hins vegar hefur félagið lagt í aukinn
kostnað við dreifingu pakkasendinga
erlendis frá, s.s. með fjölgun starfs-
manna í póstmiðstöð og á pósthúsum,
sem tekjur vegna slíkra sendinga
(endastöðvagjöld) ná ekki [að] standa
undir nema að hluta til. Með nýlegri
lagabreytingu hefur félagið nú fengið
heimild til að leggja viðbótargjald á
móttakendur slíkra sendinga,“ sagði
Ríkisendurskoðun um vanda Íslands-
pósts. Með vísan til þess sem að fram-
an greinir telur Reynir að fyrri hluti
þessarar málsgreinar sé rangur.
Tók til greina 1,5 milljarða
Hvað varðar síðari hlutann hefur
PFS tekið til greina kröfu ÍSP um
bætur vegna taps af erlendum send-
ingum. Samkvæmt ákvörðun PFS
mun ÍSP fá 1.463 milljónir bættar
vegna þessa árin 2014-18.
Sendingarnar teljast alþjónusta
innan samkeppni. Þetta óhagræði
ÍSP af erlendum sendingum birtist í
áðurnefndum úttektum PFS á af-
komu félagsins. Eins og sjá má á
grafinu hefur verið samfellt tap af al-
þjónustu ÍSP innan samkeppni frá
árinu 2011. Tapið var 791 milljón árið
2016 og bendir úttekt PFS til að 649
milljónir af þeirri upphæð skýrist af
tapi af erlendum pósti.
Þriðji þátturinn í rekstri ÍSP sem
yfirlit PFS ná til varðar samkeppnis-
rekstur. Samkvæmt yfirlitum PFS
hefur verið samfelldur hagnaður af
þessum rekstri frá 2013. Það ár var
innleitt nýtt kostnaðarlíkan hjá ÍSP.
Reynir bendir á að samkvæmt yfir-
litum PFS hafi gjöld ÍSP af alþjón-
ustu innan samkeppni aukist úr 2.586
milljónum 2012 í 3.295 milljónir árið
2013. Samtímis hafi gjöld innan sam-
keppnisrekstrar dregist saman úr
1.282 milljónum í 908 milljónir, eða
um tæpar 400 milljónir, milli þessara
ára. Af þessu dregur Reynir þá álykt-
un að ÍSP hafi fært kostnað vegna
sóknar á samkeppnismarkaði undir
alþjónustuna.
„Ef rétt er að samkeppnisrekstur-
inn beri ekki hlutdeild í föstum kostn-
aði, líkt og kemur fram í skýrslu Rík-
isendurskoðunar, skekkir það ekki
aðeins samkeppni heldur skýrir einn-
ig það mikla tap sem er af alþjónust-
unni eftir árið 2013. Það er því mjög
hæpið að tap ÍSP af alþjónustu innan
samkeppni sé vegna sprengingar í er-
lendum sendingum frá 2013, heldur
er það fyrst og fremst tilkomið vegna
breytinga á útdeilingu kostnaðar.“
Skýringin sé óráðsía
Sem áður segir hefur PFS tekið til
greina bótakröfu ÍSP varðandi er-
lendar sendingar, alls að fjárhæð
1.463 milljónir. Þær heyra undir
alþjónustu innan samkeppni.
Reynir telur bótakröfuna ólög-
mæta og hefur fyrirtæki hans, Póst-
markaðurinn, kært ákvörðunina til
úrskurðarnefndar fjarskipta- og
póstmála. Reynir vísar jafnframt til
viðtals Morgunblaðsins við Birgi
Jónsson, nýjan forstjóra ÍSP, 3. júlí
sl. Þar hafi Birgir sagt að hagræða
mætti um hundruð milljóna í rekstri
ÍSP. Út frá því ályktar Reynir að tap
ÍSP skýrist fremur af óráðsíðu í
rekstri en raunkostnaði af þjónustu.
Reynir segir Ríkisendurskoðun
hljóta að þurfa að gera betur grein
fyrir niðurstöðu sinni; hún sé í full-
kominni andstöðu við þær upplýs-
ingar sem koma fram í ársskýrslum
ÍSP og yfirlitum PFS. „Niðurstaða
skýrslu Ríkisendurskoðunar er í raun
sú að Póst- og fjarskiptastofnun beri
að stórum hluta ábyrgð á fjárhags-
vanda Íslandspósts með því að hafa
ekki veitt fyrirtækinu lögbundnar
hækkanir á gjaldskrá bréfapósts,“
segir Reynir, sem kveðst hafa komið
á framfæri ábendingum um þessi at-
riði á fundi með fulltrúum Ríkis-
endurskoðunar, áður en skýrslan
kom út, og fylgt því eftir með tölvu-
pósti en engin viðbrögð fengið.
Röng greining á tapi Íslandspósts
Framkvæmdastjóri Póstmarkaðarins telur Ríkisendurskoðun komast að rangri niðurstöðu
Úttektir Póst- og fjarskiptastofnunar sýni mikinn hagnað Íslandspósts af einkarétti á síðustu árum
Afkoma einkaréttar-, alþjónustu- og samkeppnisþátta Íslandspósts
Milljónir kr. Til og með 2012: ABC-kostnaðarlíkan Frá 2013: LRAIC-kostnaðarlíkan Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun: Yfi rlit bókhaldslegs aðskilnaðar
600
400
200
0
-200
-400
-600
-800
-1.000
-1.200
Einkaréttur 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Tekjur 2.660 2.505 2.578 2.768 2.598 2.747 2.875 3.191 3.320 2.789
Gjöld 2.672 2.624 2.652 2.648 2.616 2.739 2.862 2.694 2.905 2.736
-13 -119 -74 120 -18 7 13 497 414 53
Alþjónusta 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Tekjur 2.286 2.517 2.473 2.559 2.677 2.939 2.990 3.345 3.709 3.886
Gjöld 2.221 2.493 2.576 2.586 3.295 3.446 3.556 4.136 4.446 5.050
65 23 -103 -27 -619 -508 -566 -791 -737 -1.164
Samkeppni 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Tekjur 1.020 1.158 1.222 1.179 1.179 1.124 1.150 1.268 1.307 1.111
Gjöld 989 1.148 1.316 1.282 908 900 1.039 1.092 1.104 918
31 10 -95 -103 271 225 111 176 203 193
Eignarekstur 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Tekjur 45 216 108 77 280 306 298 269 398 553
Einkaréttur
Alþjónusta
Samkeppni
Morgunblaðið/Rósa Braga
Byrði Stjórnendur ÍSP segja félagið hafa tapað miklu fé á erlendum send-
ingum. Fyrir rúmum mánuði var samþykkt aukagjald á sendingarnar.
Reynir
Árnason
Ríkisendurskoðun hefur endur-
skoðað ársreikninga Íslands-
pósts. Forstjóri og endurskoð-
andi stofnunarinnar taka þó
fram að ábyrgðin sé félagsins.
„Stjórn og forstjóri eru ábyrg
fyrir gerð og framsetningu sam-
stæðureikningsins í samræmi
við alþjóðlega reiknings-
skilastaðla eins og þeir hafa
verið samþykktir af Evrópusam-
bandinu … Við gerð samstæðu-
reikningsins eru stjórn og for-
stjóri ábyrg fyrir því að meta
rekstrarhæfi Íslandspósts ohf.“
Póst- og fjarskiptastofnun
hefur svo lögboðið eftirlits-
hlutverk gagnvart Íslandspósti
sem birtist m.a. í úttektum.
Endurskoðar
reikninga ÍSP
RÍKISENDURSKOÐUN