Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 19

Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 glerþakið. Hann hljóp til móts við okkur, kastaði sér á grúfu og setti hendurnar yfir höfuðið eins og í bíó- mynd. Við stóðum bara eins og hálf- vitar og horfðum á vélina og áttuðum okkur ekkert á sprengihættunni.“ Lóa húsfreyja stóð við glugga heima á bæ og sá slysið. Hún sagði Bjarna að litlu hefði munað að eitt spaða- brotið hefði sneitt hann í tvennt þar sem hann stóð næst slysstaðnum. Sjálfur tók hann ekkert eftir þessu því þetta gerðist svo hratt. Fastur í þyrlunni Mikil hljóð heyrðust innan úr þyrlunni og fóru þeir og opnuðu farmrýmið. Sá sem þar var hafði fengið kassana á sig og var mjög mikið slasaður. Hann lést fljótlega. „Hinn flugmaðurinn var fastur og hljóðaði mikið. Einar Sveinbjarnar- son, bóndi á Ysta-Skála, glímukóng- ur og kappi, kom þarna að. Við tók- um beislið, nokkuð langan stálbita, aftan af traktorunum. Einar réðist á vélina eins og berserkur með beislið að vopni, braut allar rúður og lá við að hann mölvaði póstana. Þá var flugmaðurinn við það að gefa upp öndina, virtist vera að kyrkjast í ör- yggisbeltinu. Við náðum að skera beltið af honum og koma honum út. Hann var skaddaður á hrygg og höfuðkúpubrotinn en lifði þetta af og var tiltölulega fljótur að jafna sig.“ Bjarni var sendur heim til að sækja eitthvað til að breiða yfir hinn látna. Lóa húsfreyja kom með sæng- ina hans Bjarna og var hún breidd yfir líkið. Fólk hópaðist þarna að og læknir kom á staðinn. Hercules-flutningavél kom frá Keflavíkurflugvelli og áttu sjúkra- flutningamenn að stökka út í fall- hlífum. Rafmagnið var tekið af sveit- inni svo að raflínurnar sköpuðu ekki hættu fyrir þá. Skyndilega sneri flugvélin frá vegna bilunar og engir sjúkraflutningamenn komu. Önnur þyrla kom og sótti þann slasaða og lík þess sem fórst. Flug- maðurinn sem slapp ómeiddur kom heim að Hvammi og naut þar góð- gerða enda var mikil gestrisni á bænum. Fékk slæma martröð Dagur leið að kvöldi og Bjarni lagðist til svefns, með sængina sem breidd hafði verið yfir látna her- manninn. „Ég hef aldrei á ævinni upplifað aðra eins martröð og þessa nótt og næstu nætur. Það var ólýsanlegt. Þá var ekkert til sem nú heitir áfallahjálp, ekki búið að finna upp það orð,“ sagði Bjarni. Tveimur dögum seinna kom flutn- ingabíll að sækja flakið af þyrlunni. Þegar búið var að hífa það upp á bíl- inn skaut slökkviliðsmaður frá Varnarliðinu blysi á túnið þar sem þyrlan hafði legið. Um leið gaus upp mikið bál og því var ljóst að mikill eldsmatur var í jarðveginum. „Það er mikil mildi að ekki skuli hafa kviknað í vélinni því þarna stóðu menn reykjandi allt í kring eins og ekkert væri,“ sagði Bjarni. Heiðraðir fyrir björgunina Áður en sumri lauk kom flug- maðurinn sem slapp ómeiddur við annan mann í Hvamm til að þakka fyrir sig. Þeir komu með stórar vatnsmelónur og hafði enginn í sveitinni séð neitt þessu líkt áður. Komumönnum var boðið upp á soðna ýsu, kartöflur og smjör og passað vel að þeir fengju nægju sína og vel það. Magnús bóndi talaði ekki ensku en Logi Már kunni svolítið og gat túlkað fyrir þá. Bjarni sagði að síðar hefði hann áttað sig á því að þegar þyrlan tók hringina yfir höfði þeirra hallaði henni öfugt, eða út úr hringnum í stað þess að hallast inn í hringinn. Líklega hefði einhver jafnvægisbún- aður bilað í henni. Guðlaugur, sonur Einars á Ysta- Skála, sagði að foreldrum sínum og hjónunum í Hvammi hefði síðar ver- ið boðið á Keflavíkurflugvöll. Þau voru sótt í drossíu og haldin veisla fyrir þau í yfirmannaklúbbi. Þar voru Einari og Magnúsi afhentir viðurkenningarskildir fyrir björg- unarafrekið sem þeir unnu. Hjónin sneru svo aftur heim klyfjuð alls konar ávöxtum og öðru góðgæti sem ekki hafði áður sést þar um slóðir. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Liðsmenn brúarvinnuflokks Vega- gerðarinnar á Hvammstanga vinna um þessar mundir að endurbótum á brúnni yfir Blöndu í Blönduósbæ. Brúargólf, gangbraut og útkantur neðan straums á brúnni, það er norðanmegin, eru brotin upp og verður steypt að nýju. Jafnframt stendur til að setja upp nýtt vegrið sem aðgreinir gang- og akbraut, í því skyni að auka öryggi gangandi vegfarenda. Áætlað er að fram- kvæmdum þessum ljúki 20. október. „Okkur miðar vel í þessu verkefni. Mesta vinnan felst í því að brjóta upp steypuna, en til þess notum við afar öfluga háþrýstidælu. Með henni hreinlega spænum við steypuna upp,“ segir Sigurður Hallur Sigurðs- son, verkstjóri vinnuflokksins. Sá hópur endurnýjaði gólfið í akbraut brúarinnar fyrir þremur árum, en kominn var tími á viðgerðir á brúnni, sem var byggð 1962. Meðan á framkvæmdum stendur er aðeins önnur af tveimur akreinum á Blöndubrúnni opin og er umferð- inni stýrt með ljósum. Sá búnaður les umferðarþunga og tekur opn- unartími til hvorrar áttar mið af því. Getur hann verið allt að tvær mín- útur í senn og má þar nefna að sl. sunnudag var mikil umferð til suð- urs, það er eftir fjölsótt knatt- spyrnumót á Akureyri. Gátu þá allt að 40 bílar komist yfir brúna í hverju rennsli. Á móti kom að svigrúm sem bílstjórar á norðurleið fengu var að- eins 15 sekúndur í hvert sinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmdir Umferð yfir Blöndubrú er nú öll á syðri akreininni sem er of- an straums en á þeirri nyrðri brjóta menn og steypa og lagfæra mannvirkið. Viðgerð á Blöndubrú NÝTT ÍSEYSKYR VIÐBÆTTS SYKURS OG SÆTUEFNA! Ísey skyr kynnir til leiks tvær nýjar bragðtegundir án viðbætts sykurs og sætuefna. Hvort sem þú kýst suðræna ávexti eða perur og banana er alltaf rétta augnablikið fyrir Ísey skyr. Laktósalaust BLÁTT LOK BLÁR BOTN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.