Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 sögn Páls barst svar frá sýslumanni fyrr í þessari viku og þar segir að þar sem ekki hafi verið skipaður bú- stjóri yfir dánarbúinu sé lítið hægt að gera í málinu, hendur sýslumanns séu bundnar þar til það hafi verið gert. „Sýslumaður bað okkur um frest til að reyna að leysa þetta á farsælan hátt. En okkur finnst liggja á að þetta verið hreinsað,“ segir Páll. Hann segir að málið myndi horfa öðruvísi við ef húsin væru ekki á opnu svæði svo nálægt byggð. „En þetta er ekki afgirt, þetta er opið svæði nánast inni í byggð, það er fokhætta af ýmsu sem þarna er og að auki slysahætta fyrir dýr og börn sem okkur skilst að hafi verið að sækja í þessi hús.“ Steingrímur Hauksson, sviðs- stjóri umhverfissviðs Kópavogs- bæjar, segir málið hafa verið á borði sviðsins í nokkur ár. Bærinn hafi margoft boðið eiganda landsins að hreinsa svæðið, en því boði hafi ekki verið tekið. „Landeigandinn á flest- öll húsin, hann leysti nánast öll til sín. Við höfum ekki getað fengið leyfi til að fara inn á svæðið og hreinsa þetta. Enginn nema eigandi getur veitt leyfi til hreinsunar og við megum ekki ryðjast inn á eigur ann- arra, hversu mikla þörf við teljum vera á því,“ segir Steingrímur. „Við höfum lengi haft áhyggjur af þessu og erum satt best að segja orðin frekar þreytt á þessu ástandi. En á meðan leyfið fæst ekki þá getum við ekkert gert, því miður.“ Einu sinni var Vafalaust voru mörg húsanna eitt sinn falleg og hlýleg. Brunninn bíll Gömul smárúta, sem stendur við eitt húsanna, fékk ekki að vera í friði fremur en annað. Haugur Sannkallaður ruslahaugur er á gólfi eins húsanna; verkfæri, matarumbúðir og spýtnabrak. Rúm í glugga „Okkur finnst liggja á að þetta verði hreinsað,“ segir Páll Stefánsson hjá heilbrigðiseftirlitinu. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. Áratug a reynsla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.