Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sir Kim Darroch hefur sagt af sér
embætti sendiherra Bretlands í
Bandaríkjunum, eftir að tölvupóst-
ur lak þar sem hann fór gagn-
rýnum orðum um Donald Trump
Bandaríkjaforseta.
Í uppsagnarbréfi til utanríkis-
ráðuneytisins sagði Darroch að
lekinn hefði gert það að verkum að
honum væri „ómögulegt“ að sinna
störfum sínum áfram með hags-
muni Bretlands að leiðarljósi, af
því er fréttastofa AFP greinir frá.
Í bréfi Darroch segir ennfremur:
„Síðan leki varð á opinberum
gögnum þessa sendiráðs hefur
mikil íhugun átt sér stað á veru
minni í embættinu og hversu lengi
hún kemur til með að vera. Ég vil
binda enda á þá íhugun. Í ljósi að-
stæðna tel ég að skynsamlegast sé
að skipa nýjan sendiherra í minn
stað,“ stóð í uppsagnarbréfi Darr-
och.
„Ósanngjörn gagnrýni“
Í kjölfar lekans höfðu bresk
stjórnvöld ítrekað fullan stuðning
við Darroch. Trump hefur lýst því
yfir að Bandaríkin gætu ekki leng-
ur átt í samskiptum við Darroch
undir sinni stjórn.
Rétt eftir að fréttir af uppsögn
Darroch barst tók fráfarandi for-
sætisráðherra Bretlands, Theresa
May, til máls á breska þinginu.
Hún sagði að gagnrýni sem Darr-
och hefði þurft að þola vegna lek-
ans hefði verið ósanngjörn í það
minnsta og á röngum forsendum.
„Hann hefur sinnt starfi sínu
heiðarlega og vel. Að mínu mati
stöndum við í þakkarskuld við
hann,“ sagði hún en í kjölfar lek-
ans lýsti hún yfir stuðningi við
Darroch.
Leyniskjölin sem birtust í slúð-
urblaðinu Mail on Sunday inni-
héldu tölvupósta þar sem Darroch
lýsti þeirri skoðun sinni að Trump
væri vanhæfur og að óreiða ríkti í
Hvíta húsinu með Trump við
stjórnvölinn.
Trump kallaði Darroch „mjög
heimskan mann“ í kjölfar lekans
og gagnrýndi einnig Theresu May
fyrir stefnu hennar varðandi út-
göngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu.
Tekinn af gestalistum
Vegna lekans var Darroch tek-
inn af gestalista fyrir kvöldverð
sem Trump var einnig boðinn í sl.
mánudag. Þá fær hann ekki að
koma á ráðstefnu viðskiptaráð-
herra Bretlands, Liam Fox, í
Washington nk. þriðjudag, en þar
verður ráðgjafi Trumps og dóttir
hans, Ivanka Trump.
Samkvæmt fréttastofu BBC
telja talsmenn utanríkisráðuneytis
Bretlands að um leka sé að ræða
frekar en netárás, en formleg
rannsókn á lekanum hófst á
sunnudag. Utanríkisráðherra
Bretlands, Sir Alan Duncan hefur
sagt að talið sé að um leka innan
breska stjórnkerfisins sé að ræða.
Spurður hvort ráðherrar og aðr-
ir embættismenn yrðu yfirheyrðir
vegna lekans, sögðu talsmenn ut-
anríkisráðuneytisins að það lægi
ekki enn fyrir. Þó sagði Sir Alan
að venjulegt væri að um 100
starfsmenn hefðu aðgang að skjöl-
um frá sendiherra.
Afsögn í kjölfar gagnaleka
Sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, Sir Kim Darroch, hefur sagt embættinu
lausu May þakkar Darroch fyrir vel unnin störf Gagnrýndi Trump harðlega
AFP
Afsögn Sir Kim Darroch sagði af sér í kjölfar gagnaleka. Theresa May
þakkaði Darroch fyrir vel unnin störf á þinginu í gær.
Fjórða nautahlaupið af sex á
nautahátíðinni frægu í Pamplona
fór fram í gær og þurftu þátttak-
endur að hafa sig alla við til þess
að lenda ekki undir bola eða fá
horn í síðuna.
Á hverjum degi hátíðarinnar er
tólf nautum sleppt stundvíslega
klukkan átta að morgni að stað-
artíma og látin hlaupa um 850
metra langa leið í gegnum stræti
gamla miðbæjar Pamplona að
nautaatshring bæjarins.
Hátíðin á rætur að rekja til mið-
alda, og mega allir sem náð hafa
18 ára aldri taka þátt. Hlaupið
þykir mjög hættulegt en 16 manns
hafa beðið bana í því frá árinu
1911, en þá hófst skrásetning þess.
Síðasta dauðsfallið átti sér stað ár-
ið 2009. Þá hefur hátíðin verið
gagnrýnd á síðustu árum fyrir að
þar sé sýnd óþarfa grimmd gegn
dýrum.
Hlaupið
undan
hornunum
AFP
Að minnsta kosti 24 voru drepnir,
þar á meðal tvær barnshafandi
konur, í átökum á milli ættflokka í
fjalllendi Papúa Nýju-Gíneu í gær,
að því er AFP greinir frá.
Átökin eru þjóðinni mikið áfall
og sagði forsætisráðherra lands-
ins, James Marape, að gærdag-
urinn hefði verið sá sorglegasti í
lífi hans.
Lögregluyfirvöld í landinu segja
fólkið hafa fallið í Hela-héraði í
vesturhluta landsins í þriggja sól-
arhringa átökum milli ættbálka.
Ættbálkar til fjalla í Papúa
Nýju Gíneu eiga sér aldalanga
sögu átaka en tilkoma sjálfvirkra
vopna hefur gert átakahrinurnar
mannskæðari nú en áður.
Talsmenn lögregluyfirvalda í
landinu segja að 24 dauðsföll séu
staðfest en óttast að tala látinna
muni hækka. Bæði konur og börn
hafa verið myrt með höggvopnum
og þau skotin til bana. Þá hafa yf-
irvöld átt í vanda með að bera
kennsl á nokkur lík vegna þess
hve illa þau eru leikin. Aðdrag-
andi átakanna er enn ókunnur.
PAPÚA NÝJA-GÍNEA
Fjöldi látinn í
átökum ættflokka
AFP
Mannfall James Marape er forsætisráð-
herra Papúa Nýju-Gíneu.
Angela Merkel
Þýskalands-
kanslari sagði í
gær að hún væri
við hestaheilsu,
þrátt fyrir að
hún hefði fengið
þriðja skjálfta-
kastið á innan við
mánuði.
„Það er engin
ástæða til að
hafa áhyggjur,“ sagði Merkel við
fjölmiðla, en hún byrjaði að titra og
skjálfa að þessu sinni á meðan verið
var að spila þjóðsöngva Þýskalands
og Finnlands, en Antti Rinne, for-
sætisráðherra Finnlands, er í opin-
berri heimsókn í Berlín.
Fyrsta skjálftakastið var sagt
hafa orsakast af ofþornun, en heim-
ildarmenn AFP-fréttastofunnar
sögðu að talið væri að orsakir
seinni kastanna væru sálrænar, þar
sem minningin um fyrsta kastið
leitaði á Merkel. „Eins og þetta kom
skyndilega mun þetta hætta einn
daginn,“ sagði Merkel.
ÞÝSKALAND
Angela
Merkel
Merkel sögð við
góða heilsu