Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 38
Manstu hvað dansarar fortíðar
voru alltaf töff til fara, í þröngum
dansbolum og upphitunarbuxum yfir?
Nú er þetta útlit að koma sterkt inn í
hausttískunni. Í nýjustu línu Alexand-
erwang.t má finna þennan fantaflotta
dansbol sem er ansi heillandi. Hann er ekki
bara fallegur við víðar buxur því hann get-
ur í raun gengið við allar gerðir neðri
parta. Það væri hægt að nota hann við grá-
ar gallabuxur sem væru háar í mittið eða
jafnvel Levi’s 501. Það fer eftir stemningu
hverju sinni – eða
hvert ferðinni er
heitið. Mögulega
gætu einhverjar
litið á það sem
galla að bolurinn
felur ekkert auka-
hold.
Þið þurfið þó
ekki að hafa
áhyggjur því
hausttískan er svo
frjálsleg að það
mega bara allir
vera eins og þeir
eru. Bara svo fram-
arlega sem þeir
eru ekki að skaða
annað fólk með
hegðun eða orðum.
Bolurinn
sem felur
ekkert!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Marta María
mm@mbl.is
„Þetta er bara framtíðin, við þurfum að hugsa um jörðina
og þetta er bara næsta skref. Þegar Smáralindin sagðist
hafa áhuga á að gera þetta með okkur vissum við að þetta
væri skref í rétta átt,“ segir Brynja í samtali við Smart-
land.
– Hefur þú mikinn áhuga á svona mörkuðum?
„Já ég elska að fara í „vintage“ og „second hand“ versl-
anir erlendis, það er alltaf eitthvert gull sem leynist þar,“
segir Brynja.
– Finnst þér hugmyndir fólks um innkaup og neyslu
vera að breytast?
„Já, við erum klárlega orðin mun meðvitaðri um neysl-
una okkar. Flest ef ekki öll heimili flokka í dag og allir eru
farnir að hugsa meira um hvað þeir geta lagt af mörkum
fyrir jörðina okkar.“
Þegar Extraloppan var opnuð á dögunum myndaðist
röð fyrir utan. Þegar Brynja er spurð hvað hafi selst best
segir hún að það hafi bara allt selst.
„Bara allt milli himins og jarðar! Ekkert fór frekar en
annað, hægindastólar, fatnaður, skór, húsbúnaður og bara
allt. Þetta er bara fjársjóður þarna.“
– Hvers vegna finnst þér skipta máli að geta komið
gömlum fötum í verð?
„Það er í fyrsta lagi gott fyrir jörðina okkar, og það er
bara komið að þeim tímapunkti að maður verður að fara
að hugsa betur um hverju maður eyðir í. Fólk kaupa sér
þá frekar kannski vandaðri flíkur og endingarbetri og
leyfir þeim svo að öðlast nýtt líf þegar það ert hætt að
nota þær. En svo er bara einhver góð tilfinning að losa sig
við dót sem maður notar ekki. Það er líka andleg hreinsun
í leiðinni en maður vill ekki henda og líður svo vel með að
einhver annar geti notað hlutina.“
– Hefur þú verið dugleg að selja gömul föt af þér í
gegnum tíðina?
„Já, ég hef alveg verið það og í raun bara allt milli him-
ins og jarðar.“
Hér leynast
gullmolar
Brynja Dan Gunnarsdóttir er einn af
eigendum Extraloppunnar sem var opn-
uð í Smáralind á dögunum. Extraloppan
snýst um að gefa gömlum fötum og
dóti nýtt líf með því að endurselja það.
Endurnýting Brynja Dan Gunn-
arsdóttir segir að fólk vilji fara
betur með peningana sína og jörðina.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili