Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 þeirra, barnabörnum og systk- inunum frá Vatnsleysu innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Karlakórsins Fóstbræðra. Arinbjörn Vilhjálmsson formaður. Einar Geir sá ég fyrst á júbíl- antamóti á Laugarvatni, þá nýút- skrifaður stúdent. Í hópi þeirra „gömlu“ 30 ára stúdenta var Einar Geir, áberandi teinréttur, myndarlegur maður sem geislaði af í sínum hópi. Okkur nýliðun- um fannst þetta fólk vera háaldr- að en um leið spennandi að kynn- ast og tala við. Ég vissi þá að hann væri frá Vatnsleysu, af því öfluga fólki sem þar hefur búið og ættað er frá. Næst lágu leiðir okkar saman einmitt á Vatnsleysu eða í Tungnaréttum á þeim fagra stað við fossinn Faxa. Þar stjórnaði Einar Geir hinum rómaða radd- aða söng um árabil. Söng sem dregur að alla helstu söngmenn Íslands. Eftir réttirnar hélt svo gleðin áfram heima á Vatnsleysu hjá Braga bróður hans og Höllu og einnig á hinum Vatnsleysu- bæjunum. Þar var nú ekki sung- in vitleysan. Ógleymanlegar stundir og minningar sem gaman og gott er að ylja sér við. Seinna meir hafa leiðir okkar legið saman á vettvangi Fram- sóknarflokksins. Traustari mað- ur er vandfundinn. Einar Geir hefur alla tíð verið einn okkar allra besti maður í starfinu í Garðabæ og kjördæminu. Við leiðarlok vil ég fyrir hönd Fram- sóknar þakka honum farsælt starf og samvinnu alla tíð. Við Elsa sendum Ingveldi Björgu, Stefáni, Þorsteini, Guðna Geir, Áslaugu og fjöl- skyldum þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi góð- ur guð styrkja ykkur í sorginni. Minningin um góðan mann lifir um allan aldur. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsókn- arflokksins. Leiðir okkar Einars Geirs lágu fyrst saman snemma á sjö- unda áratug síðustu aldar er við byggðum okkur hús í Garða- hreppi, ég á Hagaflöt, hann nokkru síðar á Móaflöt. Garða- bær var þá hreppur í örum vexti er orðið hefur á tiltölulega skömmum tíma að þeim stórbæ sem hann nú er. Þá var í hreppnum líflegt póli- tískt félagslíf. Við Einar vorum sveitastrákar, hvor af sínu lands- horninu, fundum þó að við vorum undir svipuðum áhrifum og lífs- sýn og Framsóknarflokkurinn boðaði og var í samræmi við ald- ur okkar, uppeldi og tíðaranda. Einar skipaði sér fljótt í for- ystusveit okkar framsóknar- manna, var lengi formaður fé- lagsins, sat í bæjarstjórn um hríð og var vinsæll og réttsýnn sveitarstjórnarmaður. Á fé- lagsfundum fylgdi Einari jafnan glaðværð og léttur hlátur hans var smitandi, en í málflutningn- um mátti ætíð kenna streng festu og ábyrgðar. Hin síðari ár töluðumst við Einar nokkuð reglulega við í síma, rætt var um lífið og til- veruna, slegið á létta strengi og mikið hlegið. Þess mun ég nú sakna. Störfum er lokið, höndin lögð til hlið- ar. Hjartað er brostið, gengin sól til viðar. Gátan er ráðin, glíma lífsins búin. Guðsnáðar-trú í hreina vissu snúin. (KJJ) Og nú ert þú horfinn á braut og hefur fengið svar við gátunni miklu. Ég sit eftir, um stund, en vera má ef von mín rætist að við eigum eftir að taka tal saman að nýju. Farðu vel vinur. Við hjónin vottum aðstand- endum hins látna okkar dýpstu samúð. Gunnsteinn Karlsson. ✝ Kristín Önund-ardóttir fædd- ist í Neskaupstað 27. apríl 1925. Hún lést 27. júní 2019 á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Foreldrar henn- ar voru Önundur Steindórsson, f. 21. nóvember 1896 í Hrunamanna- hreppi, Árnessýslu, d. 31. maí 1979, og Guðrún Kristjana Sigurðardóttir, f. 19. október 1897 í Eyjum í Breið- dal, S-Múlasýslu, d. 24. sept- ember 1964. Kristín á fimm systkini, Erling látinn, Steindór látinn, Sigurð látinn, Þóreyju og Stefaníu. Kristín giftist 28. maí 1950 10.3. 1964, maki Kolbrún Jóns- dóttir, eiga þau eina dóttur og tvö barnabörn. 5) Kristjana Una Gunnarsdóttir, f. 19.11. 1966, maki Kristján Hjálmar Ragnarsson. Fyrir á Kristjana Una þrjú börn og eitt barna- barn og Kristján Hjálmar tvö börn og eitt barnabarn. Kristín var uppalin í Nes- kaupstað en flutti suður í stríðslok 1945, 19 ára gömul. Hún vann ýmis þjónustustörf eins og á elliheimilinu Grund og fór í húsmæðraskólann á Ísafirði. Kristín og Gunnar bjuggu lengi í Hafnarfirði þar sem þau gerðu út, ásamt öðr- um, aflaskipið Eldborgu GK 13. Ásamt því sinnti hún hús- móðurstörfum. Árið 1967 fluttu þau í Garðabæ og Krist- ín síðan í Kópavog eftir að Gunnar lést. Síðustu árin dvaldi hún á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Útför Kristínar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 11. júlí 2019, klukkan 13. Gunnari Haraldi Hermannssyni skipstjóra, f. 2. desember 1922, d. 8. júní 1977. Börn Kristínar og Gunn- ars eru: 1) Bjarni Gunnarsson, f. 8.9. 1950, maki Helga Gerður Gunnars- dóttir, eiga þau þrjár dætur og níu barnabörn. 2) Sal- óme Rannveig Gunnarsdóttir, f. 26.11. 1952, maki Þorkell Guð- mundsson, eiga þau eina dótt- ur, fyrir átti Salóme son sem er látinn. 3) Kristján Gunnars- son, f. 6.2. 1955, maki Hrafn- hildur H. Rafnsdóttir, eiga þau tvö börn og fjögur barnabörn. 4) Haraldur Gunnarsson, f. Mamma er dáin 94 ára gömul. Það verður seint sagt að lífshlaup hennar hafi verið einfalt og átaka- lítið. Hún nær háum aldri þrátt fyrir að hafa meirihluta ævi sinn- ar þurft að glíma við banvænan geðsjúkdóm sem leggst yfirleitt á fólk á besta aldri. Því miður er það svo að for- dómar gagnvart geðsjúkdómum hafa í gegnum tíðina verið miklir og þeir sem veiktust þurftu oftast að burðast með sjúkdóminn í fel- um fyrir samfélaginu og skömm aðstandenda var mikil. Sem betur fer hefur þetta smátt og smátt verið að breytast en það eru þó enn ákveðnir for- dómar gagnvart geðsjúkdómum í gangi og langt í land með að að- staða til að takast á við jafn lífs- ógnandi sjúkdóma verði ásættan- leg hér á landi. En það var ekki vont að alast upp hjá mömmu þrátt fyrir það. Hún elskaði alla afkomendur sína þó að sjúkdómur hennar hafi oft hamlað því að hún gæti látið það í ljós með eðlilegum hætti. Vissulega komu tímabil þegar sjúkdómurinn tók yfir og sú mamma sem ég þekkti hvarf sjón- um en það var alltaf tímabundið og alltaf tókst henni að koma til baka og ná aftur yfirhöndinni í baráttunni við veikindin. Hún var hörkutól sem gafst ekki upp þrátt fyrir að lífið legði fyrir hana margs konar hindranir. Síðustu 25 árin voru henni í því tilliti mjög góð en eins og gengur þá fóru annarskonar kvillar tengdir háum aldri að hrjá hana. Mamma var alltaf skemmtileg á mannamótum þessi síðustu 25 ár og naut þeirra m.a. á ferðalög- um um landið ásamt okkur Kol- brúnu og tengdaforeldrum mín- um meðan þeirra naut við. Það voru afskaplega skemmtilegar ferðir þar sem hún og tengdafor- eldrar mínir, sem hún náði mjög vel saman við, voru í einhvers- konar keppni um hver ætti að borga næst fyrir máltíðir eða ein- hverja þá aðra þjónustu sem við ákváðum að við þyrftum á að halda. Þetta var oft mjög kóm- ískt. Hún var alla tíð afskaplega þrjósk og ákveðin og þegar hún var búin að taka ákvörðun um eitthvað þá varð því ekki haggað. Dæmi um þetta er að þegar ald- urinn fór að færast yfir þá tapaði hún smátt og smátt heyrn. Þegar við systkinin stungum upp á því við hana að það gæti verið sniðugt að fá heyrnatæki þá varð strax ljóst að það kom ekki til greina. Hún heyrði bara alveg ágætlega, að eigin sögn. Ekki einu sinni undir það síðasta þegar maður þurfti að standa beint fyrir framan hana og hálf kalla á hana einfaldar setningar kom til álita hjá henni að fá heyrnatæki, slík var þrjóskan. Maður skilur loksins hvaðan við systkinin höfum fengið þrjóskuna í arf. Ég á eftir að sakna hennar mikið. Ást hennar og kærleikur var skilyrðislaus. Það var alltaf gott að koma til mömmu og fá í orðum staðfestingu á því hversu duglegur, fallegur og gáfaður ég var að hennar mati. Farðu í friði, elsku mamma, ég veit að þú ert hvíldinni fegin. Þinn sonur, Haraldur. Mamma mín er látin 94 ára. Síðustu daga hefur hugurinn reikað fram og til baka og minn- ingarnar hrannast upp. Allar góðu minningarnar standa upp úr. Á löngum köflum var hún með storminn í fangið og glímdi við sinn sjúkdóm. Þrátt fyrir veikindi hélt hún fallegt heimili og hugsaði vel um okkur systkinin. Mamma var í eðli sínu hlátur- mild og kát, fannst fátt skemmti- legra en að fá sér í tána og sígó í góðum félagsskap. Á sínum yngri árum fiktaði hún við reykingar eins og flestir á þessum árum en ákvað svo að taka þær föstum tökum þegar hún var 78 ára og fór að reykja daglega. Á Hrafn- istu, þar sem hún dvaldi síðustu fimm árin, spurði ég hana eitt skiptið hvort hún væri alltaf að fara niður að reykja? Nei, nei, þá sagðist hún vera hætt, ekkert reykt í viku, sagðist vera í heilsu- átaki og hló, enda þarna orðin 92 ára. Hún passaði oft fyrir okkur og þá gerði hún bara eins og ömmur eiga að gera, gaf börnunum fullan aðgang að kexskúffunni og Cocoapuffsinu þeim til mikillar gleði. Kenndi þeim að spila veiði- mann og ólsen ólsen. Börnin mín hugsa hlýtt til ömmu sinnar eins og við öll. Ég kveð mömmu mína með sorg og þakklæti í hjarta. Hvíl í friði, elsku mamma mín. Kristjana Una. Elsku mamma mín er dáin. Hún átti langa og merkilega ævi sem spannaði mestu framfarir og breytingar sem Íslendingar hafa upplifað. Mamma fæddist 1925, rétt fyrir kreppuna miklu, og fjöl- skyldan hafði ekki úr miklu að moða. Lífið snérist um að hafa í sig og á og hún fór að heiman fyr- ir tvítugt. Flutti suður rétt eftir seinna stríð og vann þar við ýmis þjónustustörf, ráðskona í sveit, þjónustustúlka á Grund og í ver- búð suður með sjó. Fór síðan í Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði. Hún kynntist pabba, Gunnari Hermannssyni, 1947 og með þeim tókust miklar ástir. Mamma sagði mér og ég hef það staðfest, að þau kynntust þegar þau „voru að fara á ball“. Ég hef eftir Vig- dísi svilkonu mömmu, sem var viðstödd þennan atburð, að „Gunnar kom og lýsti upp tilveru hennar til frambúðar. Það var augljóst strax þetta kvöld hvað Stína varð skotin og engin furða, Gunnar var svo fallegur og góður maður“. Koníak í heitu vatni var drykkurinn þegar þau fóru á ball, það var á sjómannadaginn. Þau hófu búskap í Hafnarfirði 1952 og síðan útgerð á fiskiskip- inu Eldborg GK 13 þar sem Gunnar var skipstjóri og gekk vel, hann var vel liðinn og farsæll. Þrjú ný skip voru keypt á árunum 1958-1968 og það má segja að Kristín hafi komist úr fátækt í góðar álnir en það átti eftir að breytast. Upp úr þrítugu veiktist mamma af geðsjúkdómi sem ein- kenndi hana alla tíð. Á þeim tíma voru meiri fordómar en nú og læknavísindi skemmra komin. Sjúkdómurinn gerði það að verk- um að hún hrinti fólki frá sér en börnin sín elskaði hún og hugsaði um af myndarskap og ástúð. Lyf fundust sem héldu sjúkdómnum í skefjum. Þegar smíði fjórðu Eldborgar- innar var í fullum gangi 1977 fékk Gunnar hjartaáfall og lést ein- ungis 54 ára að aldri. Skipið kom til landsins í lok árs 1978 og var þá stærsta nótaveiðiskip lands- ins. Aðstæður breyttust hratt á þessum árum, loðnan hvarf og gengið hrundi og 5-6 árum eftir að skipið kom var útgerðin gjald- þrota. Mamma varð aftur fátæk. Hjá henni voru þetta erfið ár, öryrki með tvö ung börn og litlar tekjur. Hún stóð þetta af sér eins og önnur áföll í lífinu, seldi húsið í Garðabæ og flutti í Kópavog þar sem hún bjó þar til hún fór á Hrafnistu í Hafnarfirði árið 2014. Mamma var vel gefin kona og skemmtileg. Hún gat verið hvöss og húmorinn var oft kaldhæðinn. Margt sem hún sagði lifir í fjöl- skyldunni sem gamanmál en þeir sem voru viðkvæmir skildu hana ekki. Hún var mikil hannyrðakona, húsmóðir og okkur börnin sín elskaði hún skilyrðislaust. Elsku mamma, ég á eftir að sakna þín. Þú varst frábær mamma fyrir mig og ég hefði ekki viljað eiga neina aðra. Kristján Gunnarsson. Elskuleg tengdamóðir mín er lögð af stað í sína hinstu ferð. Ég hef frá því ég kynntist henni fyrst litið á hana sem vinkonu mína, við höfum oft hlegið svo innilega sam- an. Foreldrum mínum og Kristínu varð vel til vina og þótti mér afar vænt um það. Við ferðuðumst töluvert með þeim öllum, m.a. um svæði sem tengdamamma hafði aldrei komið á og hafði hún gam- an af því hvað foreldrar mínir voru fróðir um landið enda ferðast mikið. Eftir að pabbi féll frá ferðuð- umst við Haraldur með þær tvær í aftursætinu og það var reyndar bráðskemmtilegt, hvorug þeirra heyrði vel og úr varð stundum bráðfyndið samtal. Mér gleymist seint þegar við vorum á leið norður fyrir nokkuð mörgum árum og þegar við kom- um að Blönduósi spurðum við hvort þær vildu borða þar, nei nei segja þær báðar. Þegar við vorum á Öxnadals- heiði segir tengdamamma „það venst nú að svelta“ og augnabliki seinna segir hún “„mig langar í sígarettu“. Hún var alltaf hrein og bein. Ég hef alltaf litið á það sem mína gæfu að hafa kynnst honum Haraldi mínum og að fá hana Kristínu sem tengdamömmu í kaupbæti. Farðu í friði, elsku tengda- mamma Þín tengdadóttir, Kolbrún. Kristín Önundardóttir ✝ María ElísabetÁrnadóttir Fre- deriksen fæddist í Reykjavík 26. jan- úar 1924. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 21. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru María El- ísabet Bergsdóttir og Árni Guðmunds- son. Systur Maríu voru Hjördís, sem er látin, og Málfríður, Bíbí sú eina sem lifir systur sína. Systkini Maríu sammæðra voru Jóna Marta, Bergþór, Guð- mundur, Kristín, Jón Baldvin, látinn, María Elísabet og Krist- ófer Máni. 2) Baldvin Már, f. 22 maí 1952, giftur Sigríði Jó- hannsdóttur. Börn þeirra eru Bryndís, Jóhann Gunnar og Baldvin Már. 3) Kristján Örn, f. 18 janúar 1955. Börn hans með Elsu Björk Pétursdóttur eru María Ósk, Eyþór Smári og Dav- íð Snær. Kristján Örn er giftur Aðalheiði Gunnarsdóttur. 4) Ell- en María, f. 9. júní 1960, gift Ólafi A. Ólafssyni. Börn þeirra eru Díana Ósk, Gunnar Freyr og Arnar Snær. Langömmubörn eru 21. María vann við verslunarstörf og síðar hjá Reykjavíkurborg, m.a. í grunnskólum, og í mörg ár við Sundlaugarnar í Laugardal. Einnig starfaði hún hjá Mæðra- skoðun á Heilsuverndarstöðinni. Útför Maríu fór fram í kyrr- þey frá Langholtskirkju 4. júlí 2019. Guðmundur Frið- þjófur og Svava. María giftist Oswin Harry Green 5. júní 1943. Dóttir þeirra er Þórunn Elísabet, f. 24. jan- úar 1944. Sonur hennar er Ómar Awad. Oswin Harry lést 10. nóvember 1944. María giftist Gunnari Viggó Frederiksen 28. mars 1949. Börn þeirra eru: 1) Árni Gunnar, f. 10. október 1949. Hans börn eru Guðbjörg María, Ásta Björk, Gunnar Viðar sem er Amma María var engin venju- leg kona, hún var falleg, bein í baki, sterkbyggð og hraust. Hún hafði há kinnbein, fallegt bros og ég man sem barn að hafa horft aðdáunaraugum á vel lagaðar augabrúnirnar og hárið sem var alltaf vel lagt. Hún var einstaklega vinnusöm og fann sér alltaf eitt- hvað að gera og það sem hún tók sér fyrir hendur lék í höndunum á henni. Þegar ég kom í heimsókn var hún ýmist að sýsla í garðinum eða eldhúsinu, sauma fatnað eða raða skargripum og keðjum fyrir afa en þau voru með fyrirtæki heima. Hún og afi kenndu mér að leggja kapal og spila Manna og á ég margar góðar og skemmtilegar minningar frá þeim stundum. Amma var frábær kokkur og var mikið í mun að við fengjum nú örugglega eitthvað gott í gogginn hjá henni þegar við komum í Karfavoginn. Hún gerði bestu kindakæfu í heimi, lagaði marmel- aði sem var engu líkt, bakaði randalínur með rabarbarasultu og ekki má gleyma „Ala Nabba“ kök- unni sem hún gerði við öll sérstök tækifæri. Eftir að ég varð eldri laumaði hún að mér ýmsum hús- ráðum og leynitrixum í matar- gerð. Börnunum mínum tók hún alltaf vel á móti og spurði um þau og þeirra áhugamál. Einhverju sinni vorum við að ræða fimleika dóttur minnar, þá gerði hún sér lítið fyrir og renndi sér í split, þá 93 ára gömul og sagði um leið, þetta get ég ennþá og brosti. Við amma glugguðum gjarnan í af- mælisdagabókina hennar en hún mundi alla afmælisdaga, barna, barnabarna og langömmu barna og tengdi gjarnan við aðra merk- isdaga í fjölskyldunni. Amma hafði flauelsmjúka og dökka rödd sem mér fannst ein- staklega falleg. Þegar við röbbuð- um saman í seinni tíð sagði hún mér frá gömlum tímum, þegar hún bjó á Bergþórugötunni, var í Austurbæjarskóla og söng í kór. Hún var flink að radda og kunni ógrynni af textum. Sem barn man hvernig hún raulaði við dagleg störf og einnig þegar hún söng fyrir mig. Hvernig hún horfði í augun á mér og söng blíðlega fyrir mig „Lofið þreyttum að sofa“ eftir Davíð Stefánsson við lag eftir Sigavalda Kaldalóns, fallegan og sorglegan texta sem snart hana svo djúpt og einnig mig sem hef munað þennan texta æ síðan. Margs er að minnast og margt er fyrir að þakka. Nú hefur elsku amma fengið hvíldina og ég þakka fyrir allt. Þeim gleymist oft sem girnast söng og dans að ganga hljótt hjá verkamannsins kofa. Ó, hafið lágt við litla gluggann hans og lofið dagsins þreytta barni að sofa. (Davíð Stefánsson.) Bryndís Baldvinsdóttir. María E. Árna- dóttir Frederiksen Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.