Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 51
með prinsinn okkar. Þarna var
lagður grunnurinn að innilegu
sambandi og vináttu okkar systra
sem varði alla tíð. Seinna þegar ég
eignaðist mín börn var Lilla mín
alltaf til staðar, ef á þurfti að
halda. Var það ómetanlegt fyrir
mig. Þegar Sævar fór að æfa og
keppa í fótbolta með KR þá var
mætt á völlinn til að hvetja og hafa
gaman. Það leiddi til þess að við
gengum báðar í KR-konur, félag
stofnað af eiginkonum og mæðr-
um iðkenda í KR. Ekki átti ég þá
neinn afkomenda sem var í KR, en
fylgdi auðvitað með sem móður-
systir og stuðningsmaður Sævars.
Störfuðum við í þessu félagi um
árabil og höfðum gaman af. Áfram
héldum við systur að hvetja,
styðja og fylgjast með börnum
okkar við þeirra íþróttaiðkanir.
Var það bæði gefandi fyrir þau
sem einstaklinga og styrkti og
efldi fjölskyldutengslin. Útilegur
og ferðalög voru hluti af lífinu á
þessum árum og er margs að
minnast frá þeim, sem ekki verður
rakið hér, en geymt í minninga-
bankanum.
Þegar halda átti veislu, var
ómetanlegt að hafa Lillu í sínu liði,
alltaf hvetjandi og hrósandi. Ein-
hverju sinni þegar ég var að vand-
ræðast með eitthvað, sem ég var
ekki viss um að væri nógu flott
sagði hún við mig: Ásta mín, ef þú
vilt hafa þetta svona og finnst það
flott, þá er það flott. Alltaf að
hvetja og styrkja. Margar veislur
undirbjuggum við saman og þá
var gaman hjá okkur. Lilla var af-
ar flink við að skreyta bæði brauð-
tertur og kökur. Svo var hún líka
svo skipulögð að auðvelt var að að-
stoða hana.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Vertu kært kvödd, elsku systir,
hafðu þökk fyrir þau áhrif sem þú
hafðir á líf mitt.
Megir þú lifa í ljósi Drottins.
Þín systir,
Ásta.
Elsku Lilla frænka.
Það er komið að kveðjustund í
þessu jarðlífi, sem kom alltof
snöggt og öllum að óvörum.
Þú varst loksins komin inn á
Hrafnistu og varst dugleg að taka
þátt í starfinu þar. Loksins komin
í eitthvað almennilegt fjör! Alex-
andra Ásta hafði hitt þig á föstu-
deginum, þegar að hún var á vakt,
og boðið þér í útskriftarveisluna
sína 22. júní. Þú stefndir á að
koma og vissi ég að þú hlakkaðir
mikið til. Ég sagði alltaf að þú
værir uppáhaldsfrænkan mín, og
þú vissir það. Þú hefur verið hluti
af mínu lífi frá því ég fæddist þar
sem þú ert systir hennar mömmu
minnar og var alla tíð mikill sam-
gangur á milli þessara fjölskyldna.
Það var hist t.d. á gamlársdag/
kvöld, jóladag, afmælum, farið í
útilegur, kíkt í kaffi eða bara
hringt. Þegar ég komst á fullorð-
insár og hætt var að bjóða í afmæli
ár hvert fékk ég alltaf afmælis-
símalið frá Lillu frænku.
Það var gaman að tala við og
umgangast Lillu frænku. Hún var
hreinskilin, hreinskiptin, réttlát,
húmoristi, góð, ljúf, beinskeytt og
ákveðin en umfram allt á ég marg-
ar góðar og skemmtilegar minn-
ingar um og með henni.
Ég vann t.d. með Lillu í eldhús-
inu í Skúlatúni og sá þá með eigin
augum hvað hún var mikils metin
og allir í húsinu vissu hver Lilla
var.
Hún var alltaf viljug að passa
dóttur mína ef á þurfti að halda og
svo eru ófáar veislurnar sem hún
aðstoðaði okkur við, t.d. með lax-
atertum, sem hún var snillingur að
gera.
Ég sakna hennar mikið og
finnst þetta allt svo óraunveru-
legt, en þannig er víst gangur lífs-
ins.
Elsku Lilla frænka, takk fyrir
samfylgdina, takk fyrir að vera
frænka mín, takk fyrir allar góðu
minningarnar og takk fyrir að
vera þú, alltaf.
Ég kveð þig í bili og þakka fyrir
allar góðu samverustundirnar og
minningarnar.
Elsku Sævar, Hlynur og fjöl-
skyldur og allir sem elskuðu Lillu
frænku, ég sendi mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Þín frænka,
Nellý Pálsdóttir.
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
besta vinkona mín og ég veit að
hún fylgir mér í öllum ævintýrun-
um mínum sem eftir verða. Ég er
þakklát fyrir allan þann tíma sem
við fengum saman, sá tími er mér
mjög dýrmætur og geymi ég hann
alltaf í minningabankanum mín-
um.
Ég elska þig, elsku besta amma
mín, ég veit þú segir: Ég elska þig
líka,
Þú ert best í heimi.
Þín,
Jannie Brynja.
Elsku Jórunn.
Það var mér mikill heiður að
vera einn af þeim heppnu sem
fengu að kynnast sterku, fallegu
og umhyggjusömu konunni sem
þú ert.
Þín streitulausa vinna, ást,
þrautseigja og vilji gáfu þér væng-
ina sem þú þarfnast fyrir það sem
þú kallaðir stærsta ævintýrið þitt.
Megi vindar himins bera þig
mjúklega.
Við söknum þín.
Frank.
Ég kynntist Ingunni, dóttur
Jórunnar, þegar við vorum átta
ára stelpur í teygjutvisti í Norð-
urmýrinni. Við urðum strax bestu
vinkonur og erum enn 55 árum
síðar. Jólý hitti ég síðan í kjölfarið
og er mér minnisstætt þegar hún
útbjó sumarbrauð með eggjum,
tómötum og agúrkum og kakó-
mjólk handa okkur úr Nesquik og
reyndar stjanaði hún alla tíð við
okkur Ingunni.
Þegar við vorum unglingar
saumaði Jólý á okkur báðar rauð-
ar útvíðar buxur og anorakka.
Jólý var mér alla tíð mjög góð
og reyndist mér eins og besta
móðir. Hún var hlý og skemmtileg
kona með góða nærveru. Hún var
smekkleg og ávallt vel til höfð og
átti fallegt heimili. Við Jólý héld-
um alla tíð mjög góðri vináttu og
vorum nágrannar í áratugi í Háa-
leitishverfinu. Tengsl okkar efld-
ust mjög hin síðari ár og við hitt-
umst reglulega. Við borðuðum oft
saman og réðum krossgátur yfir
kaffisopa og vöfflum. Oft setti Jólý
stuðlög á fóninn og við tókum
snúning á stofugólfinu og skelli-
hlógum. Iðulega skruppum við í
bíltúra á gömlu Brövunni, Fiat, í
heimsóknir og gerðum fleira
skemmtilegt.
Ég minnist Jólýjar með hlýhug
og væntumþykju. Ég votta Ing-
unni og fjölskyldunni allri innilega
samúð mína.
Blessuð sé minning Jólýjar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum.)
Vilborg.
✝ Magndís Guð-rún Ólafs-
dóttir fæddist á
Bakka í Bjarn-
arfirði 7. maí
1939. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 22.
júní 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Kristjana
Halldórsdóttir, f.
24. október 1905,
d. 9. febrúar 1982, húsmóðir,
og Ólafur Jóhannsson, f. 15.
október 1908, d. 10. október
1964, sjómaður. Magndís Guð-
rún átti sex alsystkini og sex
hálfsystkini. Alsystkini hennar
eru: Halldór Tryggvi (látinn),
Benjamín (látinn), Lúðvík, Jó-
hann Karl, Guðrún og Guðlaug.
Hálfsystkini hennar eru: Matt-
hildur (látin), Halldór (látinn),
Snjólfur, Halldóra, Alda Jóna
úar 1957, maki Ingibjörg Þor-
steinsdóttir. Magnús, f. 15. des-
ember 1958, maki Jóhanna
Kristín Hafsteinsdóttir. Svan-
björg Kristjana, f. 29. nóv-
ember 1959, maki Gissur Bald-
ursson. Arnar, f. 2. nóvember
1962, maki Kristbjörg Eyjólfs-
dóttir. Dagrún Njóla, f. 1. apríl
1964, maki Einar Svanberg Sig-
urðsson. Brynja Bjarnfjörð, f.
26. maí 1977, maki Ólafur
Magni Sverrisson. Björk, f. 26.
maí 1977, maki Tómas Árni
Tómasson.
Bjuggu þau norður á Strönd-
um til ársins 1971 en þá fluttu
þau frá Skarði í Bjarnarfirði til
Keflavíkur.
Magndís vann lengst sem al-
menn verkakona en síðasta
starf hennar var sem sauma-
kona hjá Álnabæ í Keflavík. Ár-
ið 2000, þann 25. ágúst, giftist
hún Höskuldi Skarphéðinssyni,
f. 15. júní 1932, d. 3. mars 2014,
fyrrverandi skipherra, en þau
höfðu búið saman síðan 1992.
Barnabörn Magndísar eru 20
talsins og barnabarnabörn 14.
Útför Magndísar fór fram í
kyrrþey.
Ósk og Ragnheiður.
Magndís fæddist
á Bakka í Bjarnar-
firði á Ströndum og
bjó þar, þangað til
foreldrar hennar
fluttu að Helganesi
á Selströnd. Þar bjó
hún til fimm ára
aldurs en þá skildu
foreldrar hennar.
Móðir hennar Krist-
jana sinnti víða
vinnu sem ráðskona og mat-
selja og fór Magndís með
henni. Þær dvöldu lengst af
norður í Árnesi, Árneshreppi.
Þar gekk Magndís í Finn-
bogastaðaskóla.
Magndís giftist 6. október
1956 Magnúsi Ingimundarsyni,
f. 2 mars 1936, d. 2. nóvember
1990, bónda, sjómanni og iðn-
verkamanni. Eignuðust þau sjö
börn: Ingimundur, f. 20. febr-
Elsku mamma, ég vil þakka þér
fyrir allt sem þú hefir gert með mér.
Þú hugsaðir vel um okkur öll
ég veit þú býrð nú í Kærleikshöll.
Takk fyrir að vera til staðar fyrir mig
við Kristbjörg elskuðum að geta gert
ýmislegt fyrir þig.
Mig langaði bara að segja, ég elska þig
heitt
þú ert nú farin, mér þykir það leitt.
Varst samt tilbúin í Sumarlandið að
fara
þar ætlar þú ekki neitt að spara.
Gefur frá þér kærleik, giftu og gæsku
ég man svo vel eftir skemmtilegri
æsku.
Þú hljópst fim upp brekkur í berjamó
þar fannst þú gróðurlykt, kyrrð og ró.
Nú leikur náttúran við þig rótt.
Guð gefi þér, elsku mamma, góða
nótt.
Arnar Magnússon.
Elsku hjartans Dísa, tengdamóðir mín
Ég segi það með stolti, að ég hef alltaf
litið upp til þín
Við náðum saman fljótlega eftir að við
Addi kynnumst
Nú við nokkur minningabrot
minnumst
Þú bjóst víða um Strandir með mömmu
þinni
Meðan hin systkinin bjuggu á Bakka
með afa og ömmu sinni
Þetta hefur verið erfitt en aldrei talaðir
þú um það
Svona var bara lífið, það þýðir ekkert
að
Væla yfir öllu, við verðum bara að
vinna
Gott er að hafa orku og heilsu til að
sinna
Börnum og heimili, Guð ætlar okkur
hlutverk
Í þessu lífi eigum við að vera öll jafn
merk
Í sumarbústaðnum í Bjarnarfirðinum
fagra undum
Þar var yndislegt að vera og fjör líka á
stundum
Tvíburarnir og Kolla bökuðu með þér
jólakökur
Deigið, lenti þó en ekki oftar, niður á
þeirra hökur
Þú varst metnaðarfull hannyrðakona,
sko í þaula
Úr stofunni eða herberginu heyrðum við
í þér gaula
Alls konar orð sem komu úr þínum
munni
Ragn, hlátur en meira kom úr þínum
viskubrunni
Elja, dugnaður, fagmennska á nefnilega
við þig
Að vera kraftakona og bogna ekki,
borgaði sig
Þú áttir með Magga sjö mannvænleg
börn
Þetta var, veit ég, aldeilis ofur törn
Áttu heima á Skarði, þar til nítján hundr-
uð sjötíu og eitt
Fluttu þá suður, liggur við, ekki með
neitt
Með dugnaði og krafti, þau eignuðust
sitt
Dísa var ákveðin, sagðir: ég stend sko
við mitt
Varst ekkja ung en hafðir kraftinn
móða
Sýndir börnum og barnabörnum
umönnun góða
Lékst með Höskuldi þínum seinni
æviárin
Hann lést 2014, þá runnu niður kærleiks
tárin
Við sem eftir erum, söknum elsku bestu
Dísu
Sem við hugsum um, sem fallega
eðalskvísu
Því henni þótti gaman að gera sig fína
Maður á að njóta lífsins, sýna takta
sína
Ég man þegar við fórum til Brompton
áttatíu og níu
Þú fórst í hjartaaðgerð, allt gekk vel, já
upp á tíu
Sú ferð tengdi okkur enn nánara
saman
Frá þeim tíma hefur verið hjá okkur
gaman
Þú varst góð við barnabörnin þín öll
Oft heyrðust mikil og hvell hlátrasköll
Þegar stór fjölskyldan hittist á hátíðis-
dögum
Þú fylgdist með þeirra allra ráða-
högum
Ég elska þig elsku fallega tengdamóðir
mín
Ég á svo mikið eftir að sakna þín
Ég skal hugsa um fjögur leiðin fín
Ég skal líka hugsa um fallegu handverkin
þín
Sem þú bjóst fyrir börnin, Adda og
mig
Þú ert á stalli, ég skal tala vel um þig
Þú gafst okkur margt og svo mikið
Því, elska ég þig Dísa, svo mikið, fyrir
vikið
Ég veit að Sumarlandið á eftir að fara vel
með þig
Þú saumar, prjónar, föndrar, horfir stolt
á mig
Fylgist með okkur öllum, með brosi þínu
bjarta
Segir brosandi: Ég á alla þessa, ég, með
mitt stolta hjarta
Kristbjörg Eyjólfsdóttir.
Amma Dísan mín.
Það var alltaf nóg til hjá þér,
elsku amma, þá meina ég nóg til af
öllu.
Það sem ég er samt þakklátust
fyrir er að það var alltaf nóg til af
ást hjá þér. Þú varst kannski
þekktust fyrir röflið og góðan
kjaft en ég veit að ég átti sérstak-
an stað hjá þér og náði alltaf að
draga fram þínar mýkstu og fal-
legustu hliðar. Ég fann svo mikla
ást og umhyggju í hvert skipti
sem ég kom í heimsókn til þín og
þú vildir gera allt fyrir mig, sama
hversu stórt eða lítið það var. Sem
dæmi má nefna að á hverjum degi
skutlaðir þú mér í Verzló með bros
á vör (og smá kjafti í umferðinni)
en þér fannst þú ekki gera neitt
gagn og hefðir viljað færa skólann
nær húsinu þínu svo ég þyrfti ekki
að ferðast svona langt. Þetta lýsir
þér svo ótrúlega vel, amma mín,
alltaf að gera eitthvað fyrir okkur
gullin þín en þér fannst það aldrei
vera nóg.
Ég vona að þú sjáir það núna,
þetta var sko alveg meira en nóg.
Afi, þú mátt segja henni það líka,
hún getur verið svolítið þrjósk.
Takk fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig, elsku amma, ég
verð þér ævinlega þakklát.
Ég elska þig.
Þín
Kristjana Guðrún.
Magndís Guðrún
Ólafsdóttir
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
sonur og afi,
EINAR BOGI SIGURÐSSON
Suður-Reykjum 3,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 15. júlí klukkan 15.
Kristján Ingi Jónsson
Ágúst Rafn Einarsson Rakel Guðmundsdóttir
Matthías Einarsson Clare Patricia Dilworth
Erna Einarsdóttir
Sigurður Ágúst Finnbogason Guðríður Einarsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
Kolding, Danmörku,
lést á Sct. Maria Hospice sjúkrahúsinu í
Vejle, Danmörku, 2. júlí. Útför hennar fer
fram frá Bramdrupdam-kirkjunni Í Kolding
föstudaginn 12. júlí klukkan 13.
Sigurgeir Skírnisson
Skírnir Sigurgeirsson
Asbjørn Sigurgeir Skírnisson
Fanney Klara Sigurgeirsd. Mike Agerup
Guðrún Helena Sigurgeirsd. Andreas Simonsen
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BRYNHILDUR GARÐARSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
lést miðvikudaginn 29. maí á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útförin fór fram í kyrrþey 5. júlí.
Þökkum öllu því starfsfólki á Hrafnistu Hafnarfirði sem annaðist
hana af alúð og hlýju.
Helgi Einarsson Guðrún Þórðardóttir
Brynjar Jakobsson Hafdís Ósk Sigurðardóttir
Soffía Jakobsdóttir Rögnvaldur Jóhannesson
Laura Hildur Jakobsdóttir Jónas Þór Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
dóttir og systir,
MARÍA BJÖRK ALBERTSDÓTTIR
sem lést á Spáni 12. janúar, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu, í dag,
fimmtudaginn 11. júlí, klukkan 15.
Elí Pétursson
Bergur Snorri Salomonsen Elí Xavi Bjarkar Elíson
Ingibjörg Gísladóttir
Albert K. Skaftason Emilía Davíðsdóttir
Eyvindur Elí Albertsson
Gylfi Geir Albertsson
Skafti Þór Albertsson
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.